Áform um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (gjaldtaka aksturs hreinorku- og tengiltvinnbifreiða)
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-183/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 52 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. febrúar 2024)
Sjá niðurstöðuskjal.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (52)
- #1Þorsteinn Gíslason
Mjög sangarnt mætti vera 7 krónur tími til kominn að allir borgi
- #2Axel Björnsson
Grófur landsbyggðarskattur. Svona breytingar eiga ekki að vera hannaðar bara út frá höfuðborginni. Ef rökin séu að allir eiga að borga setjið þá þetta gjald á alla bíla. Ekki er mengunarskattur á öðrum bílum. Ekki ýtir þetta bílaleigum að fjárfesta í rafbílum.
- #3Björn Þór Imsland
Þetta er mjög grófur landsbyggðaskattur gagnvart þeim er hafa fjárfest í tvinnorkubilum rafmagn/jarðefnaeldsneyti meðan þessi skattur er ekki kominn líka á bensín/dísel bíla. Sá aðili sem á svona bil og þar stundum að keira langa vegalengd t.d til Djúpivogur til Reykjavíkur getur bara keirt á rafmagni í flestum tilfellum ca. Fyrstu 50 til 70km en fæsta af þessum bílum er hægt að hlaða á hraðhleðslust. Þannig að eftir þessa 50 til 70km ertu að aka eingōngu á jarðefnaeldsneiti og borgar því bæði gjald af eldsneitinu sem þú notar + kílómetragjaldi 2 kr þannig ef þú kerir 500km leið þá borgar þ… Lesa alla
Þetta er mjög grófur landsbyggðaskattur gagnvart þeim er hafa fjárfest í tvinnorkubilum rafmagn/jarðefnaeldsneyti meðan þessi skattur er ekki kominn líka á bensín/dísel bíla. Sá aðili sem á svona bil og þar stundum að keira langa vegalengd t.d til Djúpivogur til Reykjavíkur getur bara keirt á rafmagni í flestum tilfellum ca. Fyrstu 50 til 70km en fæsta af þessum bílum er hægt að hlaða á hraðhleðslust. Þannig að eftir þessa 50 til 70km ertu að aka eingōngu á jarðefnaeldsneiti og borgar því bæði gjald af eldsneitinu sem þú notar + kílómetragjaldi 2 kr þannig ef þú kerir 500km leið þá borgar þú 1.000kr meira fyrir þessa 500km heldur en ef þú keirir hana á jarðefniseldsnetisbil Það má nefnilega alveg gera ráð fyrir því að tvinnorkubíll eyði svipað magn eldsneiti a þessari vegalengd og jarðefnaeldsneitisbíll Þess vegna tel ég þetta vera ósanngjarnan skatt gagnvart landsbyggðinni.
- #4Sigurður Egill Sigurðsson
Þetta er auka skammtheimta sem á engan veginn rétt á sér. Þótt skattheimta frá bílaflotanum hafi lækkað undanfarin ár þá hafa nánast allir aðrir skattstofnar hækkað. Hvati til kaupa á rafbílum mun minnka og vinna þá þvert á stefnu stjórnvalda um endurnýjun bílaflota landsmanna. Ég legg til að þess í stað að skattleggja bílaeigendur meira þá með tímanum láta veggjöld falla niður og sækja skattinn frá hinum milljón skattstofnum sem ríkið hefur t.d vsk, tekjuskatt, fjármagnstekjuskatt, o.s.frv enda voru veggjöld ætluð sem tímabundinn skattur á sínum tíma. Með þessum rökum að allir verði að… Lesa alla
Þetta er auka skammtheimta sem á engan veginn rétt á sér. Þótt skattheimta frá bílaflotanum hafi lækkað undanfarin ár þá hafa nánast allir aðrir skattstofnar hækkað. Hvati til kaupa á rafbílum mun minnka og vinna þá þvert á stefnu stjórnvalda um endurnýjun bílaflota landsmanna. Ég legg til að þess í stað að skattleggja bílaeigendur meira þá með tímanum láta veggjöld falla niður og sækja skattinn frá hinum milljón skattstofnum sem ríkið hefur t.d vsk, tekjuskatt, fjármagnstekjuskatt, o.s.frv enda voru veggjöld ætluð sem tímabundinn skattur á sínum tíma. Með þessum rökum að allir verði að greiða fyrir notkun þá er allt eins hægt að rukka hjól og rafhlaupahjól fyrir afnot af göngu/hjólastígum, gangandi fyrir göngustíga, farþega í rútum/strætó fyrir hlut í ferð og að lokum börnum fyrir gönguleið í skólan. Vinsamlegast endurskoðið þessi skattaáform með það fyrir augum að allir neysluskattar bitna mest á tekjulægri einstaklingum og dregur úr hvata fólks til að losa við bensínbílinn.
- #5Bjarni Guðmundur Jónsson
Margir eigendur tengiltvinnbílar kaupa afar lítið af olíu og bensíni og skattbyrði þeirra verður því lægri en þeirra sem aka á hreinum rafbílum. Gjald fyrir tengiltvinnbíla þyrfti að vera amk. 4 krónur svo þetta virki ekki sem hvati til að kaupa frekar tengiltvinnbíl í stað rafmagnsbíls. Þetta á enn betur við þegar ívilnanir við kaup á rafbílum renna úr gildi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.