Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-49/2024 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um skák

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um skák.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: febrúar).

Í drögum að frumvarpi, sem hér eru kynnt í opnu samráði, er lagt til að sett verði ný heildarlög um skák í stað laga um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990, og laga um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, sem lagt er til að falli úr gildi. Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyrirkomulag um styrki til stórmeistara í skák þar sem horft verði til einstakra verkefna og framgangs. Jafnframt verði horft til þess möguleika að styrkja efnilegt skákfólk, sem stefnir að alþjóðlegum árangri, en hingað til hafa eingöngu þeir sem hlotið hafa nafnbótina stórmeistari uppfyllt skilyrði til að fá greiðslur úr ríkissjóði. Lagt er til að skilgreint verði í lögum að framlög ríkisins til skákmála renni annars vegar í afrekssjóð í skák og hins vegar til skákhreyfingarinnar í gegnum æðsta aðila hennar, meðal annars til fræðslu um skák. Yfir afrekssjóði í skák verði stjórn sem sinnir faglegum þáttum sem tengjast úthlutun en ábyrgð á starfrækslu sjóðsins verði hjá mennta- og barnamálaráðherra. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að nánari útfærsla styrkveitinga úr afrekssjóði í skák verði útfærð í reglugerð og eru drög að reglugerð um afrekssjóð í skák kynnt til samráðs með frumvarpinu. Frumvarpið gerir ráð fyrir niðurlagningu starfa stórmeistara í skák á grundvelli laga nr. 58/1990. Til að tryggja meðalhófs er lagt til að sá hópur sem nú fær laun stórmeistara njóti forgangs til styrkja úr afrekssjóði í skák í fyrstu úthlutun árið 2025. Árið 2026 muni umsóknir þessa hóps um styrki úr sjóðnum vera metnar á sama hátt og aðrar umsóknir.

S-49/2024· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2024 – 6. mar. 2024· 10 umsagnir

Frumvarp til laga um skák

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um skák.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-49/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 931)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. október 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 154. löggjafarþingi, sjá 931. mál, þskj. 1378. Gerð er grein fyrir niðurstöðum samráðs í 5. kafla frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Tinna Kristín Finnbogadóttir

    Kvennaskáknefnd Skáksambands Íslands óskar eftir því að í fjárveitingum sínum taki ráðuneytið tillit til þess hve hallar á konur í skák, en konur eru um 10% þeirra sem eru á virkum stigalista hjá FIDE (alþjóða skáksambandinu) en aðeins 5% þeirra sem eru virk á Íslandi. Við teljum því ekki sanngjarnt að umsóknir kvenna séu metnar á sömu forsendum þegar litið er til afreksstarfs og ætti að miða umsóknir þeirra út frá afreksstarfi kvenna, til að mynda kvennastórmeistaratitli. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir Lisseth Acevedo Méndez Tinna Kristín Finnbogadóttir

  • #2Helgi Árnason
    Frá stjórn Skákdeildar Fjölnis - fáeinar athugasemdir Það að fella niður laun og fara yfir í verktaka fyrirkomulag myndi væntanlega þýða að öll réttindi myndu í raun vera lögð niður. Veikindaréttur, fæðingarorlof, lífeyrissjóðsréttindi o.s.frv. Það er skýrt skref aftur á bak fyrir jafnrétti kynjanna. Ef sú er raunin gæti það reynst ungum og efnilegum skákmönnum sem þiggja styrk til lengri tíma mjög í óhag, hvað réttindi varðar. Afreksíþróttamenn í öðrum íþróttagreinum hafa áður vakið athygli á og kvartað undan slíku fyrirkomulagi. Ráðuneytið þarf að eiga samtal við núverandi stórmeista… Lesa alla

    Frá stjórn Skákdeildar Fjölnis - fáeinar athugasemdir Það að fella niður laun og fara yfir í verktaka fyrirkomulag myndi væntanlega þýða að öll réttindi myndu í raun vera lögð niður. Veikindaréttur, fæðingarorlof, lífeyrissjóðsréttindi o.s.frv. Það er skýrt skref aftur á bak fyrir jafnrétti kynjanna. Ef sú er raunin gæti það reynst ungum og efnilegum skákmönnum sem þiggja styrk til lengri tíma mjög í óhag, hvað réttindi varðar. Afreksíþróttamenn í öðrum íþróttagreinum hafa áður vakið athygli á og kvartað undan slíku fyrirkomulagi. Ráðuneytið þarf að eiga samtal við núverandi stórmeistara sem þiggja laun hjá ríkinu. Samtal og samvinna er lykilatriði til lausnar og að markmiðum til hins betra skv. markmiðum frumvarpsins verði náð. Við fögnum áhuga ráðuneytis á því að efla skákina og styðjum stefnu ríkisstjórnarinnar að efla bæði afreksstarf og einnig fræðslu og rannsóknir.

  • #3Guðmundur Kjartansson

    -Lítið sem ekkert samráð hefur verið haft við stórmeistarana sjálfa. -Það er mjög óljóst hvernig þessar breytingar munu bæta kjör og hagi atvinnuskákmanna. -Starfsmannaréttindi eru væntanlega ekki hluti af þessu nýja fyrirkomulagi. -Starfsöryggið er farið. -Hver verður hvati ungra og upprennandi skákmanna?! (10 ára ég myndi þurfa að hugsa sig amk tvisvar um áður en hann færi að helga líf sitt skákinni). -Núverandi kerfi hefur gefið af sér fleiri stórmeistara en í nokkru öðru landi (miðað við höfðatölu).

  • #4Halldór Grétar Einarsson
    Tek undir með Helga Árnasyni varðandi afnám réttinda ungs afreksfólks. Það yrði mikið ábyrgðaratriði og afturför ef Alþingi færi þá leið. Á nýliðinni ráðstefnu (“Vinnum gullið”) ráðuneytisins kvað við þveröfugan tón (Vésteinn Hafsteinsson). Einnig tek ég undir með þeim sem óska eftir meira samráði og sanngirni gagnvart þeim sem hafa helgað líf sitt skák og unnið mörg afrek fyri hönd Íslands - núverandi stórmeistaralaunþegar. Að hagræði ráðuneytisins við að hafa einfalt kerfi í stað þess að leyfa núverandi kerfi að renna smám saman út (áætlaður tími c.a. fimm ár) meðfram nýja kerfinu finnst mé… Lesa alla

    Tek undir með Helga Árnasyni varðandi afnám réttinda ungs afreksfólks. Það yrði mikið ábyrgðaratriði og afturför ef Alþingi færi þá leið. Á nýliðinni ráðstefnu (“Vinnum gullið”) ráðuneytisins kvað við þveröfugan tón (Vésteinn Hafsteinsson). Einnig tek ég undir með þeim sem óska eftir meira samráði og sanngirni gagnvart þeim sem hafa helgað líf sitt skák og unnið mörg afrek fyri hönd Íslands - núverandi stórmeistaralaunþegar. Að hagræði ráðuneytisins við að hafa einfalt kerfi í stað þess að leyfa núverandi kerfi að renna smám saman út (áætlaður tími c.a. fimm ár) meðfram nýja kerfinu finnst mér vera óvirðing við þá og almennt við skák á Íslandi. Tek undir með afrekskonum um að nauðsynlegt sé að gera ráð fyrir hallanum sem er milli kvenna og karla í skák. Meginviðmið um styrki ætti að vera ástundun og árangur. Ástundunarviðmið ættu að vera þau sömu, en árangursviðmið afrekskvenna ættu að miðast við “alþjóðlegan árangur kvenna”. Ég legg til að Alþingi gæti samræmis við gerð þessara laga við önnur sambærileg lög (Íþróttalög og Æskulýðslög). Lögin ættu því að heita “Skáklög” til samræmis. Einnig ætti að vera til staðar “Skáknefnd” (sbr Íþróttanefnd og Æskulýðsnefnd) til ráðgjafar fyrir ráðuneytið. Mér finnst eðlilegt að ráðuneytið tilnefni tvo menn í stjórn Afrekssjóðsins og Skáksambandið einn. Þannig er það í núverandi lögum um launasjóð stórmeistara og starfar sú stjórn nokkuð sjálfstætt og vel í dag. Með því væri tryggt að afreksfólk verði ekki háð velvilja eins aðila varðandi alla þætti afrekslífsins. Fyrir eru mikil völd hjá Skáksambandinu með úthlutun gæða (val á liðum, val á þeim sem tefla fyrir hönd Íslands o.s.frv.). Annars er hlutverk stjórnar sjóðsins vel skilgreint í lögunum. “Styrkir skulu veittir til skilgreindra verkefna og taka mið af væntum árangri umsækjanda það árið. “ Betra væri: “Styrkir skulu veittir til skilgreindra verkefna og taka mið af árangri umsækjanda undanfarin misseri” Í drögunum er mikið fjallað um afrekssjóðinn, verkefni afreksskákmanna og kröfur til þeirra. En ekkert fjallað um önnur verkefni á sviði skákarinnar á Íslandi. U.þ.b. 65% af framlagi ríkisins fer til Skáksambandsins og Skákskóla Íslands. Mér finnst eins og það vanti tvo kafla í nýju lögin. Annar sem fjalli um almenn verkefni Skáksambandisins fyrir þjóðina og kröfur til þess. Hinn kaflinn um verkefni á svið þjálfunar og fræðslumála (Skákskóli Íslands) og kröfurnar þar. Sjá nánar mínar tillögur að drögum að lagatexta um þá þætti í meðfylgjandi umsögn minni sem ég gerði við fyrstu drögin (viðhengi bls 4-5). Fá ætti skákmann sem einnig er góður íslenskumaður (eigum marga þannig í skákhreyfingunni!) til að lesa lögin yfir. Orðalag á nokkrum stöðum í lagatextandum er þannig að sá aðili gæti endurbætt textann til að gera hann læsilegri fyrir þá sem málið verðar helst (en sem betur fer er hvergi talað um að spila skák!).

  • #5Hannes Hlífar Stefánsson

    Hér fyrir neðan er mín umsögn í pdf skjali.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-49/2024: Frumvarp til laga um skák · Alviti