Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-235/2022 · Forsætisráðuneytið

Sanngirnisbætur

Lagaumgjörð sem skapar farveg fyrir einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: september).

Fyrirhugað er að setja heildarlög um sanngirnisbætur þar sem einstaklingar sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða sem ekki fæst bættur á annan hátt vegna illrar meðferðar eða ofbeldis sem þeir hafa orðið fyrir vegna athafna eða athafnaleysis opinberra aðila hjá stofnunum ríkisins eða sveitarfélaga eða af hálfu einkaaðila á grundvelli ákvörðunar eða samnings við opinberan aðila eða samkvæmt opinberu leyfi samkvæmt lögum eiga rétt til greiðslu sanngirnisbóta. Gert verður ráð fyrir að umsóknir séu sendar til dómsmálaráðuneytisins sem yfirfari umsóknir m.t.t. þess hvort að þær uppfylli lágmarkskröfur. Matsnefndsanngirnisbóta fái síðan umsóknir til meðferðar og gerir tillögur til sanngirnisbótanefndar um það hverjir eigi að fá bætur og hversu háar þær eigi að vera.

S-235/2022· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. nóv. 2022 – 1. des. 2022· 1 umsögn

Sanngirnisbætur

Lagaumgjörð sem skapar farveg fyrir einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-235/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 449)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-235/2022: Sanngirnisbætur · Alviti