Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 449. mál

Almennar sanngirnisbætur

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 9. nóv. 2023

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 154. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að einstaklingar, sem telja sig hafa orðið fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum, geti sótt um að fá bætur og þar með viðurkenningu á misgjörðunum.

Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
31. október 2023
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
17 ræður · 1 klst.

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 6. ágú. 2024

Markmiðið

Að einstaklingar, sem telja sig hafa orðið fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum, geti sótt um að fá bætur og þar með viðurkenningu á misgjörðunum.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði umgjörð um greiðslu bóta til einstaklinga sem hafa orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi vegna háttsemi opinberra aðila eða einkaaðila sem valdið hefur þeim varanlegum skaða sem ekki fæst bættur á annan hátt.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið samþykkt óbreytt mun kostnaður ríkissjóðs vegna greiðslu sanngirnisbóta aukast en enn er ekki hægt að leggja mat á umfang þess kostnaðar. Þó má búast við að ekki verði í sama mæli þörf á stórum, tímafrekum og fjárhagslega dýrum rannsóknum varðandi tiltekna hópa og að þar með verði kostnaður í lágmarki.

Meira úr samantektinni

Noregur

Lov om erstatning fra staten til voldsutsatte (voldserstatningsloven) LOV-2022-06-17-57.

Kontoret for voldsoffererstatning. Norsk ríkisstofnun sem tekur við umsóknum frá einstaklingum um bætur fyrir tjón eða óhagræði sem þeir hafa orðið fyrir og sem ekki er hægt að fá bætt á annan hátt.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Jódís Skúladóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. nóv. 2023
Sendu inn umsögn eða erindi
11 aðilar
Holberg Másson, Sigrún Magnúsdóttir, Forsætisráðuneytið, ÖBÍ réttindasamtök, Rótin - félag um málefni kvenna o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. · 17 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið samþykkt óbreytt mun kostnaður ríkissjóðs vegna greiðslu sanngirnisbóta aukast en enn er ekki hægt að leggja mat á umfang þess kostnaðar. Þó má búast við að ekki verði í sama mæli þörf á stórum, tímafrekum og fjárhagslega dýrum rannsóknum varðandi tiltekna hópa og að þar með verði kostnaður í lágmarki.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-235/2022· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. nóv. 2022 – 1. des. 2022· 1 umsögn

Sanngirnisbætur

Lagaumgjörð sem skapar farveg fyrir einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-235/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-240/2022· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. des. 2022 – 8. des. 2022· 42 umsagnir

Drög að frumvarpi um sanngirnisbætur

Lagaumgjörð sem skapar farveg fyrir einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-240/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 42 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (42)
  • #2Steinar Immanúel Sörensson
    Komið sæl, það vill nú svo til að ég var bæði vistaður á barnaheimilinu Hjalteyri sem og einnig á Vöggustofu Thorvaldsen sem ungabarn og svipað átt við um sysktin mín á vordögum 2022 áttum við nokkur sem tilheyrum hópi þeirra barna sem voru á Hjalteyri fund með Dómsmálaráðherra, þar sem við ræddum okkar mál og lögðum meðal annars fram örlitla greinargerð sem var allþokkalega rökum studd Ekkert af því sem við lögðum áherslu á kemur fram í þessu frumvarpi og virðist sem skilningur á raunverulegri stöðu barna sem á þessum heimilium voru sé af skornum skammti sem og einnig skilningur á afdri… Lesa alla

    Komið sæl, það vill nú svo til að ég var bæði vistaður á barnaheimilinu Hjalteyri sem og einnig á Vöggustofu Thorvaldsen sem ungabarn og svipað átt við um sysktin mín á vordögum 2022 áttum við nokkur sem tilheyrum hópi þeirra barna sem voru á Hjalteyri fund með Dómsmálaráðherra, þar sem við ræddum okkar mál og lögðum meðal annars fram örlitla greinargerð sem var allþokkalega rökum studd Ekkert af því sem við lögðum áherslu á kemur fram í þessu frumvarpi og virðist sem skilningur á raunverulegri stöðu barna sem á þessum heimilium voru sé af skornum skammti sem og einnig skilningur á afdrifum þessa fólks Ég sendi hér í viðhengi það plagg sem við lögðum fram við Dómsmálaráðherra, og óskum við eftir að það verði raunverulega haft til hliðsjónar, því það sem fram kemur í núverandi drögum frumvarps, er ekki á nokkurn hátt unnið af fólki með þekkingu á afleiðingum svona mála á líf fólks eftir svona dvöl, Breytingar á upphæð bóta, auðvitað ættu bætur að miðast við sömu upphæð og áður verðbætta til þess að jafnræðis sé gætt en ekki lækkaðar um ca 6 milljónir að raunvirði, bara þessi þáttur er þvílík niðurlæging fyrir okkur börnin sem þarna voru og höfum við verið niðurlægð nóg Annað er að á fundi með Dómsmálaráðherra var rætt um að hann beitti sér fyrir hlutum eins og aðgengi okkar sem vildum að sérfræðiþjónstu við hæfi til að takast á við það sem þessi dvöl olli okkur, ekkert er um það í frumvarpinu Einnig er auðvitað galið að börn og aðstandendur þeirra sem látnir eru verði nánst alfarið hafðir útundan algjörlega í bága við það sem áður hefur verið Það er þó einna alvarlegast að fólk þurfi að fara að kafa ofan í fortíðna, og þann sársauka sem þar er, mögulega með alvarlegum afleiðingur því þannig vinna þyrfti ef vel er að gáð að fara fram undir handleiðslu sérfræðings vona að þetta plagg verði tekið til alvarlegrar skoðunar við gerð þessa frumvarps mbk Steinar Immanúel Sörensson

  • #3Guðríður Björk Magnúsdóttir
    Langflestir plumaðu sig aldrei vegna meðferðar á vöggustofu Hlíðarenda og finnast þeir ekki getað samsamað sig við aðra, finnast annað fólk ekki vera af sömu tegund ,heldur einhverjar dýrategund sem ég átta mig ekki á, 3 milljónir fyrir að eyðileggja líf þessara barna finnst mér vera skömm Þetta er sannarlega skref aftur á bak alla leið til þeirra tíma sem börn,gamalmenni og fátæklingar voru verðlaus með öllu nema ef hægt var að nota það við vinnu. Þetta er engin framkoma við þá sem vorum sett á vöggustofu án þess að við gætum rönd við reist svona lítil saklaus börn og hvítvoðungar. Mö… Lesa alla

    Langflestir plumaðu sig aldrei vegna meðferðar á vöggustofu Hlíðarenda og finnast þeir ekki getað samsamað sig við aðra, finnast annað fólk ekki vera af sömu tegund ,heldur einhverjar dýrategund sem ég átta mig ekki á, 3 milljónir fyrir að eyðileggja líf þessara barna finnst mér vera skömm Þetta er sannarlega skref aftur á bak alla leið til þeirra tíma sem börn,gamalmenni og fátæklingar voru verðlaus með öllu nema ef hægt var að nota það við vinnu. Þetta er engin framkoma við þá sem vorum sett á vöggustofu án þess að við gætum rönd við reist svona lítil saklaus börn og hvítvoðungar. Mörg okkar eru sködduð fyrir lífstíð og margir farnir sem má rekja til erfiðrar æsku sem ungabörn Það er ekki eins og bótafjárhæðir útaf ýmsum stofnunum hafi verið svimandi háar fyrir. Núna eiga 3 millj. að vera hámark, engar bætur til erfingja og girt fyrir alla frekari möguleika á upptöku bótamála og það án vitneskju um hvað gekk á á þeim stofnunum sem hafa ekki verið rannsökuð og afleiðingum af því. Það er mikil afturför ef þetta nær í gegn, ekki bara vegna 50% lækkunar á hámarks bótafjárhæð á sama tíma og allar vísitölur eru að snarhækka heldur líka vegna afnemingar á mögulegum bótum til erfingja þeirra sem hafa fallið frá, sum jafnvel fyrir eigin hendi vegna afleiðinganna og eftir sitja börn og barnabörn réttlaus. Vona að þetta frumvarp fái ekki ssmþykki

  • #9Árni Haukdal Kristjánsson
    Þetta frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, er klætt í þann búning og auglýst að það sé til bóta. Tekið er undir að lögin muni ná utan um það fólk sem varð fyrir skaða vegna ofbeldis eða misréttis á smærri vistheimilum en hefur hingað til lent á milli stafs og hurðar. Einnig er tekið undir að til bóta er að löggjöfin muni veita rýmri tímamörk en núverandi löggjöf sem nær einungis til brota sem framin voru til 1. febrúar árið 1993. Þar með er allt jákvætt í frumvarpinu upptalið því önnur atriði eru afturför og í raun ískaldar kveðjur til vistheimilabarna. Höfundar frumvarpsins skáka… Lesa alla

    Þetta frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, er klætt í þann búning og auglýst að það sé til bóta. Tekið er undir að lögin muni ná utan um það fólk sem varð fyrir skaða vegna ofbeldis eða misréttis á smærri vistheimilum en hefur hingað til lent á milli stafs og hurðar. Einnig er tekið undir að til bóta er að löggjöfin muni veita rýmri tímamörk en núverandi löggjöf sem nær einungis til brota sem framin voru til 1. febrúar árið 1993. Þar með er allt jákvætt í frumvarpinu upptalið því önnur atriði eru afturför og í raun ískaldar kveðjur til vistheimilabarna. Höfundar frumvarpsins skáka í skjóli þess að fyrirkomulagið sé með líkum hætti í Noregi. Þó að skapalónið sé ættað frá frændum vorum í Noregi þá er ekki þar með sagt að það sé til fyrirmyndar. Öðru nær eins og athugasemdir sem hér fylgja bera með sér. Það má nefna í þessu sambandi að bætur í Noregi eru mun hærri en lagt er til í frumvarpinu. „Ekki eru greiddar sanngirnisbætur vegna varanlegs skaða einstaklinga sem stafar af athöfnum eða athafnaleysi opinberra aðila og einkaaðila skv. 1. gr. sem tengjast almennum atburðum sem snertu marga. Þar geta fallið undir m.a. náttúruhamfarir, hópslys og farsóttir.“ Þessi efnisgrein er með ólíkindum og dæmir sig í raun sjálf en það er rétt að velta henni aðeins fyrir sér. Þarna er allri ábyrgð af varanlegum skaða, sem börn urðu fyrir á meðan yfirvöld báru ábyrgð á velferð þeirra, varpað frá sér með furðulegum rökum. Það er fáránlegt að leggja að jöfnu skaðlega meðferð á börnum og „náttúruhamfarir, hópslys og farsóttir“ sem enginn ræður við. Afleiðing skaðlegrar meðferðar á börnum er því afgreitt sem hvert annað náttúrulögmál sem enginn ber ábyrgð á. Þetta er snautleg leið til að fría sig ábyrgð svo ekki sé meira sagt. Hafa ber í huga að yfirvöld ákváðu fyrirkomulag á vistheimilum og aðhöfðust ekki, jafnvel áratugum saman, þrátt fyrir ábendingar og vitneskju um skaðlega starfshætti. Þetta hefur verið staðfest í mikilvægum rannsóknum Vistheimilanefndar og þar er ábyrgð yfirvalda óumdeild. Hörmuleg meðferð á vistheimilabörnum var mannanna verk — fólks er starfaði fyrir yfirvöld og í skjóli þeirra. Í skýrslu Vistheimilanefndar er ábyrgð yfirvalda í þessum efnum dregin fram: „Sem fyrr er ljóst að mati nefndarinnar að verulegir annmarkar voru í ýmsum tilvikum á málsmeðferð og ákvörðunartöku stjórnvalda þegar teknar voru ákvarðanir um vistun barna á þessar stofnanir, hvort sem er af hálfu barnaverndarnefnda og fræðsluyfirvalda, og opinberu eftirliti.“ Hingað til hafa opinberar rannsóknir og skýrslur legið til grundvallar ákvörðunum um sanngirnisbætur en skv. frumvarpinu verður grundvallarbreyting þar á: „Í umsókn skulu koma fram helstu ástæður þess að einstaklingur telur sig eiga rétt til sanngirnisbóta samkvæmt lögum þessum. Þá skal umsækjandi, eins og kostur er, leggja fram gögn máli sínu til stuðnings, þar á meðal læknisvottorð og vitnisburði einstaklinga.“ Hafa ber í huga að mörg fyrrum vistheimilabörn hafa ekki uppurð í sér til sækja rétt sinn, jafnvel þó kveðið sé á um einhverja aðstoð. Það blasir við að með þessu fyrirkomulagi munu margir aldrei fá þær bætur sem þeim ber og einhverjar krónur munu sparast í ríkissjóði með því. „Aðstandendur og eftirlifandi ættingjar einstaklinga sem orðið hafa fyrir illri meðferð eða ofbeldi vegna athafna eða athafnaleysis opinberra aðila eða einkaaðila skv. 1. gr. eiga ekki rétt til sanngirnisbóta...“ Þetta ákvæði er sorglegur vitnisburður um sáttavilja og sanngirni stjórnvalda enda er það smánarlegt. Eðli málsins samkvæmt eru fjölmargir úr hópi vistheimilabarna fallnir frá. Sá skaði sem þessi börn urðu fyrir í umsjón yfirvalda var varanlegur og olli því að fjölmörg þeirra misstu fótanna. Stór hluti þessara barna glímdi síðar við slæma líkamlega heilsu, geðraskanir og þá var áfengis- eða fíkniefnaneysla áberandi í þessum hópi vegna tilfinningalegs sársauka sem reynt var að líkna. Þá hafa sjálfsvíg í þessum hópi verið óvenju algeng. Af þessu leiðir að meðalaldur fyrrum vistheimilabarna er mun lægri en almennt gerist og því eru mörg þeirra fallin frá. Ábyrgð yfirvalda á þessum ótímabæru dauðsföllum er óumdeild enda báru þau ábyrgð á velferð barnanna á sama tíma og þau voru eyðilögð. Ég var sjálfur á vistheimilum meira og minna til 16 ára aldurs. Á þeim tíma tíma kynntist ég fjölmörgum börnum sem voru í sömu stöðu. Nokkur þeirra, sérstaklega strákarnir, fóru að týna tölunni strax á unglingsaldri og nú er svo komið að þeir eru flestir látnir. Samkvæmt frumvarpinu skipta hinu látnu engu máli og teljast ekki með enda eiga bætur þeirra að falla dauðar niður. Í því sambandi verður mér hugsað til látinna vina minna, meðal annarra þeirra Hrafns Jökulssonar og Fjölnis Geirs Bragasonar sem börðust fyrir réttlæti fyrir vöggustofubörn. Það er skammarleg lágkúra að greiða ekki bætur látinna til barna þeirra eða eftir atvikum til annarra aðstandenda. Hafa ber í huga að börn og fjölskyldur liðu einnig fyrir þá meðferð sem hinu látnu hlutu í æsku er yfirvöld báru ábyrgð á velferð þeirra. Að stjórnvöld ætli sér að spara ríkissjóði óverulegar fjárhæðir með því svipta hina látnu réttmætum bótum talar sínu máli um sanngirni og sáttavilja stjórnvalda. Þessu smánarlega ákvæði verður að breyta og ég trúi ekki öðru en að höfundar frumvarpsins sjái sóma sinn í því að gera það skilyrðislaust. Í dag eru í gildi lög um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum fyrir börn. Kemur þar fram að bætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en sex milljónir króna en hámarkið breytist á hverju ári miðað við vísitölu neysluverðs. Samkvæmt frumvarpinu á að lækka þessa upphæð um helming eða í þrjár milljónir króna. Venjan hefur verið sú að greiða vistheimilabörnum hlutfallsbætur miðað við þann tíma sem þau voru vistuð á stofnunum. Ef hámarksbætur verða þrjár milljónir kr. þá blasir við að flestir munu fá sanngirnisbætur sem nemur aðeins einum til þremur meðalmánaðarlaunum. „Sanngirnisbætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en þrjár millj. kr. enda er þeim ekki ætlað að bæta fjárhagslegt tjón einstaklinga að fullu.“ Það er auðvitað rétt að það tjón sem vistheimilabörn urðu fyrir, hvort heldur fjárhagslegt eða annað í víðum skilningi, verður aldrei bætt sama hvað krónutalan yrði há. En að lækka hámark sanngirnisbóta úr sex milljónum kr. í þrjár milljónir kr. er skammarlegt. Í því felst helmingi minni sanngirni í garð þeirra vistheimilabarna sem verða ofurseld þessum lögum. „Þá er sett hámark á fjárhæð sanngirnisbóta sem endurspeglar að ekki er um að ræða fullnaðarbætur vegna liðinna athafna eða athafnaleysis opinberra aðila eða einkaaðila sem fela einkum í sér viðurkenningu á misgjörð opinberra aðila og einkaaðila.“ Þetta endurspeglar helmingi minni viðurkenningu á misgjörðum opinberra aðila og einkaaðila í garð þeirra vistheimilabarna sem verða ofurseld þessum lögum. Síðan segir „svo rétt sé að veita viðkomandi lágmarksbætur til viðurkenningar á misgjörð sem getur hjálpað þeim sem fyrir verða að sættast við orðinn hlut og ná þeim bata sem mögulegur er miðað við aðstæður.“ Sem sagt þá á að hjálpa fyrrum vistheimilabörnum að sætta sig við orðinn hlut, allan skaðann, og ná bata fyrir helmingi lægri upphæð en áður. Ég bið höfunda frumvarpsins um að hafa í huga hvaða skilaboð er verið senda með slíkri gjaldfellingu á þeim skaða sem yfirvöld ollu vistheimilabörnum. „Þannig verði almennt horfið frá þeim einstöku, umfangsmiklu og tímafreku rannsóknum sem hafa hingað til verið grundvöllur greiðslu sanngirnisbóta og þess í stað mælt fyrir um almennan og um leið einstaklingsbundinn farveg fyrir slík mál.“ Þetta ákvæði er mesta afturförin í frumvarpinu og ber með sér algjört skilningsleysi á mikilvægi þess að rannsaka söguna — gera upp fortíðina. Með því móti má læra af sögunni enda hefur hún tilhneigingu til að endurtaka sig. Því miður eru enn að koma upp ljót mál í tengslum við vistun barna og skv. þessu ákvæði munu þau vistheimilamál sem koma upp í framtíðinni liggja í þagnargildi. Hvaða skilaboð felast í því að hætta eigi að rannsaka vistheimili? Í mínum huga felast í þeim að misgjörðir ábyrgra aðila gagnvart vistheimilabörnum skipta ekki lengur eins miklu máli. Að sama skapi skiptir sú sorgarsaga ekki nógu miklu máli til að vera sögð. Vistheimilanefnd var ljóst mikilvægi þess að rannsaka áfram illa meðferð á vistheimilabörnum. Í niðurlagi þriðju áfangaskýrslu nefndarinnar segir: „Með allt þetta í huga telur vistheimilanefnd að sannfærandi rök standi til þess að til framtíðar sé leitast við að viðhalda fyrirkomulagi sem geri það kleift að kanna frásagnir af því tagi sem þegar hafa komið fram, sbr. kafli 1.1 hér að framan, um að börn hafi sætt illri meðferð og ofbeldi á öðrum stofnunum og heimilum en þeim sem þegar hafa hlotið umfjöllun af hálfu vistheimilanefndar.“ Jafnframt benti nefndin á mikilvægi þess „hvaða lærdóm mætti draga af niðurstöðum könnunar og gera tillögur sem ætlað væri að koma í veg fyrir að brotinn verði réttur á börnum í opinberri forsjá.“ Til þess að svo megi verða þá er bráðnauðsynlegt að rannsaka vistheimili áfram með sama hætti og verið hefur. Ekki liggur ljóst fyrir hver sé raunverulegur hvati að þeirri ákvörðun að hætta rannsóknum á vistheimilum. Þó má greinilega sjá að sparnaður spilar þar inn í: „Þó má búast við að þar sem gert er ráð fyrir að hámarksbótafjárhæð sé óveruleg og þar sem ekki verður í sama mæli þörf á stórum, tímafrekum og fjárhagslega dýrum rannsóknum varðandi tiltekna hópa, verði kostnaður í lágmarki. Þannig er gert ráð fyrir að hámarksbætur til einstaklinga séu þrjár millj. kr. en í mörgum tilvikum verður um lægri bótafjárhæð að ræða að álitum.“ Fátt ef nokkuð segir einmitt meira um samfélag en meðferð þess á börnum. Skýrslur Vistheimilanefndar afhjúpuðu skelfilega meðferð á vistheimilabörnum og þar með samfélagið á hverjum tíma sem lét sér misgjörðirnar í léttu rúmi liggja. Nú bendir allt til þess að þetta frumvarp muni girða fyrir opinberar rannsóknir á vistheimilum. Því munu ýmis konar misgjörðir á börnum sem hafa viðgengist aldrei verða afhjúpaðar og því ómögulegt að læra af þeim. Sem fyrr segir þá er þetta frumvarp að mestu leyti afturför og sum ákvæði í því eru skammarleg. Bætur verða smánarlegar en þær skipta auðvitað miklu máli þar sem í þeim felst viðurkenning og sættir. En svo lágar bætur eru niðurlægjandi enda munu þær almennt aðeins nema einum til þremur meðalmánaðarlaunum. Að svipta börn og aðstandendur látinna einstaklinga réttmætum bótum er lítilmannleg leið til að spara ríkissjóði einhverjar krónur — þetta er í raun óviðfelldið og ljótt ákvæði. Mikilvægast er að rannsaka áfram og afhjúpa óboðlega meðferð á vistheimilisbörnum samfélaginu til heilla. Ég trúi ekki öðru en að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hafi sómakennd sem leiði til þess að hún hafi frumkvæði að því að leiðrétta frumvarpið og sýna þar með raunverulegan sáttavilja og sanngirni.

  • #10Sturla Einarsson

    Ég vil mótmæla því að bætur til hinna látnu falli niður því afkomendur þeirra hafa einnig hlotið miska sem ríkið/sveitafélög bera ábyrgð á, það sýnir skilningsleysi á málinu að halda öðru fram. Ég mótmæli því einnig að hámarksbætur verði 3 000 000, svona lágar bætur (mánaðarlaun ráðherra) eru yfirlýsing um að líf þessa fólks sé lítils virði og að ríki og sveitafélög beri í raun enga ábyrgð.

  • #11Theódóra Kristjánsdóttir
    Ég get ekki orða bundist vegna þessa frumvarps og ekki trúi ég því að hinn almenni þingmaður á Alþingi Íslendinga samþykki frumvarpið. Síst af öllu trúi ég því að þetta frumvarp eins og það lítur út núna, sé yfirleitt sett fram. Það er hins vegar orðin staðreynd og við því þarf að bregðast. Það er margt sem stingur í augu, til dæmis það að; "Ekki eru greiddar sanngirnisbætur vegna varanlegs skaða einstaklinga sem stafar af athöfnum eða athafnaleysi opinberra aðila og einkaaðila skv. 1. gr. sem tengjast almennum atburðum sem snertu marga. Þar geta fallið undir m.a. náttúruhamfarir, hópslys og… Lesa alla

    Ég get ekki orða bundist vegna þessa frumvarps og ekki trúi ég því að hinn almenni þingmaður á Alþingi Íslendinga samþykki frumvarpið. Síst af öllu trúi ég því að þetta frumvarp eins og það lítur út núna, sé yfirleitt sett fram. Það er hins vegar orðin staðreynd og við því þarf að bregðast. Það er margt sem stingur í augu, til dæmis það að; "Ekki eru greiddar sanngirnisbætur vegna varanlegs skaða einstaklinga sem stafar af athöfnum eða athafnaleysi opinberra aðila og einkaaðila skv. 1. gr. sem tengjast almennum atburðum sem snertu marga. Þar geta fallið undir m.a. náttúruhamfarir, hópslys og farsóttir". Það er ljóst að samkvæmt þessu er varnarlausum börnum fyrri tíma er ekki gert hátt undir höfði og það má spyrja sig að því hvort meðferð barna á umræddu tímabili á vistheimilum ríkis og bæja, hafi hreinlega verið "hópslys" af þeirra hálfu. Í dag eru mörg hundruð manns enn að glíma við afleiðingar af veru sinni á vistheimilinum/vöggustofum. Undirrituð er ein þeirra. Rannsókn á starfssemi vistheimila/vöggustofa er nauðsynleg til að fá heildarmynd af því sem gerðist og því sem fór úrskeiðis. Einnig er rannsókn á afdrifum þeirra sem á vistheimilunum/vöggustofum dvöldu ekki síður nauðsynleg. Sú rannsókn er nauðsynleg til að draga fram í dagsljósið þær afleiðingar sem dvöl á vistheimili/vöggustofum hafði á börnin eftir að þau urðu fullorðin. Sanngirnisbætur sem lagðar eru til í umræddu frumvarpi verða aldrei annað en hjóm eitt á meðan niðurstöður rannsóknar á afdrifum barnanna og afleiðingum af dvölinni liggur ekki fyrir. Mér er ómögulegt að skilja lækkun sanngirnisbóta frá því sem núgildandi lög kveða á um. Mér er líka ómögulegt að skilja að höfundar þessa frumvarps ætli sér ekki að standa í lappirnar og sigla þessu máli heilu í höfn. Forsendur þess að lækka sanngirnisbætur um helming standast ekki að mínu mati. Ég sé ekki að hægt sé að gjaldfella afleiðingarnar með þessum hætti án þess að það sé rannsaka eitt né neitt. Ég vil trúa því að rannsókn leiði í ljós sannleikann og opni augu þeirra sem eru með þau lokuð núna. Þetta eru kaldar kveðjur til alls þess fólks sem hefur burðast með afleiðingar af dvöl sinni á vistheimilum/vöggustofum í gegnum lífið. Ég leyfi mér að segja að frá Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, þá átti ég ekki von því að svona liti frumvarpið út þegar það liti dagsins ljós.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    17 ræður · 1 klst.
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. nóvember 2023
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
481Stjórnarfrumvarp31. okt. 2023Katrín JakobsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur9. nóvember 2023 kl. 14:13
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd9. nóvember 2023 kl. 14:13
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

17 ræður · 1 klst.
  • 1. umræða: 17 ræður · 6 ræðumenn · 1 klst.
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokka829 mín
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins315 mín
Jódís SkúladóttirUtan þingflokka15 mín
Halldóra MogensenUtan þingflokka24 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur14 mín
Gísli Rafn ÓlafssonUtan þingflokka23 mín

Umsagnir og erindi

11 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. nóv. 2023, frestur 29. nóv. 2023.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Holberg MássonumsögnOpna PDF
Sigrún MagnúsdóttirumsögnOpna PDF
ForsætisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Rótin - félag um málefni kvennaumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Árni H. Kristjánsson og Viðar Eggertsson,umsögnOpna PDF
Rósa Ólöf ÓlafíudóttirumsögnOpna PDF
Ragnheiður B. Guðmundsdóttir o.fl.athugasemdOpna PDF
Stefanía Helga SkúladóttirumsögnOpna PDF
Árni H. KristjánssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.