Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-187/2023 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993 (framleiðendafélög)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum nr. 99/1993 í því skyni að styrkja stöðu og samtakamátt frumframleiðenda búvöru og ýta undir samvinnu og hagræðingu í vinnslu og markaðssetningu

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Með frumvarpinu er lagt til að fyrirtækjum sem eru í eigu eða undir meirihlutastjórn frumframleiðenda verði heimilt að eiga með sér samstarf um afmarkaða þætti líkt og tíðkast í nágrannalöndum. Frumvarpið er í samræmi við áherslur sem birtast í landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, sem samþykkt var á Alþingi í júní 2023. Í lið 6.2 í stefnunni kemur fram að tryggja skuli með löggjöf að innlendir framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm til hagræðingar og samstarfs en framleiðendur í nágrannalöndunum þar sem starfað er samkvæmt EES- löggjöf. Við samningu frumvarpsins var einkum horft til reglna ESB á þessu sviði. Frumvarpið miðar að því að styrkja stöðu framleiðenda búvara og skapa tækifæri til aukinnar samvinnu og verðmætasköpunar.

S-187/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 4. okt. 2023 – 17. okt. 2023· 9 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993 (framleiðendafélög)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum nr. 99/1993 í því skyni að styrkja stöðu og samtakamátt frumframleiðenda búvöru og ýta undir samvinnu og hagræðingu í vinnslu og markaðssetningu

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-187/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 505)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-187/2023: Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993 (framleiðendafélög) · Alviti