Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-168/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvörp til laga um Loftslagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun

Frumvörpin kveða á um tvær kröftugar og faglega öflugar stofnanir sem verði vel í stakk búnar til að takast á við hinar stóru áskoranir í umhverfismálum til framtíðar

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Frumvarp til laga um Loftslagsstofnun fjallar um samruna Orkustofnunar og þess hluta starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að umhverfis- og loftslagsmálum. Frumvarp til laga um Náttúruverndar- og minjastofnun kveður hins vegar á um samruna náttúruverndarhluta Umhverfisstofnunar, Minjastofnunar, Vatnajökulsþjóðgarðs og Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Gert er ráð fyrir að til verði tvær kröftugar og faglega öflugar stofnanir sem verði vel í stakk búnar til að takast á við hinar stóru áskoranir í umhverfismálum. Frumvörpin eru hluti af stofnanabreytingum þar sem áformað er að til verði þrjár stofnanir í stað átta. Stefnt er að því að einfalda stofnanakerfið, bæta þjónustu, efla þekkingar- og lærdómssamfélag, skapa áhugaverða vinnustaði, fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu, nýta betur þekkingu, innviði og gögn. Einnig að auka sveigjanleika og samþættingu stefnumótunar, einfalda áætlanagerð og auka rekstrarhagkvæmn og ekki síst að tryggja aðkomu nærsamfélaga að þjóðgörðum og friðlýstum svæðum. Ekki er ráðgert að gera breytingar á lögbundnum verkefnum. Gert er ráð fyrir að ný Loftslagsstofnun hafi fyrst og fremst með höndum stjórnsýslu og eftirlit, m.a. á sviði loftslagsmála, orkuskipta og orkunýtni, loftgæða, sjálfbærrar auðlindanotkunar, hringrásarhagkerfis, mengunarvarna, raforkumála og rammaáætlunar. Starfssvið Náttúruverndar- og minjastofnunar er náttúruvernd og sjálfbær þróun, menningarminjar, friðlýst svæði, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnun. Áhersla er lögð á að efla og viðhalda því skipulagi sem skilað hefur góðum árangri innan þjóðgarða. Gert er ráð fyrir að svæðisstjórnir fari með umsjón landfræðilega afmarkaðra svæða. Þannig starfi Vatnajökulsþjóðgarður, Þingvallaþjóðgarður og Snæfellsþjóðgarður óslitið áfram, en stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og Þingvallanefnd verði ekki lengur stjórnir yfir sjálfstæðum ríkisstofnunum. Þá fái þjóðgarðsráð Snæfellsjökulsþjóðgarðs aukin áhrif hvað varðar stefnumótun þjóðgarðsins. Gert er ráð fyrir að Breiðafjarðarnefnd starfi áfram og að Vatnajökulsþjóðgarði verði, sökum stærðar, áfram skipt í fjögur rekstrarsvæði með svæðisráðum. Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hafi heildarumsjón með þjóðgarðinum öllum. Svæðisstjórnirnar munu hafa það hlutverk að móta stefnu fyrir viðkomandi svæði í gegnum stjórnunar- og verndaráætlun og aðrar stefnumótandi áætlanir. Þar sem svæðisstjórnirnar verði ekki lengur stjórnir yfir sjálfstæðum ríkisstofnunum muni þær ekki hafa það hlutverk að fjalla sérstaklega um rekstur stofnunarinnar í heild sinni,en komi að vinnu við gerð fjárhagsáætlana svæða og veita stjórnendum ráðgjöf um áherslur í starfi hvers þjóðgarðs. Útivistarsamtök og félagasamtök eru í dag með áheyrnaraðild að fundum stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs auk þess sem 1 stjórnarmaður er tilnefndur að umhverfisverndarsamtökum. Lagt er til að í svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs muni 3 fulltrúar heildarsamtaka á sviði náttúruverndar, útivistar og ferðaþjónustu eiga áheyrnafulltrúa. Tillagan byggir á því að rétt sé að fulltrúar hagsmunasamtaka gegni fyrst og fremst ráðgjafarhlutverki en sé ekki ætlað að taka ákvarðanir sem lúta að stjórnun þjóðgarðs. Mikilvægast sé að rödd hagsmunasamtaka heyrist á þessum vettvangi og að tillit sé tekið til sjónarmiða þeirra við ákvarðanatöku. Hvað varðar ákvæði um þjóðgarðsráð í náttúruverndarlögum, þá er gert ráð fyrir að skipan þeirra verði óbreytt en að hlutverkið verði útvíkkað. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur ákveðna sérstöðu þar sem hann er friðlýstur helgistaður allra Íslendinga og undir stjórn Þingvallanefndar sem í sitja sjö alþingismenn kosnir af Alþingi. Gert er gert ráð fyrir óbreyttri skipan nefndarinnar. Vatnajökulsþjóðgarði er í dag skipt í fjögur rekstrarsvæði, hvert með sitt svæðisráð. Í ráðunum sitja 6 fulltrúar, 3 tilnefndir af sveitastjórnum viðkomandi rekstrarsvæðis, 1 tilnefndur af ferðamálasamtökum á svæðinu, 1 tilnefndur af útivistarsamtökum og 1 tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum. Formaður svæðisráða kemur úr hópi sveitarstjórnarmanna. Í frumvarpinu er lagt til að þetta fyrirkomulag verði óbreytt. Lagt er til að Loftlagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun taki til starfa 1. janúar 2025. Allar uppástungur um nöfn nýrra stofnana eru vel þegnar og verða teknar til skoðunar ásamt öðrum ábendingum í umsögnum.

S-168/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 20. sep. 2023 – 4. okt. 2023· 23 umsagnir

Frumvörp til laga um Loftslagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun

Frumvörpin kveða á um tvær kröftugar og faglega öflugar stofnanir sem verði vel í stakk búnar til að takast á við hinar stóru áskoranir í umhverfismálum til framtíðar

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-168/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 23 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 831)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (23)
  • #1Skagafjörður
    Á 63. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. september 2023 var eftirfarandi bókað um mál 168/2023 til samráðs - Frumvörp til laga um Loftlagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun. Byggðarráð Skagafjarðar er fylgjandi sameiningum stofnana ef þær leiða til styrkingar starfsemi og stjórnsýslu þeirra, sé sameiningin gerð í sátt við starfsfólk viðkomandi stofnana. Mikill ávinningur er ef sameiningunni fylgir efling starfsemi þeirra á landsbyggðinni, svo sem lagt er upp með í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Íslands, til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu og mark… Lesa alla

    Á 63. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. september 2023 var eftirfarandi bókað um mál 168/2023 til samráðs - Frumvörp til laga um Loftlagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun. Byggðarráð Skagafjarðar er fylgjandi sameiningum stofnana ef þær leiða til styrkingar starfsemi og stjórnsýslu þeirra, sé sameiningin gerð í sátt við starfsfólk viðkomandi stofnana. Mikill ávinningur er ef sameiningunni fylgir efling starfsemi þeirra á landsbyggðinni, svo sem lagt er upp með í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Íslands, til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu og markmið um hlutfall opinberra starfa á landsbyggðinni. Komi til sameiningar Orkustofnunar og þess hluta starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að umhverfis- og loftslagsmálum annars vegar og samruna náttúruverndarhluta Umhverfisstofnunar, Minjastofnunar, Vatnajökulsþjóðgarðs og Þjóðgarðsins á Þingvöllum hins vegar, áréttar byggðarráð Skagafjarðar framangreind stefnumið ríkisstjórnar Íslands og minnir um leið á góð húsakynni Minjastofnunar á Sauðárkróki þar sem hægðarleikur er að fjölga starfsfólki og efla starfsemina enn frekar. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins um málið. Bestu kveðjur.

  • #3Helgi Jensson

    Sjá viðhengi

  • #4Sævar Þór Halldórsson

    Viðhengt er umsögn mín um frumvarp til Náttúruverndar- og minjastofnunar.

  • #5Félag fornleifafræðinga

    Sjá viðhengi, Kærar kveðjur, Gylfi Helgason, f.h. Félags fornleif.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-168/2023: Frumvörp til laga um Loftslagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun · Alviti