Áform um breytingar á réttarfarslöggjöf (stafræn miðlun gagna og stafræn birting)
Áformað er að breyta réttarfarslöggjöf á þann hátt að hún standi því ekki í vegi að unnt sé að miðla gögnum stafrænt.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-164/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 25. september 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (29. september 2026)
Unnið var frumvarp upp úr áformunum sem lagt var fram á Alþingi. Frumvarpið varð að lögum nr. 53/2024.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Svavar Kjarrval Lúthersson
Í 1. lið E-kafla samráðsskjalsins þarf að huga að Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), einkum 13. gr. og 21. gr. Ráðuneytið ætti að meta áformin í samræmi við þær greinar samningsins og aðrar sem við gætu átt, meðal annars svo að upplýsingarnar sjálfar og framsetning sé í samræmi við kröfur SRFF ásamt tilkynningar um tilvist skjalsins í pósthólfinu. Í frekara samráði um áformin ætti ráðuneytið að ráðfæra sig við hagsmunasamtök fatlaðs fólks, sbr. skyldur téðs samnings. Hvað leiðirnar í kafla C snertir tel ég einum of langt gengið að fara (strax) í a-leið. Ef krafist… Lesa alla
Í 1. lið E-kafla samráðsskjalsins þarf að huga að Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), einkum 13. gr. og 21. gr. Ráðuneytið ætti að meta áformin í samræmi við þær greinar samningsins og aðrar sem við gætu átt, meðal annars svo að upplýsingarnar sjálfar og framsetning sé í samræmi við kröfur SRFF ásamt tilkynningar um tilvist skjalsins í pósthólfinu. Í frekara samráði um áformin ætti ráðuneytið að ráðfæra sig við hagsmunasamtök fatlaðs fólks, sbr. skyldur téðs samnings. Hvað leiðirnar í kafla C snertir tel ég einum of langt gengið að fara (strax) í a-leið. Ef krafist yrði rafrænna skilríkja gæti komið sú staða að einhver sem ekki er með rafræn skilríki eða hefur ekki aðgang að þeim, yrði talinn að lögum hafa séð gagnið þegar það var ómögulegt að gera það tímanlega fyrir þinghald (eða yfir höfuð). Ákjósanlegast væri að fara c-leiðina á meðan verið er að koma kerfinu í gang og gera svo takmarkaðar tilraunir með b-leiðina og veita réttarkerfinu tækifæri til þess að leysa alls konar álitamál sem gætu verið færð fram fyrir rétti um stjórnskipulegt lögmæti slíkrar birtingar. Hér má einnig íhuga að fara b-leiðina í málum þar sem reynt gæti verið á kröfur um endurupptöku en hagsmunir minniháttar, og sjá hvort og hvernig þær yrðu afgreiddar í málskoti.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.