Afnám banns við heimabruggun á áfengi til einkaneyslu
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á áfengislögum nr. 75/1998. Breytingarnar munu fela í sér afnám á banni við framleiðslu áfengis til einkaneyslu með gerjun (heimabrugg).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-10/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
- #1Valberg Már Öfjörð
Heimabrugg hefur fylgt okkur mannskeppnuni í óra tíma og er partur af matarmenningu. Heimabrugg er stundað þrátt fyrir að það sé ólöglegt og hrein fásinna að halda að það muni hverfa þó það yrði gert ólöglegt með öllu. Það hafa sprottið upp a.m.k 3 fyrirtæki hér á landi sem sérhæfa sig í vörum tengt heimabruggi og er því lífleg atvinnustarfsemi á bak við þetta, það þykir því pínu kaldhæðnislegt að slíkar verslanir geti stundað það að selja augljóslega tæki og hráefni ætlað til heimabruggs en á sama tíma er það ólöglegt. Eins og kemur fram í lýsingunni á þessari tillögu, þá er líflegt félagasta… Lesa alla
Heimabrugg hefur fylgt okkur mannskeppnuni í óra tíma og er partur af matarmenningu. Heimabrugg er stundað þrátt fyrir að það sé ólöglegt og hrein fásinna að halda að það muni hverfa þó það yrði gert ólöglegt með öllu. Það hafa sprottið upp a.m.k 3 fyrirtæki hér á landi sem sérhæfa sig í vörum tengt heimabruggi og er því lífleg atvinnustarfsemi á bak við þetta, það þykir því pínu kaldhæðnislegt að slíkar verslanir geti stundað það að selja augljóslega tæki og hráefni ætlað til heimabruggs en á sama tíma er það ólöglegt. Eins og kemur fram í lýsingunni á þessari tillögu, þá er líflegt félagastarf í kringum heimabruggun og hefur verið það í mörg ár. Það er því löngu tímabært að breyta þessari löggjöf og líta e.t.v til landana í kringum okkur sem leyfa slíkt og skoða um leið hvernig slíkt hefur þróast, hvort það hafi verið til hins verra eða hvort nokkuð hafi breyst yfir höfuð. Ég styð þetta heils hugar, enda engin ástæða til að ætla að þetta fari úr böndunum þó það yrði gert löglegt. Það má svo deila um hvort og hverjar takmarkanir yrðu, t.d 100 lítrar á manneskju sem hefur náð lögaldri á ári og ekki leyft að eima. Hvernig því verður háttað, það má finna út eftir því sem þetta þróast.
- #2Hrafnkell Freyr Magnússon
Undirritaður rekur verslun þar sem ég sel hráefni og búnað til framleiðslu á bjór. Stór hluti viðskiptavina minna eru heimabruggarar. Verslun mín og þekking er sérsniðin að heimagerðum bjór og því læt ég duga að ræða aðeins heimagerðan bjór en ekki annað heimagert áfengi. Heimabruggun á bjór er áhugamál sem hundruðir stunda hér á landi, sumir í leynd af ótta við þá staðreynd að heimabrugg er ólöglegt á Íslandi með ríflegum refsiramma. Bjórgerð í heimahúsum snýst ekki um framleiðslu á ódýru áfengi. Bjórgerð er margslungið áhugamál þar sjálfráða einstaklingar leggja alúð og metnað í eigin han… Lesa alla
Undirritaður rekur verslun þar sem ég sel hráefni og búnað til framleiðslu á bjór. Stór hluti viðskiptavina minna eru heimabruggarar. Verslun mín og þekking er sérsniðin að heimagerðum bjór og því læt ég duga að ræða aðeins heimagerðan bjór en ekki annað heimagert áfengi. Heimabruggun á bjór er áhugamál sem hundruðir stunda hér á landi, sumir í leynd af ótta við þá staðreynd að heimabrugg er ólöglegt á Íslandi með ríflegum refsiramma. Bjórgerð í heimahúsum snýst ekki um framleiðslu á ódýru áfengi. Bjórgerð er margslungið áhugamál þar sjálfráða einstaklingar leggja alúð og metnað í eigin handverk þar sem saman kemur hugmyndaauðgi, þekking og reynsla. Mikill metnaður er lagður í gæði umfram magn og hafa keppnir um besta heimagerða bjórinn verið haldnar undanfarin ár af fágun, félagi áhugamanna um gerjun. Því hefur oft verið borið fyrir að það hafi enginn haft áhuga á að breyta lögunum því þetta virki ágætlega eins og er; lögunum sé ekki framfylgt og því taki því ekki að breyta þeim. Núna finnst mér kominn tími til að gera áhugamál margra íslendinga löglegt og því styð ég þetta frumvarp heilshugar. Fyrir hönd Hlekkir sf / Brew.is Hrafnkell Freyr Magnússon Eigandi
- #3Arnór Vilhjálmsson
https://giphy.com/gifs/starwars-star-wars-episode-3-3o84sw9CmwYpAnRRni?utm_source=media-link&utm_medium=landing&utm_campaign=Media%20Links&utm_term=
- #4Oddný Þorvaldsdóttir
Hver eru rökin fyrir því að leyfa heimabruggun en banna framleiðslu á áfengi til einkaneyslu með eimingu? Mér þykir alveg ótækt að breyta einungis hluta af lögum án þess að leggja fram réttlætingu fyrir því sem haldið er fyrri mynd, sérstaklega þarsem ýmsir hagsmunaðilar hafa komið fram opinberlega og talað fyrir væntanlegri breytingu á heimabruggi án eimingar. Rökin fyrir breytingunni að lögin hafa lítið sem ekkert forvarnargildi gildir ekki endilega einungis um heimabrugg án eimingar, hefur það verið kannað hvort slíkt gildi einnig um heimabrugg án eimingar? Ef lögin eru ekki endurskoðun í h… Lesa alla
Hver eru rökin fyrir því að leyfa heimabruggun en banna framleiðslu á áfengi til einkaneyslu með eimingu? Mér þykir alveg ótækt að breyta einungis hluta af lögum án þess að leggja fram réttlætingu fyrir því sem haldið er fyrri mynd, sérstaklega þarsem ýmsir hagsmunaðilar hafa komið fram opinberlega og talað fyrir væntanlegri breytingu á heimabruggi án eimingar. Rökin fyrir breytingunni að lögin hafa lítið sem ekkert forvarnargildi gildir ekki endilega einungis um heimabrugg án eimingar, hefur það verið kannað hvort slíkt gildi einnig um heimabrugg án eimingar? Ef lögin eru ekki endurskoðun í heild sinni og rök færð fyrir því hversvegna sumu skal halda óbreyttu en öðru breyta er erfitt að sjá að breytingin sé ekki geðþóttaákvörðun einhver valdhafa eða hagsmunaðila.
- #5Björn Snorri Rosdahl
Undirritaður hefur stundað bjórbrugg um árabil og er starfsmaður í bruggverslun sem sérhæfir sig í bjórgerð. Bruggun bjórs er skemmtileg, fróðleg og skapandi tómstund eins og hver önnur matargerð. Ég tel að lýðheilsu sé ekki ógnað með lögleiðingu heimabruggunar þar sem flestir sem hana stunda að einhverri alvöru eru meira að sækjast eftir að sinna áhugamáli frekar en endilega áfengi. Þó það skemmi alls ekki fyrir að enda uppi með t.d. svellkaldan skýjaðan IPA eðal bjór í stíl vesturstrandar Bandaríkjanna. Eða belgískan munkabjór sem maður hefur eytt árum í að reyna að láta líkjast Vestwlet… Lesa alla
Undirritaður hefur stundað bjórbrugg um árabil og er starfsmaður í bruggverslun sem sérhæfir sig í bjórgerð. Bruggun bjórs er skemmtileg, fróðleg og skapandi tómstund eins og hver önnur matargerð. Ég tel að lýðheilsu sé ekki ógnað með lögleiðingu heimabruggunar þar sem flestir sem hana stunda að einhverri alvöru eru meira að sækjast eftir að sinna áhugamáli frekar en endilega áfengi. Þó það skemmi alls ekki fyrir að enda uppi með t.d. svellkaldan skýjaðan IPA eðal bjór í stíl vesturstrandar Bandaríkjanna. Eða belgískan munkabjór sem maður hefur eytt árum í að reyna að láta líkjast Vestwleteren 12 sem mest. Óhófleg drykkja passar eiginlega áhugamálinu ekki sérlega vel. Þar með eru þau mótrök allavega eiginlega farin. Samfélag bjórbruggara er skemmtilegt og gefandi og ég hef mikið fundið mitt fólk þar. Þetta er hluti af menningu okkar og ætti ekki að þurfa að stunda undir ólöglegum hatti. Kv. Björn Snorri Rosdahl Malari og grafískur hönnuður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.