Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur)
Áformað er að lögfesta skilyrði um áfasta tappa og lok á einnota drykkjarílátum úr plasti sem sett eru á markað hér á landi frá og með 3. júlí 2024.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-211/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 14. nóvember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 100)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. mars 2025)
Umsagnir sem bárust snúa aðallega að mikilvægi þess að skilgreina með skýrum hætti hvaða plastvörur munu falla undir ákvæði um áfasta tappa og lok og hvernig eftirliti og eftirfylgni með ákvæðinu skuli háttað, auk þess sem vakin var athygli á villu í opinberri þýðingu á EES-gerðinni sem um ræðir. Við gerð frumvarps til laga (sjá mál nr. S-5/2024) voru þessar ábendingar hafðar til hliðsjónar. Íslensk þýðing EES-gerðarinnar hefur jafnframt verið leiðrétt og birt í samræmi við ábendingu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Endurvinnslan hf
Umsögn um áform um breytingar á lögum 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur) Að mati Endurvinnslunnar er ljóst að það þarf að setja þetta ákvæði í lög enda sett samkvæmt tilskipun ESB 219/904. Skilakerfi sem eru starfrækt í Evrópu gerðu á sínum tíma athugasemd við þetta ákvæði. Ýmislegt var þar nefnt eins og það að í skilakerfum er almennt um og yfir 90% skil á plastflöskum og tappar fylgja nánast alltaf með. Ekki var tekið tillit til athugasemda skilakerfa og því telur Endurvinnslan rétt að taka þetta ákvæði upp eins og tilskipuni… Lesa alla
Umsögn um áform um breytingar á lögum 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur) Að mati Endurvinnslunnar er ljóst að það þarf að setja þetta ákvæði í lög enda sett samkvæmt tilskipun ESB 219/904. Skilakerfi sem eru starfrækt í Evrópu gerðu á sínum tíma athugasemd við þetta ákvæði. Ýmislegt var þar nefnt eins og það að í skilakerfum er almennt um og yfir 90% skil á plastflöskum og tappar fylgja nánast alltaf með. Ekki var tekið tillit til athugasemda skilakerfa og því telur Endurvinnslan rétt að taka þetta ákvæði upp eins og tilskipunin gerir ráð fyrir. Að mati Endurvinnslunnar þarf að ákveða hvað á að gera ef að innflytjandi eða innlendur framleiðandi setur á markað einnota drykkjarumbúð sem ekki er með áfastan plast tappa á ílátinu. Hætt er við að slíkt komi til m.a. vegna innflutnings frá löndum utan ESB. Endurvinnslan hefur verið að fá til sín einnota plastflöskur frá flestum löndum. Í stað vöruframboðs frá allt að 195 löndum þá eru líkur á því að aðeins ESB lönd muni fara eftir þessu ákvæði í sinni framleiðslu til að hlíta þessum reglum. Önnur lönd þurfa a.m.k. að breyta hjá sér þeirra framleiðslu sem að flutt er til ESB/EES landa. Slíkt mun hugsanlega takmarka vöruframboð og mögulega leiða til hærra vöruverðs og minna framboðs. Hvað á að gera í þeim tilfellum sem einnota plastflöskur eru án áfastra tappa og hver á að framfylgja þessu lagaákvæði? Hvar á eftirlitið að vera? Slíkt þarf að vera ljóst. Skilgreina þarf vel hvað er einnota drykkjarumbúð sem inniheldur plast. Á þetta ákvæði t.d. við um tetra pack umbúðir eða skvísur. Þær umbúðir innihalda að hluta plast. Hvað með fæðubótarefni, þykkni, jógúrt, áfengi o.s.frv. Gæta þarf jafnræðis. f.h. Endurvinnslunnar hf. Helgi Lárusson Framkvæmdastjóri
- #2Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.