Breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga
Markmið fyrirhugaðra breytinga er að gera úrræðið um greiðsluaðlögun einstaklinga að heildstæðari lausn en nú er og að málsmeðferð verði skýrari og skilvirkari, til hagsbóta fyrir umsækjendur.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-175/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 27)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2024)
Ráðuneytinu bárust 8 umsagnir um frumvarpið. Unnið var úr þeim og nokkrar breytingar gerðar, sjá nánar í meðfylgjandi samantekt um umsagnir í samráðsgátt. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 1. desember 2023, sjá þingmál 27. Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 23. febrúar 2024, sjá hlekk hér fyrir neðan.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Öryrkjabandalag Íslands
Umsögn ÖBÍ - réttindasamtaka um breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, mál nr. 175/2023
- #2Einar Jónsson
Breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga. Við lánveitingu setur lánveitandi viðmiðanir um greiðslugetu sem lántaki verður að fullnægja. Ef greiðslubyrði lántaka hækkar síðan verulega umfram viðmið lánveitingu vegna ástæðna sem lántaka verður ekki kennt um, s.s. vegna verðbólgu eða tekjutaps vegna atvinnuleysis eða heilsubrests, þá ætti lánveitandi að vera skuldbundin til að skuldbreyta láni þannig að greiðslubyrði lántaka sé innan viðmiðs greiðslugetu hans. Þarna gætu komið til afskriftir hluta lána eftir aðstæðum. Samfélagsleg ábyrgð felur í sér að lánveitandi ber ein… Lesa alla
Breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga. Við lánveitingu setur lánveitandi viðmiðanir um greiðslugetu sem lántaki verður að fullnægja. Ef greiðslubyrði lántaka hækkar síðan verulega umfram viðmið lánveitingu vegna ástæðna sem lántaka verður ekki kennt um, s.s. vegna verðbólgu eða tekjutaps vegna atvinnuleysis eða heilsubrests, þá ætti lánveitandi að vera skuldbundin til að skuldbreyta láni þannig að greiðslubyrði lántaka sé innan viðmiðs greiðslugetu hans. Þarna gætu komið til afskriftir hluta lána eftir aðstæðum. Samfélagsleg ábyrgð felur í sér að lánveitandi ber einnig áhættu af breytingum einstaklingslána vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
- #3Alþýðusamband Íslands
Þann 16. maí 1994 skilaði nefnd um Greiðsluaðlögun tillögum til þáverandi félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur. Þar var lagt til, að skapað yrði samofið félagslegt og fjárhagslegt úrræði til þess að mæta skuldavanda einstaklinga og fjölskyldna. Lagt var til að slíkt úrræði tæki jöfnum höndum til veðkrafna og annarra krafna og að því mætti m.a. beita þannig, að heimilt væri að fara inn í samningsbundna skilmála veðkrafna innan verðmætis veðsettra eigna með það fyrir augum að gera þær kröfur greiðanlegar með skilmálabreytingum. Frá þeim tíma og fram á árið 2008 voru ítrekað lögð fram lagafr… Lesa alla
Þann 16. maí 1994 skilaði nefnd um Greiðsluaðlögun tillögum til þáverandi félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur. Þar var lagt til, að skapað yrði samofið félagslegt og fjárhagslegt úrræði til þess að mæta skuldavanda einstaklinga og fjölskyldna. Lagt var til að slíkt úrræði tæki jöfnum höndum til veðkrafna og annarra krafna og að því mætti m.a. beita þannig, að heimilt væri að fara inn í samningsbundna skilmála veðkrafna innan verðmætis veðsettra eigna með það fyrir augum að gera þær kröfur greiðanlegar með skilmálabreytingum. Frá þeim tíma og fram á árið 2008 voru ítrekað lögð fram lagafrumvörp um greiðsluaðlögun. Þau frumvörp gerðu ýmist ráð fyrir að greiðsluaðlögun tæki ekki til veðskulda innan verðmætis eigna eða tæki almennt ekki til veðskulda. Það frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi samræmist hvað þetta varðar þeim tillögum sem settar voru fram 1994 og er það fagnaðarefni. Fyrir frumvarpi af þessum toga hefur ASÍ barist um langt skeið og hvetur Alþingi til þess að flýta afgreiðslu þess sem mest má. Fyrirsjáanlegt er, að þeir varnargarðar sem byggðir voru með frestun uppboða og öðrum bráðabirgðaaðgerðum geti brostið í ljósi aukinna vanskila, yfirveðsetningar, hárra vaxta og viðvarandi og hárrar verðbólgu. Nauðsynlegt er að þá séu til staðar virk og sanngjörn úrræði eins og lagt var upp með 1994 og sem að nokkru birtast í þessu lagafrumvarpi. Magnús M. Norðdahl, hrl.
- #4Persónuvernd
Sjá umsókn Persónuverndar um frumvarpsdrögin í viðhengi.
- #5Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Menntasjóðs námsmanna vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga. Fyrir hönd Menntasjóðs námsmanna Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.