Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-57/2024 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga

Með frumvarpinu er lagt til að lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005 verði tekin til heildarendurskoðunar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: febrúar).

Með frumvarpinu er lagt til að lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005 verði tekin til heildarendurskoðunar. Samhliða er lagt til að endurskoða lög um Neytendastofu nr. 62/2005 og lög um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd nr. 20/2020. Tillaga frumvarpsins er að ný markaðssetningarlög leysi framangreind lög af hólmi. Með frumvarpinu er auk þess lagt til að innleiða hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd. Breyttir viðskiptahættir, aukin netviðskipti og tækniþróun síðustu ára hafa gert fyrirtækjum kleift að markaðssetja sig með sífellt nýjum aðferðum. Þetta hefur meðal annars valdið óvissu fyrir fyrirtæki og neytendur um hvaða viðskiptahættir séu heimilir og hverjir ekki. Reynsla síðustu ára af framkvæmd gildandi markaðssetningarlaga hefur einnig leitt í ljós að lögin virka um margt brotakennd og óaðgengileg og talsvert er um skörun og tvítekningu efnisreglna. Þá eru ákvæði laganna sem innleiða Evrópugerðir mörg hver ekki nógu skýr eða gagnsæ til tryggja samræmda túlkun og beitingu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu auk þess sem skort hefur á samþættingu þeirra við önnur ákvæði laganna. Markmið frumvarpsins eru í fyrsta lagi að ný markaðssetningarlög tryggi virka samkeppni í viðskiptum og öfluga neytendavernd sem tekur mið af tækniþróun síðustu ára. Í öðru lagi að lögin séu einföld, skýr, aðgengileg og tæknihlutlaus og leggi ekki óþarfa byrðar á atvinnulífið. Í þriðja lagi að tryggja eins og kostur er að ákvæði laganna sem innleiða Evrópugerðir endurspegli aðeins þær EES-skuldbindingar sem við eiga og að gætt sé samræmis við orðalag þeirra. Er þannig stutt við það meginmarkmið í stefnu stjórnvalda að styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi netviðskipta og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs auk þess að draga úr hindrunum í gildandi regluverki og tryggja að ný löggjöf sé skýr og skilvirk.

S-57/2024· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. feb. 2024 – 14. mar. 2024· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga

Með frumvarpinu er lagt til að lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005 verði tekin til heildarendurskoðunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-57/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 1077)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-57/2024: Drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga · Alviti