Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-143/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um lagasetningu - Frumvarp til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)

Heilbrigðisráðherra kynnir áform um breytingu á lyfjalögum nr. 100/2020.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Ný lyfjalög voru sett árið 2020 og tóku þau gildi þann 1. janúar 2021. Frá þeim tíma hafa komið í ljós ýmsir vankantar sem þarf að lagfæra s.s. ákvæði er varða undanþágulyf, lausasölulyf og samhliða innflutt lyf en einnig er þörf á að bæta við nýjum ákvæðum s.s. heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, eftirlitsgjöld, viðurlagaákvæði og tryggingaskyldu. Að lokum er lagt til að veita fleiri heilbrigðisstéttum takmarkaðar lyfjaávísanaréttindi með hliðsjón af endurskoðun verkaskiptingu heilbrigðisstétta en þó með hliðsjón af öryggi sjúklinga.

S-143/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. júl. 2023 – 8. ágú. 2023· 3 umsagnir

Áform um lagasetningu - Frumvarp til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)

Heilbrigðisráðherra kynnir áform um breytingu á lyfjalögum nr. 100/2020.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-143/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 257)
Niðurstöður samráðs (17. nóvember 2023)

Frumvarp birt til umsagnar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Anna Vilborg Sölmundardóttir
    Fyrir hönd Félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga langar mig að koma með umsögn varðandi okkar starf og þau nauðsynlegu tól sem okkur vantar til að starfrækja okkar starf líkt og okkur er uppáskrifað. Við erum heilbrigðisstarfsmenn sem störfum eftir öllum þeim reglum sem fyrir okkur eru lagðar en vantar ákveðin tól til að geta unnið innan þess ramma. Við fáum mikið fólk með inngrónar neglur þar sem gott væri að geta skrifað upp á sýkladrepandi smyrslið fuscidin beint í stað þess að senda fólk til læknis sem nóg hafa að gera. Gætum einfaldað ferlið mikið með að fá heimild til að sinna þessu be… Lesa alla

    Fyrir hönd Félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga langar mig að koma með umsögn varðandi okkar starf og þau nauðsynlegu tól sem okkur vantar til að starfrækja okkar starf líkt og okkur er uppáskrifað. Við erum heilbrigðisstarfsmenn sem störfum eftir öllum þeim reglum sem fyrir okkur eru lagðar en vantar ákveðin tól til að geta unnið innan þess ramma. Við fáum mikið fólk með inngrónar neglur þar sem gott væri að geta skrifað upp á sýkladrepandi smyrslið fuscidin beint í stað þess að senda fólk til læknis sem nóg hafa að gera. Gætum einfaldað ferlið mikið með að fá heimild til að sinna þessu beint. Einnig myndi það spara mikla vinnu og tíma ef við gætum keypt Lamisil sveppakrem beint hjá heildsala og láta skjólstæðinga okkar hafa það beint í stað þess að senda fólk í apótek. Einföldun og meiri líkur á árangri í baráttunni við sveppasýkingar í húð. Allar nánari upplýsingar skal ég fúslega veita Anna Vilborg Sölmundardóttir Formaður Félags fótaaðgerðafræðinga s:8967685

  • #2Matthías Matthíasson
    Þessi áætlun um lagabreytingu er þörf til þess að opna fyrir möguleika heilbrigðisstétta til að ávísa lyfjum í takmörkuðum mæli og með skilyrðum. Mikilvægt er að bæta inn þeim möguleika að ýmsum heilbrigðisstéttum (t.d. sálfræðingum) verði við ákveðnar aðstæður heimilt að fletta upp í lyfjagagnagrunnum til að sjá ávísuð lyf og lyfjasögu skjólstæðinga sinna. Slík heimild getur verið mikilvæg ef skjólstæðingur / sjúklingur vill ræða lyfjanotkun og eins til að geta vísað sjúklingi áfram sé þörf á að fara yfir eða endurmeta notkun tiltekinna lyfja, t.d. geðlyfja. Með heimild af þessu tagi og sem h… Lesa alla

    Þessi áætlun um lagabreytingu er þörf til þess að opna fyrir möguleika heilbrigðisstétta til að ávísa lyfjum í takmörkuðum mæli og með skilyrðum. Mikilvægt er að bæta inn þeim möguleika að ýmsum heilbrigðisstéttum (t.d. sálfræðingum) verði við ákveðnar aðstæður heimilt að fletta upp í lyfjagagnagrunnum til að sjá ávísuð lyf og lyfjasögu skjólstæðinga sinna. Slík heimild getur verið mikilvæg ef skjólstæðingur / sjúklingur vill ræða lyfjanotkun og eins til að geta vísað sjúklingi áfram sé þörf á að fara yfir eða endurmeta notkun tiltekinna lyfja, t.d. geðlyfja. Með heimild af þessu tagi og sem hluti af aðgangi að sjúkraskrá, sé slíkur aðgangur til staðar, aukast möguleikar á faglegu samráði heilbrigðisstétta og er heimildin þá til þess fallin að bæta teymisvinnu.

  • #3SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um áform um lagasetningu - frumvarp til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-143/2023: Áform um lagasetningu - Frumvarp til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.) · Alviti