Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-177/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: desember).

Frumvarp þetta er samið í heilbrigðisráðuneytinu og eru helstu breytingar eftirfarandi: - Lagt er til að foreldrar eigi rétt til bóta vegna andláts fósturs á meðgöngu eða barns undir 18 ára aldri vegna sjúklingatryggingaratviks. - Lagt er til að bætur séu greiddar til þeirra sem gangast undir bólusetningu á Íslandi með bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til, vegna tjóns sem hlýst af því. - Lagt er til að hámarksfjárhæð vegna tjóns verði hækkuð. - Lagt er til að afnema það skilyrði að skaðabótakrafa verður ekki gerð á hendur neinum sem er bótaskyldur samkvæmt reglum skaðabótaréttar nema tjón hafi ekki fengist að fullu bætt úr sjúklingatryggingu og þá einungis um það sem á vantar. - Lagt er til að afnema þá aðgreiningu sem gerð hefur verið í lögum um sjúklingatryggingu eftir því hvar í heilbrigðisþjónustu tjónsatvik á sér stað. - Lagt er til að skýrt verði hvernig skuli greiða bætur þegar um er að ræða andlát þar sem einstaklingar á framfæri hins látna eru fleiri en einn. - Lagt er til að skýra heimild sjúkratryggingastofnunarinnar til að afla gagna með nákvæmari hætti og heimila stofnuninni og embætti landlæknis að deila gögnum sem varða sama atvik. - Lagt er til að lögfesta málsmeðferð sjúkratryggingastofnunarinnar með nákvæmari hætti en nú er gert. - Lagt er til að mál sem heyrir undir sjúkratryggingastofnunina verði ekki borið undir dómstóla fyrr en eftir að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur úrskurðað í málinu. Að öðrum kosti skal tjónþoli höfða almennt skaðabótamál. - Lagt er til að sektarákvæði verði fellt úr gildi þar sem því hefur ekki verið beitt frá setningu gildandi laga og ekki skýrt hvernig ákvæðinu skal beitt í framkvæmd. Þá er refsiákvæði í lögum um heilbrigðisstarfsmenn auk úrræða sem embætti landlæknis getur beitt skv. lögum um landlækni og lýðheilsu. Frestur til að skila inn umsögnum um frumvarpið er til og með 27. október 2023.

S-177/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. sep. 2023 – 27. okt. 2023· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-177/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 718)
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2023)

Unnið var úr umsögnum og gerðar viðeigandi breytingar á frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Sverrir Ómar Guðnason

    Góðan daginn er þá verið að tala um að lögin taki ekki gildi fyrr en 2025 og bætur greiddar eftir það?

  • #2Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir

    Lyfjafræðingafélag Íslands vill að skoðað verði að sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði vegna kaupa á lyfi sem afhent er af lyfja­fræð­ingi í neyðartilfelli. Lyfjafræðingar geta tekið ríkari þátt í að dreifa álagi í heilbrigðiskerfinu. Þá sé mikilvægur þáttur að lyf þeirra sem eru afgreidd í neyð séu líka niðurgreidd eins og þau sem komi frá læknum. Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands

  • #3Samtök fjármálafyrirtækja

    Góðan dag. Viðfest er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja. Virðingarfyllst, Margrét Arnheiður Jónsdóttir, lögfræðingur

  • #4SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka heilbrigðisfyrirtækja um drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu.

  • #5ÖBÍ - réttindasamtök

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-177/2023: Drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu · Alviti