Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-209/2022 · Dómsmálaráðuneytið

Breyting á lögræðislögum (ýmsar breytingar)

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er stefnt að því að gera ákvæði lögræðislaga um nauðungarvistanir skýrari og skerpa á ýmsum ákvæðum laganna.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar); 154. þing (áætlað: janúar).

Áformað er að gera breytingar á nokkrum ákvæðum lögræðislaga, nr. 71/1997, sem talið er að þurfi endurskoðunar við. Markmiðið er meðal annars að kveða skýrar á um skilyrði fyrir nauðungarvistun og lögræðissviptingu og gera nánari grein fyrir hlutverki lögráðamanna og yfirlögráðenda. Ákvæði laganna um nauðungarvistanir hafa sætt ákveðinni gagnrýni og bent hefur verið á mikilvægi þess að slík úrræði verði ekki byggð á geðsjúkdómi eða fötlun sem slíkri en gildandi ákvæði laganna eru ekki talin tryggja það nægilega. Einnig er áformað að skoða hvort setja eigi ákvæði um hámarkslengd lögræðissviptingar en samkvæmt gildandi lögum skal svipting lögræðis vera tímabundin. Með breytingu á lögunum er jafnframt brugðist við ábendingum alþjóðlegra eftirlitsaðila, umboðsmanns Alþingis og fagaðila um mögulegar breytingar á lögunum. Fyrirhugaðar breytingar stefna enn fremur að því að lögin verði í fullu samræmi við þær kröfur sem leiða má af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

S-209/2022· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. nóv. 2022 – 17. nóv. 2022· 3 umsagnir

Breyting á lögræðislögum (ýmsar breytingar)

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er stefnt að því að gera ákvæði lögræðislaga um nauðungarvistanir skýrari og skerpa á ýmsum ákvæðum laganna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-209/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. nóvember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (21. desember 2022)

Alls bárust þrjár umsagnir vegna málsins, frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Reykjavíkurborg og Öryrkjabandalagi Íslands. Hafinn er undirbúningur að breytingum á lögræðislögum og munu þær umsagnir er bárust verða hafðar til hliðsjónar við þá vinnu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-209/2022: Breyting á lögræðislögum (ýmsar breytingar) · Alviti