Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-251/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um vindorku

Lagðar verða til breytingar á lögum að því er varðar málefni vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku en um leið að lágmarka umhverfisáhrif.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Hinn 11. júlí 2022 skipaði umhverfis-, orku og loftslagsráðherra sérstakan starfshóp um nýtingu vindorku með það að markmiði að hann skyldi leggja fram tillögur um hvernig einfalda mætti uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku. Starfshópurinn skilaði af sér sérstakri stöðuskýrslu „Vindorka – valkostir og greining“ í apríl 2023. Í skýrslunni var ekki um eiginlegar tillögur að ræða, heldur var ákveðið að draga saman helstu álitaefni sem komið höfðu upp við vinnu starfshópsins auk þess sem settir voru fram ýmsir valkostir um hvaða leiðir væru færar til að leysa úr þeim. Skýrslan starfshóps um vindorku „Vindorka – valkostir og greining“ var birt opinberlega á samráðsgátt stjórnvalda og þar var jafnframt óskað eftir umsögnum um efni hennar. Auk birtingar á skýrslunni í samráðsgátt voru haldnir opnir kynningarfundir um allt land um efni hennar. Starfshópurinn hefur í framhaldinu unnið frekar að málinu á grundvelli umsagna og umræðna á kynningarfundum. Í skipunarbréfs starfshópsins kemur fram að hann skuli vinna drög að lagafrumvarpi á grundvelli niðurstaðna sinna má gera ráð fyrir að hann muni skila endanlegum niðurstöðum sínum á næstu vikum. Niðurstaða starfshópsins ásamt frumvarpi vegna málsins mun í framhaldinu verða birt á samráðsgátt stjórnvalda.

S-251/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. des. 2023 – 22. des. 2023· 33 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um vindorku

Lagðar verða til breytingar á lögum að því er varðar málefni vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku en um leið að lágmarka umhverfisáhrif.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-251/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. desember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 33 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (18. nóvember 2025)

Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 33 umsagnir um áformin í Samráðsgátt. Í framhaldi af áformum um lagasetning var lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (virkjunarkostir í vindorku) á 155. löggjafarþingi (þingskjal 280 -274. mál). Hliðsjón var haft að þeim ábendinum sem bárust. Frumvarpið varð ekki að lögum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (33)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-251/2023: Áform um frumvarp til laga um vindorku · Alviti