Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (mjög verðmæt gagnasett, rannsóknargögn o.fl.)
Með frumvarpinu er fjallað um lágmarksreglur til að auka hagnýtingu gagna sem safnað er hjá opinberum aðilum í þeim tilgangi að örva nýsköpun og til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-190/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 27. október 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 35)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. desember 2023)
Fjórar umsagnir bárust um frumvarpsdrögin. Við frágang á frumvarpinu og greinargerðar með því til framlagningar á Alþingi var tekið tillit til umsagnanna. Nánar vísast til 5. kafla í tilvísuðu þingskjali.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Svavar Kjarrval Lúthersson
Ég fagna því að tilskipunin hafi hlotið samþykki sameiginlegu nefndar EES-samningsins. Vil þó gera athugasemd um að frumvarpið mætti reyna að tryggja sérstaklega rétt fatlaðs fólks til aðgengis að gagnasettunum sem heimilt yrði að dreifa með tilstilli samþykkts frumvarps, sbr. t.a.m. b-lið 1. mgr. og f- til h-lið 2. mgr. 9. gr., og c- og d-liðar 21. gr. SRFF, auk þess til hliðsjónar 33. og 71. gr. inngangs tilskipunarinnar sem á að innleiða. Ekki er því neitað að almennt aðgengi að mjög verðmætum gagnasettum gæti, eftir atvikum, leitt til aukins upplýsingaaðgengis fatlaðs fólks. Í ljósi fyriræ… Lesa alla
Ég fagna því að tilskipunin hafi hlotið samþykki sameiginlegu nefndar EES-samningsins. Vil þó gera athugasemd um að frumvarpið mætti reyna að tryggja sérstaklega rétt fatlaðs fólks til aðgengis að gagnasettunum sem heimilt yrði að dreifa með tilstilli samþykkts frumvarps, sbr. t.a.m. b-lið 1. mgr. og f- til h-lið 2. mgr. 9. gr., og c- og d-liðar 21. gr. SRFF, auk þess til hliðsjónar 33. og 71. gr. inngangs tilskipunarinnar sem á að innleiða. Ekki er því neitað að almennt aðgengi að mjög verðmætum gagnasettum gæti, eftir atvikum, leitt til aukins upplýsingaaðgengis fatlaðs fólks. Í ljósi fyrirætlana ríkisstjórnarinnar að lögfesta SRFF er sérstakt tilefni til þess að skoða samræmi fyrirætlaðrar löggjafar við téðan samning, en umfjöllunin í greinargerð um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar bendir ekki til þess að ráðuneytið hafi haft hann í huga í þessu ferli.
- #2Guðmundur Ásgeirsson
Undirritaður er almennt fylgjandi þessu frumvarpi, en með eftirfarandi athugasemdum. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta einkum að því að skilgreina verðmæt gagnasett. Þau skuli gerð aðgengileg gjaldfrjáls og með minnstu mögulegu lagalegum og tæknilegum takmörkunum. Jafnframt verði skylt að tryggja aðgengi að þeim með svonefndum forritaskilum (API). Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til viðauka með tilskipun 2019/1024 þar sem eru skilgreindir sex þemabundnir flokkar mjög verðmætra gagnasetta, þar á meðal hagskýrslur (tölfræðilegar upplýsingar). Í 5. gr. frumvarps… Lesa alla
Undirritaður er almennt fylgjandi þessu frumvarpi, en með eftirfarandi athugasemdum. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta einkum að því að skilgreina verðmæt gagnasett. Þau skuli gerð aðgengileg gjaldfrjáls og með minnstu mögulegu lagalegum og tæknilegum takmörkunum. Jafnframt verði skylt að tryggja aðgengi að þeim með svonefndum forritaskilum (API). Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til viðauka með tilskipun 2019/1024 þar sem eru skilgreindir sex þemabundnir flokkar mjög verðmætra gagnasetta, þar á meðal hagskýrslur (tölfræðilegar upplýsingar). Í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að ráðherra skuli setja reglugerð um mjög verðmæt gagnasett þ.m.t. hvaða opinberu upplýsingar teljast til mjög verðmætra gagnasetta, reglur um snið, lýsigögn og formlega staðla. Samkvæmt þessu er lykilatriði hvaða opinberu upplýsingar verði tilgreindar í reglugerðinni sem og snið þeirra. Meðal þeirra stofnana sem birta mikilvægar tölulegar upplýsingar er Seðlabanki Íslands. Þar á meðal eru hagtölur bankans, sögulegar upplýsingar um vexti sem bankinn ákvarðar eða birtir o.fl. Þessar upplýsingar eru jafnan birtar á vef bankans í Excel skjölum sem er tiltölulega auðvelt að nálgast. Sá birtingarmáti hefur þó ákveðna ókosti. Í fyrsta lagi er sérstakur hugbúnaður nauðsynlegur til að opna slík skjöl til aflestrar og úrvinnslu. Í öðru lagi eru slík skjöl ekki allra heppilegasta formið sem völ er á til að lesa upplýsingar með vélrænum hætti, svo sem til innflutnings í tölvukerfi sem ætlað er að vinna úr slíkum upplýsingum með sjálfvirkum hætti. Sum gögn bankans eru reyndar aðgengileg nú þegar á XML formi en alls ekki öll og gera mætti betur í þeim efnum. Undirritaður leggur því til að í reglugerð á grundvelli laga samkvæmt frumvarpinu verði hagtölur og aðrar tölulegar upplýsingar Seðlabanka Ísland skilgreindar sem verðmæt gagnasett. Jafnframt verði kveðið á um að þær skuli gera aðgengilegar bæði á formi sem er auðlæsilegt mönnum án sérstaks hugbúnaðar og formi sem er auðlæsilegt með vélrænum hætti svo sem með hugbúnaði. Sem dæmi um form sem er auðlæsilegt mönnum væri einfaldlega hægt að birta þær í töflum á vefsíðu bankans þannig að ekki þurfi annan hugbúnað en netvafra til að fletta þeim upp, líkt og er t.d. hægt á vefsíðu Hagstofu Ísland. Sem dæmi um form sem er auðlæsilegt með vélrænum hætti mætti nefna vefþjónustur eða sambærileg forritaskil þar sem hægt væri að sækja sömu gögn á formi sem fylgir viðurkenndum stöðlum á borð við JSON eða XML. Ráðlegt væri að hafa samráð við hugbúnaðarsérfræðinga um val á útfærslum með tilliti til þess hvað sé hagkvæmast og skilvirkast í slíkri notkun. Enn fremur þyrfti að beina því til Seðlabanka Íslands að huga sem fyrst að útfærslu slíkra birtingarmáta og forritaskila.
- #3Sævar Þór Halldórsson
4. gr. 2. ml. ætti að falla út eða breytast. t.d. vill Google og Apple og aðrir stórnotendur ekki nota mörg opinber landfræðileg gagnasett, þar sem þau vilja og ætla ekki að geta í skilmálum eða á öðrum stöðum, uppruna gagnanna. Betra væri bara ef þetta yrði orðað öðruvísi eða bara sleppt í lögunum.
- #4Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.