Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-48/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Breyting á raforkulögum (raforkuöryggi)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars); 154. þing (áætlað: febrúar).

Raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. Á síðustu árum hefur nýting virkjana farið jafnt og þétt vaxandi. Eftirspurn hefur vaxið hraðar en sem nemur auknu framboði. Afleiðingin er minna svigrúm til að bregðast við áföllum í vinnslu- og flutningskerfi raforku, eða óvæntri minnkun á framboði á heildsölumarkaði og almennum markaði. Þetta getur skapað veikleika í raforkuöryggi að því er varðar framleiðsluöryggi og nægjanlegt raforkuframboð til. næstu tveggja til fimm ára. Með frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar á raforkulögum. Nánar tiltekið er um að ræða: 3.1. Forgangur almennings í skömmtun Í 9. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, um skyldur flutningsfyrirtækisins (Landsnets), kemur fram að ef ófyrirséð og óviðráðanlegatvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn beri flutningsfyrirtækinu að grípa til skömmtunar. Við skömmtun skal gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skuli útfærð í reglugerð. Í ákvæðinu er ekki tryggt að almenningur beri að njóta forgangs við skömmtun. Þá leiðir það ekki af reglugerð nr. 350/2016 um eftirlitsáætlun um jafnræði viðskiptavina flutningsfyrirtækis raforku. Með frumvarpinu er því lagt til að sérstaklega verði tekið fram að almenningur og fyrirtæki sem ekki teljist til stórnotenda og hafi ekki samið sérstaklega um skerðanlega orku skuli njóta forgangs við skömmtun. 3.2. Söfnun og miðlun upplýsinga. Samkvæmt reglugerð um Orkustofnun ber stofnuninni að tryggja söfnun upplýsinga og gera orkuspá. Hlutverk flutningsfyrirtækisins Landsnets samkvæmt raforkulögum er að vinna kerfisáætlun. Kerfisáætlun skiptist í langtímaáætlun um fyrirhugaða uppbyggingu flutningskerfisins næstu tíu árin og framkvæmdaáætlun vegna ávarðana um fjárfestingar í flutningskerfinu næstu þrjú árin. Stjórnvöld og Landsnet afla þannig í dag ýmissa upplýsinga og gera skýrslur og spár um framtíðarþróun en vinnan er dreifð og fer ekki fram í þeim skýra tilgangi að leggja mat á öruggt framboð raforku. Með þessu frumvarpi er lagt til að flutningfyrirtækinu Landseti verið falið að vinna mat á raforkuöryggi almenna markaðarins.

S-48/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. feb. 2023 – 14. mar. 2023· 13 umsagnir

Breyting á raforkulögum (raforkuöryggi)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-48/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 943)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2025)

Samþykkt á Alþingi sem lög nr. 47/2025

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Skúli Jóhannsson
    Umsögn um drög að frumvarpi til laga um raforkuöryggi og breytingu á þeim drögum. Reykjavík 5.3.2023 / SJ Hér á landi er starfandi vatnsorkuráðandi einangrað raforkukerfi. Þar sem möguleikar til orkuvinnslu úr innfluttu jarðefnaeldsneyti eru ekki fyrir hendi, verður að takast á við orkuskort með skerðingu hjá raforkunotendum. Í vatnsorkuráðandi raforkukerfi gerist að jafnaði ekki neitt en orkuskortur gæti vissulega komið fram á 5-7 ára fresti og þá jafnvel valdið stóráföllum. Við hönnun og uppbyggingu raforkukerfa þarf að taka tillit til • Framboðs á endurnýjanlegri orku á stað og… Lesa alla

    Umsögn um drög að frumvarpi til laga um raforkuöryggi og breytingu á þeim drögum. Reykjavík 5.3.2023 / SJ Hér á landi er starfandi vatnsorkuráðandi einangrað raforkukerfi. Þar sem möguleikar til orkuvinnslu úr innfluttu jarðefnaeldsneyti eru ekki fyrir hendi, verður að takast á við orkuskort með skerðingu hjá raforkunotendum. Í vatnsorkuráðandi raforkukerfi gerist að jafnaði ekki neitt en orkuskortur gæti vissulega komið fram á 5-7 ára fresti og þá jafnvel valdið stóráföllum. Við hönnun og uppbyggingu raforkukerfa þarf að taka tillit til • Framboðs á endurnýjanlegri orku á stað og í tíma, þ.e. vatnsorku á yfirborði jarðar, jarðvarmaorku úr iðrum jarðar eða vindorku úr lofti yfir yfirborði jarðar (í framtíðinni?). Einnig þarf að taka tillit til þrenginga í flutningsleiðum raforku frá framleiðslustað til raforkunotenda. Með tilliti til þess er talað um orkuhannað kerfi. • Skammtíma bilana í framleiðslu og flutningskerfinu. Með tilliti til þess er talað um aflhannað kerfi. Við að orkuhanna kerfið eru gerðar rekstrarhermanir í tölvum og virkjanir aflsettar þannig að þær geti náð sveiflum í tiltæku rennsli vatnsfalla með aðstoð vatnsmiðlana og að því marki sem hagkvæmt gæti talið. Þessi aðferð hefur leitt til þess að uppsett afl hefur ekki verið takmarkandi þáttur við orkuvinnsluna. Að aflsetning er nægjanleg er sannreynt eftir á. Þannig hefur þetta ávallt verið gert hér á landi en einnig í Noregi þar til þeir hófu að tengjast Evrópukerfinu með millilandatengingum m.a. til að auka orkuöryggið bæði hjá sér og í Evrópu. Ávallt hefur verið litið svo á að íslenska raforkukerfið sé orkuhannað, en með drögunum að frumvarpi til laga um raforkuöryggi og breytingu á þeim drögum er litið svo á að kerfið sé aflhannað. Þarna er rangur póll tekinn í hæðina. Reynslan hefur leitt til þess að við orkuhönnunina og án þess að tekið er tillit til aflhönnunar höfum við náð að aflsetja virkjanir okkar þannig að fullnægjandi afl hefur verið sett upp í hverri virkjun fyrir sig í samræmi við þekkingu og áætlanir á hverjum tíma. Með því að heimila ekki skerðingar hjá almenningi eða fyrirtækjum sem ekki teljast til stórnotenda þá verður væntanlega að semja á ný við stóriðjuna og gagnaverin. Við miklar stöðvanir t.d. við vatnsþurrð að vori þyrfti þá væntanlega að gera stóreflis ráðstafanir t.d. með rekstrarstöðvun í stóriðjuveri um nokkurn tíma. Varla þyrfti þó að stöðva Alcoa álverið á Reyðarfirði vegna þess hve mikil strönduð orka er alltaf til staðar í Hálslóni ofan Kárahnjúkavirkjunar. Ég leyfi mér að benda á þennan agnúa í fyrirliggjandi gögnum frá Umhverfis- Orku- og Loftslagsráðuneytinu. Með bestu kveðju Skúli Jóhannsson, verkfræðingur GSM 898 5889 Email skuli@veldi.is

  • #2Landvernd, landgræðslu- og umhverisverndarsamtök Íslands

    Vinsamlegast sjá umsögn Landverndar í viðhengi

  • #3Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum, mál nr. 48/2023.

  • #4Neytendasamtökin

    Meðfylgjandi er umsögn Neytendasamtakanna.

  • #5Sigurður Jóhannesson
    Á ársfundi Landsvirkjunar fyrir skömmu lýsti Tinna Traustadóttir framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs þessu frumvarpi sem fyrsta skrefi af mörgum til þess að tryggja ,,okkur öllum“ örugga orkuafhendingu. Það yrði gert með því að skilja að rafmagnsmarkað fyrir stórnotendur og almennan rafmagnsmarkað, þar sem eru heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki. Umsögnin er miðuð við þennan skilning á frumvarpinu. Fram kom í máli Tinnu að heimili ættu ekki að keppa um verð við stórnotendur. Því fylgdi ábyrgð og um leið skuldbinding að selja inn á markað fyrir almenning og smærri fyrirtæki. Passa þyrft… Lesa alla

    Á ársfundi Landsvirkjunar fyrir skömmu lýsti Tinna Traustadóttir framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs þessu frumvarpi sem fyrsta skrefi af mörgum til þess að tryggja ,,okkur öllum“ örugga orkuafhendingu. Það yrði gert með því að skilja að rafmagnsmarkað fyrir stórnotendur og almennan rafmagnsmarkað, þar sem eru heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki. Umsögnin er miðuð við þennan skilning á frumvarpinu. Fram kom í máli Tinnu að heimili ættu ekki að keppa um verð við stórnotendur. Því fylgdi ábyrgð og um leið skuldbinding að selja inn á markað fyrir almenning og smærri fyrirtæki. Passa þyrfti að orka sem ætti að fara þangað rataði á rétta staði. Þannig mætti tryggja framhald þess fyrirkomulags sem tryggt hefði heimilum hóflegar verðbreytingar á rafmagni. Landsvirkjun framleiðir nú helming rafmagns sem selt er á almennum markað. Vart þarf að efast um að Landsvirkjun hyggst halda áfram að selja rafmagn inn á þennan markað á hóflegu verði. Hið nýja skipulag leggur því fyrst og fremst kvaðir á aðra framleiðendur. Vandinn stafar af áhuga stórkaupenda á að kaupa meira rafmagn þegar framboð er ekki nóg. Á öðrum mörkuðum mundi verðhækkun leysa málið, en sá kostur er ekki fyrir hendi hér, eins og rætt er í skýrslu sem Copenhagen Economics gerði fyrir Landsvirkjun árið 2017: ,,Á samkeppnismarkaði hefði [vaxandi eftirspurn frá stórnotendum] þrýst [rafmagns]verði á heildsölumarkaði upp á við… En reyndar ræðst verðið ekki á samkeppnismarkaði, heldur er það að miklu leyti á valdi Landsvirkjunar hvað rafmagnið kostar... [Landsvirkjun] er stórt orkufyrirtæki í ríkiseigu, og verið getur að andstaða stjórnmálamanna við hækkun rafmagnsverðs til heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja hafi óbein áhrif á verðlagninguna. Þessi andstaða gæti haldið aftur af eðlilegum verðhækkunum og aukið hættu á rafmagnsskorti hjá heimilum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum.“ Copenhagen Economics, 2017, Energy market reform options in Iceland, bls. 11, lauslega þýtt úr ensku. Ef skilið er á milli almenns markaðs og sölu til stórnotenda, eins og stefnt virðist að, hefur eftirspurn stórnotenda ekki áhrif á verð á almennum markaði. Framleiðendur, sem nú selja rafmagn fyrir almennan markað, verða skikkaðir til þess að gera það áfram. Lítill vafi er á að almenningur verður ánægður með að vera hlíft við verðsveiflum á rafmagni, sérstaklega verðhækkunum. En gallar eru á þessu fyrirkomulagi. Gefin verða röng merki um verðmæti rafmagnsins. Heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki gætu til dæmis fengið kílówattstund af rafmagni á 5 krónur, þó að stórnotendur vildu borga 15 krónur. Fórnarkostnaðurinn eru þær tekjur sem rafmagnsframleiðandi verður af þegar rafmagnið er selt á almennum markaði. Almenningur notar meira rafmagn en hann mundi gera ef hann vissi hvað það er mikils virði í reynd. Því er stundum haldið fram að rafmagn sé svo ódýrt að flestir séu ónæmir fyrir verðbreytingum á því, en ein íslensk athugun og nokkrar erlendar benda til þess að skammtímaverðteygni heimila sé á bilinu -0,4 til -1. Rafmagnsnotkun heimila dragist með öðrum orðum saman um 0,4 til 1 prósent þegar rafmagnsverð hækkar um 1%. Rangar upplýsingar um rafmagnsverð geta leitt til sóunar á rafmagni og lakari lífskjara. Ekki er ólíklegt að framleiðendur sem skikkaðir verða til þess að selja rafmagn á almennum markaði fari fram á bætur fyrir það. Þá gæti reynst erfitt að skilgreina hverjir eru stórnotendur á rafmagni. Minna má á umræður stjórnmálaleiðtoga fyrir kosningar 2013, þegar deilt var um hvort kísilver á Bakka við Húsavík væri stóriðja. Ekki geta allir búist við að fá rafmagn á sama verði á frjálsum markaði. En yfirleitt eru góðar skýringar á verðmuninum, til dæmis magnkaup eða það að keypt er á ýmsum tímum sólarhrings þegar eftirspurn er mismikil. En í nýju kerfi yrði verðmunur á almennum markaði og markaði fyrir stórkaupendur sem erfitt verður að skýra. Fljótt á litið minnir hugmyndin á það þegar margs konar gengi var á íslensku krónunni eftir því hvað verslað var með. Það fyrirkomulag var afnumið í upphafi árs 1960 og þótti mörgum framfaraskref. Skoða þarf vel hvort uppskipting markaðs með rafmagn er í samræmi við samning um Evrópskt efnahagssvæði. Í fljótu bragði virðist hugmyndin passa illa við anda samningsins. Sigurður Jóhannesson Víðihlíð 20 105 Reykjavík tölvupóstfang sjz@hi.is

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-48/2023: Breyting á raforkulögum (raforkuöryggi) · Alviti