Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-194/2023 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði)

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 13. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 um leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Kveðið á um nýja málsgrein í 13. gr. laga nr. 79/1997, um heimild fyrir ráðherra að veita skipum, sem hafa annars ekki leyfi til að stunda veiðar og vinnslu í fiskveiðilandhelginni, skilyrt, takmörkuð og tímabundin leyfi, til prófana á nýjum vinnslu- og veiðarfærabúnaði sem settur hefur verið í skipin hér á landi. Mikilvægt er að Ísland sem fiskveiðiþjóð hafi öfluga þjónustustarfsemi sem styður við nýtingu auðlinda úr sjó og að sú starfsemi sé samkeppnishæf við sambærilega starfsemi í öðrum ríkjum.

S-194/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2023 – 19. okt. 2023· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði)

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 13. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 um leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-194/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 467)
Niðurstöður samráðs (20. október 2023)

Ein umsögn um málið barst í samráðsgátt. Í umsögninni kom m.a. fram að breytingatillagan sé til bóta en skerpa þurfi á nokkrum atriðum sem hægt væri að útfæra nánar í reglugerð um leyfisveitingar, einkum er varðar skilgreiningu á hvað felist í prófunum, um ráðstafanir til að koma í veg fyrir afla sé slíkt unnt sbr. markmið prófana, um ákveðin svæði fyrir prófanir, um skyldu um sjálfvirka ferilvöktun skipa og að Fiskistofa upplýsi Landhelgisgæsluna um tímasetningu og staðsetningu eftirlits og Hafrannsóknastofnun um aflaupplýsingar. Hægt verður að kveða á um ofangreind atriði í reglugerð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Sigríður Skaftadóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Landhelgisgæslu Íslands

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-194/2023: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði) · Alviti