Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-146/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (innleiðing DORA)

Umsagnir óskast um drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann hér á landi (DORA).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: mars); 157. þing (áætlað: september).

Unnið er að upptöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann (DORA) og tilheyrandi breytingatilskipun Evrópuþingsins og ráðins (ESB) 2022/2556 í EES-samninginn. Drög þessi að frumvarpi eru til innleiðingar gerðanna í íslenskan rétt. Báðar voru DORA-reglugerðin og -tilskipunin samþykktar 14. desember 2022 og koma til framkvæmda í aðildarríkjum Evrópusambandsins 17. janúar 2025. Upptaka DORA í EES-samninginn og innleiðing í landsrétt er skilgreind sem aðgerð í sameiginlegri aðgerðaáætlun stjórnvalda í netöryggismálum, á grundvelli netöryggisstefnu fyrir Ísland 2022-2037. DORA tilheyrir stafrænum fjármálapakka ESB sem fyrst var kynntur árið 2020, líkt og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir (MiCA) og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DFTR). DFTR var innleidd í landsrétt með lögum um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni, nr. 56/2024. Stafræna fjármálapakkanum er ætlað að stuðla að því að umgjörð fjármálamarkaða mæti nútímaþörfum, efldri samkeppni og nýsköpun, auk þess sem hugað er að fjárfestavernd, net- og upplýsingaöryggi ásamt fjármálastöðugleika. Net- og upplýsingaöryggi er ein tegund rekstraráhættu. Í DORA er hugtakið stafrænn rekstrarlegur viðnámsþróttur, eða áfallaþol, í forgrunni. Það er skilgreint þannig: Geta aðila á fjármálamarkaði til að byggja upp, viðhalda og endurmeta heilleika og áreiðanleika í rekstri með því að tryggja, hvort heldur beint, eða óbeint með notkun upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu þriðju aðila, alla þá getu sem tengist upplýsinga- og fjarskiptatækni sem þarf til að tryggja öryggi net- og upplýsingakerfa sem aðili á fjármálamarkaði notar og sem styður samfellda veitingu fjármálaþjónustu og gæði hennar, þ.m.t. meðan röskun varir. Í stuttu máli kveður reglugerðin á um að aðilar á fjármálamarkaði skuli haga starfsemi sinni þannig að virk og viðeigandi áhættustýring tengd notkun net- og upplýsingatækniþjónustu sé viðhöfð í því skyni að stuðla að öflugum stafrænum viðnámsþrótti og lágmarka rof á mikilvægri þjónustu. Lagt er til að gildissvið fyrirhugaðra laga verði rýmkað umfram það sem DORA gerir ráð fyrir, þ.e. nái einnig til lífeyrissjóða á grundvelli laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sbr. nánari umfjöllun um 2. gr. frumvarpsins. Eins og segir í 13.–14. lið inngangsorða DORA ættu aðilar á fjármálamarkaði að fylgja sömu nálgun og meginreglum þegar þeir takast á við upplýsinga- og fjarskiptatækniáhættu, að teknu tilliti til stærðar þeirra og heildaráhættusniðs og eðlis, umfangs og flækjustigs þjónustu þeirra, starfsemi og reksturs. Samræmi stuðlar að aukinni tiltrú á fjármálakerfið og viðheldur stöðugleika þess. DORA á að stuðla að því að draga úr flækjustigi í framkvæmd, auka samleitni í eftirliti og réttarvissu, takmarka kostnað við að fara að reglum (ekki síst í starfsemi yfir landamæri), svo og draga úr röskun á samkeppni. Að öðru leyti en að framan greinir, varðandi rýmkun gildissviðs fyrirhugaðra laga, er ekki gert ráð fyrir frávikum frá lágmarkskröfum DORA við innleiðingu hér á landi.

S-146/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2024 – 10. sep. 2024· 1 umsögn

Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (innleiðing DORA)

Umsagnir óskast um drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann hér á landi (DORA).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-146/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. september 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 261)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. desember 2025)

Ein umsögn barst um drögin. Frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar var lagt fyrir Alþingi á 156. löggjafarþingi og endurflutt á 157. löggjafarþingi. Lög nr. 78/2025 öðlast gildi 1. janúar 2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Margrét Arnheiður Jónsdóttir

    Viðfest er umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) um drög að frumvarpi til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (innleiðing DORA). Virðingarfyllst, F.h. SFF, Margrét Arnheiður Jónsdóttir, lögfræðingur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-146/2024: Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (innleiðing DORA) · Alviti