Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-145/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fasteignir sjúkrahúsa ohf

Með frumvarpinu verður nafni Nýs Landspítala ohf. breytt og hlutverk félagsins og verkefni, sem það sinnir að miklu leyti nú þegar, formfest og skilgreind nánar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpinu er mælt fyrir um hlutverk NLSH ohf. sem fær jafnframt nýtt nafn eða Fasteignir sjúkrahúsa ohf. enda munu verkefni félagsins ekki einskorðast við Landspítalann sem slíkan þó þau verkefni munu áfram vega þyngst í starfsemi félagsins a.m.k. næstu ár. Félagið mun því byggja áfram á núverandi grunni NLSH ohf. þó að nafni þess sé breytt og að það annist jafnframt undirbúning og framkvæmd bygginga þar sem þriðja stigs heilbrigðisþjónusta er veitt í samræmi við ákvarðanir stjórnvalda. Í frumvarpinu er kveðið nánar á um tilgang og markmið félagsins sem snýr að utanumhaldi og uppbyggingu slíkra bygginga. Í frumvarpinu eru einnig að finna ákvæði um eignaumsýslu, stjórn, heimildir til samningagerðar og stofnunar dótturfélaga sem taka mið af öðrum sambærilegum lögum, t.a.m. lögum heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu nr. 81/2020.

S-145/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2024 – 15. ágú. 2024· 1 umsögn

Fasteignir sjúkrahúsa ohf

Með frumvarpinu verður nafni Nýs Landspítala ohf. breytt og hlutverk félagsins og verkefni, sem það sinnir að miklu leyti nú þegar, formfest og skilgreind nánar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-145/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 276)
Niðurstöður samráðs (6. september 2024)

Ein umsögn barst frá Sjúkrahúsinu á Akureyri innan samráðsfrest. Þá barst einnig umsögn frá Landspítalanum eftir að samráðsfresti liðnum. Í báðum umsögnum voru settar fram vangaveltur varðandi einstakar lagagreinar og hvernig þær yrðu túlkaðar eða beitt í framkvæmd. Brugðist verður við athugasemdunum með því að skýra einstök lagaákvæði betur í greinagerð. Athugasemdirnar eru ekki taldar þess eðlis gera þurfi efnisbreytingar á frumvarpinu sem slíku. Stefnt er að því að frumvarpið verði svo lagt fram á haustþingi 2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-145/2024: Fasteignir sjúkrahúsa ohf · Alviti