Beint í efni
Alviti
Þingmál155. þing · 276. mál

Fasteignir sjúkrahúsa ohf

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 9. okt. 2024

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 155. þingi. (Beið 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja faglega og hagkvæma framkvæmd sjúkrahúsbygginga með þriðja stigs heilbrigðisþjónustu með því að sameina undirbúning, framkvæmd og umsýslu fasteigna hjá sérhæfðu opinberu hlutafélagi.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
9. október 2024
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
engin enn

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. ágú. 2025

Markmiðið

Að tryggja faglega og hagkvæma framkvæmd sjúkrahúsbygginga með þriðja stigs heilbrigðisþjónustu með því að sameina undirbúning, framkvæmd og umsýslu fasteigna hjá sérhæfðu opinberu hlutafélagi.

Hvað breytist

Lagt er til að nafni Nýs Landspítala ohf. verði breytt í Fasteignir sjúkrahúsa ohf. þar sem verkefni félagsins munu ekki lengur einskorðast við Landspítalann þótt þau haldi áfram að vega þyngst á næstu árum. Jafnframt er lagt til að hlutverk og verkefni félagsins verði skilgreind nánar og formfest í lögum. Einnig er gert ráð fyrir að veita heimild til að færa eignarhald og umsýslu fasteigna sem nýttar eru undir annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu til félagsins, sem yrði þá miðlægur eignaumsýsluaðili með fasteignum sjúkrahúsa með sambærilegt hlutverk og Fasteignir Háskóla Íslands ehf.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, nr. 64/2010.

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-256/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. des. 2023 – 5. jan. 2024· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um framkvæmdir og umsýslu fasteigna fyrir Landspítala og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu

Þörf er á að endurskoða núgildandi lagaramma um NLSH ohf. þannig að hann samræmist betur þeirri þróun sem hefur orðið á hlutverki félagsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-256/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. janúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. júní 2024)

Áform um frumvarpið voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum island.is (mál nr. S-256/2023) 8. desember 2023 til 5. janúar 2024. Ein umsögn barst þar sem spurt var um ýmis atriði sem lúta að mestu ákvarðanavaldi félagsins og með hvaða hætti eignir ríkisins verða færðar til félagsins. Leitast verður við að taka tillit þeirra athugasemd sem báurst við áframhaldandi vinnslu frumvarps.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-145/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2024 – 15. ágú. 2024· 1 umsögn

Fasteignir sjúkrahúsa ohf

Með frumvarpinu verður nafni Nýs Landspítala ohf. breytt og hlutverk félagsins og verkefni, sem það sinnir að miklu leyti nú þegar, formfest og skilgreind nánar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-145/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (6. september 2024)

Ein umsögn barst frá Sjúkrahúsinu á Akureyri innan samráðsfrest. Þá barst einnig umsögn frá Landspítalanum eftir að samráðsfresti liðnum. Í báðum umsögnum voru settar fram vangaveltur varðandi einstakar lagagreinar og hvernig þær yrðu túlkaðar eða beitt í framkvæmd. Brugðist verður við athugasemdunum með því að skýra einstök lagaákvæði betur í greinagerð. Athugasemdirnar eru ekki taldar þess eðlis gera þurfi efnisbreytingar á frumvarpinu sem slíku. Stefnt er að því að frumvarpið verði svo lagt fram á haustþingi 2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
282Stjórnarfrumvarp9. okt. 2024Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

Engar ræður hafa verið fluttar um málið.

Umsagnir og erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Engar umsagnir hafa borist.

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.