Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um stjórn fiskveiða og um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (veiðistjórn grásleppu)
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breyting á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands ásamt frummati á áhrifum lagasetningarinnar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-3/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 976)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
- #1Smári Karvel Guðmundsson
Nýliđaaflamark Međ tilkomu nýliđaaflamarki í frumvarpi ráđuneytis þá opinber ráđuneyti sína viđurkenningu ađ nýliđun í aflamarkskerfinu er engin. Þróun síđustu 40ára hafa skilađ verulega fækkun í fiskiskipaflotanum og skerđing orđiđ í sjávarplássum af völdum þess. Međ kvótasettningu grásleppu verđur sú þróun til stađar. Nýliđaaflamark er skammtímahugsun, hún verđur einfaldlega ekki til stađar nema innan fárra ára. Eftir þann tíma erum viđ komin á þann stađ ađ íslenskur almenningur "fæddist" ekki á réttum tíma og missir af aflareynslutíma og nýliđaaflamarki. Áskorun mín er ađ rá… Lesa alla
Nýliđaaflamark Međ tilkomu nýliđaaflamarki í frumvarpi ráđuneytis þá opinber ráđuneyti sína viđurkenningu ađ nýliđun í aflamarkskerfinu er engin. Þróun síđustu 40ára hafa skilađ verulega fækkun í fiskiskipaflotanum og skerđing orđiđ í sjávarplássum af völdum þess. Međ kvótasettningu grásleppu verđur sú þróun til stađar. Nýliđaaflamark er skammtímahugsun, hún verđur einfaldlega ekki til stađar nema innan fárra ára. Eftir þann tíma erum viđ komin á þann stađ ađ íslenskur almenningur "fæddist" ekki á réttum tíma og missir af aflareynslutíma og nýliđaaflamarki. Áskorun mín er ađ ráđuneyti og Landsamband Smábátaeigenda ( L.S.) komi saman og myndi nýtt kerfi um stjórn grásleppuveiđa.
- #2Guðbjörn Jensson
Góðan daginn, Fjölskyldan okkar hefur gert út árlega til grásleppuveiða sl. 80 ár. Langafi minn hóf þessar veiðar í fjölskyldunni og tók ég við af afa mínum fyrir tæpum 10 árum og stunda þessar veiðar árlega með föður mínum. Þegar ég segi að fjölskylda mín hafi stundað þessar veiðar óslitið í 80 ár þá er það ekki alveg rétt. Vegna ákvörðunar ráðherra þá var engin grásleppuveiði hjá fjölskyldunni árið 2020. Við teljum að þarna hafi ráðherra skapað hættulegt fordæmi með því að leyfa einu svæði að klára allan ráðlagðan kvóta og láta hina sitja upp með sokkin kostnað á veiðarfærum og fleiru. Þett… Lesa alla
Góðan daginn, Fjölskyldan okkar hefur gert út árlega til grásleppuveiða sl. 80 ár. Langafi minn hóf þessar veiðar í fjölskyldunni og tók ég við af afa mínum fyrir tæpum 10 árum og stunda þessar veiðar árlega með föður mínum. Þegar ég segi að fjölskylda mín hafi stundað þessar veiðar óslitið í 80 ár þá er það ekki alveg rétt. Vegna ákvörðunar ráðherra þá var engin grásleppuveiði hjá fjölskyldunni árið 2020. Við teljum að þarna hafi ráðherra skapað hættulegt fordæmi með því að leyfa einu svæði að klára allan ráðlagðan kvóta og láta hina sitja upp með sokkin kostnað á veiðarfærum og fleiru. Þetta hættulega fordæmi gerir öllum öðrum en þeim sem hefja veiðar fyrst á vertíðinni ókleift að stunda veiðar. Kerfið sem hefur verið notað undanfarin ár er algjörlega búið að ganga sér til húðar. Það er að mati undirritaðra nauðsynlegt að gera á því breytingar. Ekki er hægt að fjárfesta í veiðarfærum, skipuleggja vertíðina með tilliti til annarrar vinnu, með þessari óvissu sem ráðherra bauð upp á. Við feðgar höfum áður lagt inn umsögn á þessu máli og því má segja að það að reifa þá kosti að taka upp aflamark sé endurtekning. Þetta eru þeir kostir sem við teljum við að breyta í aflamark. • Núverandi kerfi hefur skapað gríðarlega óvissu á hverju ári fyrir þær útgerðir sem hafa tekið þátt í veiðunum. • Grásleppuveiðar eru áhættusöm atvinnugrein sem er gríðarlega háð veðri og vindum. • Til að auka á flækjustig veiðanna hefur óvissa með fjölda daga, veiða áður en veiðitímabil hefst. • Núverandi kerfi gefur embættismönnum og stofnunum of mikið pólitískt vald og skapar gríðarlega ógagnsæja stjórnsýslu • Skrýtið er að hafa einungis grásleppu eina undanþegna frá varanlegum aflaheimildum • Að breyta í aflamark myndi lágmarka þá ókosti sem nefndir hafa verið hér að ofan, óvissu (bæði með verð og fjölda veiðidaga), umhverfi (eyðilegging á netum þar sem ekki er hægt að taka upp net vegna samkeppni um staði). Að lokum viljum við taka undir með niðurstöðum úr áhrifamati lagasetningar þar sem listaðir eru upp þeir kostir að taka upp aflamark á Grásleppu. Virðingarfyllst, Jens Guðbjörnsson, Guðbjörn Jensson
- #3Skagafjörður
Meyfylgjandi er umsögn byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 25. janúar 2023.
- #4Valentínus Guðnason
Valentínus Guðnason – 28.01.2023 Ég er sammála því að setja grásleppuna í aflamark. Það er búið að vera mikið óvissuástand í grásleppuveiðum síðusta áratug. Menn vita aldrei við hverju má búast með dagafjölda og heildarmagn sem veiða má hverju sinni. Þær upplýsingar koma aldrei frá Hafró fyrr en veiðar eru hafnar. Það er óþolandi og erfitt að gera út á þessum forsendum. Þetta eru ólympískar veiðar sem byggjast frekar á heppni og keppni, því að um leið og dagarnir byrja að telja þá er allt undir að menn hafi eitthvað út úr vertíðinni. Hér áður fyrr voru gefnir út 90 dagar til veiða og var ek… Lesa alla
Valentínus Guðnason – 28.01.2023 Ég er sammála því að setja grásleppuna í aflamark. Það er búið að vera mikið óvissuástand í grásleppuveiðum síðusta áratug. Menn vita aldrei við hverju má búast með dagafjölda og heildarmagn sem veiða má hverju sinni. Þær upplýsingar koma aldrei frá Hafró fyrr en veiðar eru hafnar. Það er óþolandi og erfitt að gera út á þessum forsendum. Þetta eru ólympískar veiðar sem byggjast frekar á heppni og keppni, því að um leið og dagarnir byrja að telja þá er allt undir að menn hafi eitthvað út úr vertíðinni. Hér áður fyrr voru gefnir út 90 dagar til veiða og var ekki gefið út heildarveiðimagn frá Hafró. Síðustu 13 árin höfum við verið að rokka frá 15 dögum upp í 45 daga og skera netafjöldann niður um 1/3. Nú er farið að loka veiðisvæðum til verndunar landsel og hvatning til okkar veiðimanna að halda okkur frá svæðum þar sem landselur og teista eru í einhverjum mæli. Þetta þrengir að okkur því fyrst og fremst erum við að þessu til að hafa einhverja afkomu af. Með kvótasetningu kemur mikill sveigjanleiki til að stunda veiðarnar á hagkvæman hátt, t.d. að fyrst og fremst veiðimaðurinn ráði sínum hraða til að afla þess magns sem hann hefur heimildir til. Tíðrætt hefur verið um nýliðun í grásleppuveiðum. Hún er engin og mun áfram verða þannig við núverandi aðstæður þar sem veiðarnar teljast varla útgerðarhæfar, startkostnaður til að hefja veiðar er mikill í tækjum og netum. Það sem menn taka heldur aldrei með inn í reikninginn þegar verið er að tala um útgerðarhlutann í veiðunum er sú mikla vinna sem til fellur við fellingu netanna og vinnan við frágang eftir vertíð. Þannig að ef ungt fólk ætlar að byrja útgerð þá velur það síst grásleppuveiðar og leitar frekar til strandveiða þar sem þær hafa breyst til batnaðar undanfarin ár og stofnkostnaður mun lægri. Með kvótasetningu sé ég frekar möguleika fyrir fólk að byrja grásleppuútgerð þegar vitað er að hverju er gengið. Óvissan í núverandi kerfi er ekki bjóðandi þeim sem eru að reyna að hafa ofan í sig og á með þessari atvinnu, þurfa að ráða mannskap og vera klár með úthaldið en vita ekki hvað er framundan. Því fagna ég hugmyndum um nýliðakvóta í nýju frumvarpi. Í frumvarpinu er komið í veg fyrir samþjöppun aflaheimilda með því að hver útgerð megi einungis eiga 2% af heildaraflamarki grásleppu. Því fagna ég og tel að með þessu yrði svipuð dreifing veiða kringum allt land og því þurfi ekki að hafa stórar áhyggjur af samþjöppun. En um leið eru grásleppuveiðar orðnar útgerðarhæfar og möguleikinn til að efla útgerðina til staðar upp að vissu marki. Ég styð hugmyndir varðandi staðbundin veiðisvæði við grásleppuveiðar en tel mikilvægt að ávallt sé haft samráð við heimamenn þegar svæðin eru ákvörðuð. Ég styð frumvarpið, finnst það liggja nokkuð ljóst fyrir og taka á því sem við grásleppusjómenn höfum verið að kalla eftir. Valentínus Guðnason, Stykkishólmi. Gerði fyrst út á grásleppu árið 1982 með hléum en samfellt öll sumur síðustu 15 árin. Alla tíð á Breiðafirði.
- #5Atli Vilhelm Hjartarson
Ég er á móti kvótasetningu á grásleppu þar sem að ég tel að það verði erfiðara fyrir nýliða að byrja. Núverandi stjórnun er ekki fullkomin en það er hægt að breyta því sem nú er án þess að það komi til kvótasetningar. Finnst þetta frumvarp koma illa við þá sem eru nýbúnir að kaupa sér grásleppuleyfi, hafa ekki náð að vina sér inn veiðireynslu en koma líklega til með að sitja uppi með verðlaus og ógild leyfi. Læt fylgja hérna með viðhengi þar sem er stiklað á stóru varðandi þetta mál. þá aðallega sem vísan í svör við greinagerð starfshóps. kv.Atli Vilhelm Hjartarson nýliði
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.