Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-69/2023 · Dómsmálaráðuneytið

Fjárnám og nauðungarsala - stafræn málsmeðferð

Áform um lagasetningu til þess að heimila stafræna málsmeðferð í fjárnáms- og nauðungarsölumálum.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Í stefnu ríkisstjórnar 2017-2018 var mörkuð sú leið að stafræn þjónusta yrði á árinu 2020 orðin meginleið samskipta á milli hins opinbera og almennings. Áherslur í stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu hins opinbera (Stafrænt Ísland) frá 2021, eru m.a. þær að hið opinbera nýti lausnir á borð við rafrænar undirritanir, fjarfundatækni og aðrar framleiðniaukandi lausnir til að bæta vinnuumhverfi og veita betri þjónustu, og að upplýsingatækni verði hagað á öruggan, skilvirkan og hagkvæman hátt í gegnum trausta innviði sem mæta bæði kröfum almennings til grunnþjónustu stofnana og stuðlar að auknum sveigjanleika opinberrar þjónustu. Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar – Græns framboðs kemur m.a. fram að ríkisstjórnin einseti sér að Ísland sé meðal allra fremstu þjóða á sviði stafrænnar tækni og þjónustu. Markmiðið sé að einfalda stjórnsýslu, bæta þjónustu við almenning og auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum með nýtingu stafrænna lausna. Tímabært þykir að hefja stafræna málsmeðferð fullnustumála sem lúta að innheimtu fjárkrafna, til þess að stuðla að því sem fram kemur í stjórnarsáttmálanum. Áformin fela í sér breytingar sem gera þarf á lögum um aðför, nr. 90/1989, og lögum um nauðungarsölu, nr. 91/1991, til að lögfesta heimild til stafrænnar málsmeðferðar í fjárnámsmálum og nauðungarsölumálum. Þá er lögð áhersla að bæta fræðslu og leiðbeiningar til málsaðila m.a. með því að auka gegnsæi málsmeðferðarinnar. Lagabreytingin sem stefnt er að mun hafa áhrif á gerðarbeiðendur, sem eru til að mynda fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóðir, Fjársýslan og Skatturinn auk lögmanna sem starfa í umboði gerðabeiðenda. Tími og vinna sparast ef fullnustubeiðni er send rafrænt og miðað er að því að mögulegt verði að fækka fyrirtökum, sem leiðir til þess að bílferðir verða færri. Ábati stafrænnar málsmeðferðar lækkar málskostnað gerðarþola, sem eru einstaklingar og fyrirtæki. Auk þess skapast tækifæri á að koma leiðbeiningum betur til gerðarþola, auka yfirsýn beggja málsaðila og bæta þjónustu við þá. Þá verða leiðbeiningar, tilkynningar og gögn málsins ávallt aðgengileg með rafrænum hætti á grundvelli rafrænnar auðkenningar. Hér er verið að stíga mikilvægt skref til framþróunar með því að bæta heimild í lögin til stafrænnar málsmeðferðar en halda inni ákvæðum um gildandi ferli.

S-69/2023· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. mar. 2023 – 14. apr. 2023· 1 umsögn

Fjárnám og nauðungarsala - stafræn málsmeðferð

Áform um lagasetningu til þess að heimila stafræna málsmeðferð í fjárnáms- og nauðungarsölumálum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-69/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. apríl 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (19. október 2026)

Ein umsögn barst og hélt málið áfram í vinnuslu sbr. mál nr. 217/2023.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-69/2023: Fjárnám og nauðungarsala - stafræn málsmeðferð · Alviti