Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-18/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997

Draga úr beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og tryggja réttaröryggi sjúklinga í þeim tilvikum sem nauðung er beitt.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar); 154. þing (áætlað: október).

Heilbrigðisráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga þar sem lagðar eru til breytingar sem fela meðal annars í sér styrkingu á þeirri meginreglu að beiting nauðungar sé óheimil. Frumvarpið var fyrst lagt fram á 151. löggjafarþingi (563. mál) en náði þá ekki fram að ganga og var því lagt fram öðru sinni á 152. löggjafarþingi (150. mál), nánast óbreytt en að teknu tilliti til breytingartillagna frá velferðarnefnd. Vegna athugasemda ýmissa hagsmunasamtaka sjúklinga um skort á samráði við gerð frumvarpsins ákvað heilbrigðisráðherra að afturkalla frumvarpið og setja á fót samráðshóp notenda. Þeim samráðshópi var falið að fjalla um frumvarp út frá sjónarhorni notenda og leggja til breytingar á frumvarpinu í því augnamiði að ná breiðari sátt um málið. Samráðshópurinn var skipaður fulltrúum sem tilnefndir voru af landssamtökunum Geðhjálp, Landssambandi eldri borgara, Hugarafli, Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp auk tveggja fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins sem voru skipaðir án tilnefningar. Meginniðurstaða samráðhópsins var að leggja skuli áherslu á að í lögum um réttindi sjúklinga verði sú meginregla styrkt að beiting nauðungar sé óheimil. Þá var það niðurstaða samráðshópsins að ólíklega yrði hjá því komist að í neyðartilfellum yrði nauðung beitt, annars vegar til að uppfylla lífsnauðsynlegar þarfir sjúklings eða hins vegar til að tryggja öryggi sjúklings. Hópurinn taldi nauðsynlegt að settar væru skýrar reglur m.t.t. einstaklingsbundins mats á aðstæðum, verklagi framkvæmdar, skráningar í sjúkraskrá, tilkynningaskyldu til eftirlitsaðila, innri og ytri endurskoðun (kæru) og tryggja þyrfti að þessum reglum sé ávallt fylgt ef til beitingu nauðungar í neyðartilfelli kemur. Samráðshópurinn taldi æskilegt að stjórnvöld, heilbrigðistofnanir, fagfólk, notendur og aðstandendur starfi áfram saman að því markmiði að draga úr beitingu nauðungar á heilbrigðisstofnunum í íslensku samfélagi og afleiðingum þess fyrir sjúklinga. Í því samhengi taldi hópurinn nauðsynlegt að í reglugerð tengdum lögum þessum kæmi fram að stofnanir séu skyldugar til að veita viðrun og úrvinnslu fyrir sjúkling strax í kjölfar beitingu nauðungar, innleiða verklag er lýsir framkvæmd samtals og skráningar meðferðaráætlunar fyrir hvern sjúkling í kjölfar neyðartilfellis þar sem nauðung var beitt. Einnig skyldi því lýst í reglugerð hvernig útfærsla úrvinnslu og ráðgjafar skyldi háttað fyrir sjúklinga sem upplifa langvarandi afleiðingar af beitingu nauðungar. Þær tilteknu breytingar sem samráðshópurinn lagði til hafa það allar að leiðarljósi að þrengja heimildir til beitingu nauðungar frá fyrra frumvarpi, tryggja frekar tilkynningarskyldu heilbrigðisstofnanna og auka réttaröryggi sjúklinga almennt. Tekið er tillit til allra tillagna samráðshópsins í frumvarpsdrögum. Þá hefur tillaga samráðshópsins um færslu úrskurðarhlutverks frá sérfræðiteymi verið útfærð og lagt er til að hlutverk það verði hjá úrskurðanefnd velferðarmála en þó með þeim hætti að fulltrúi notenda ásamt heilbrigðisstarfsmanni með þekkingu á málaflokknum sitji í nefndinni í málum vegna beitingu nauðungar.

S-18/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. jan. 2023 – 14. feb. 2023· 7 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997

Draga úr beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og tryggja réttaröryggi sjúklinga í þeim tilvikum sem nauðung er beitt.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-18/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. febrúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 1105)
Niðurstöður samráðs (20. október 2023)

Sjá mál nr. 83/2023

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Örn Helgason

    Góðan dag. Ég vil benda á að nauðung er ekki bara beitt inn á spítala heldur einnig utan spítalans og þá í gegnum hin ýmsu teymi eins og t.d. samfélagsgeðteymið. Þar eru einstaklingar sem búa jafnvel í sjálfstæðri búsetu beittir þeirri nauðung að vera neyddir í lyfjagjafir gegn þeirra vilja. Það er mín ósk að í þessu frumvarpi verði einnig séð til þess að þessum teymum verði gert erfiðar fyrir að svipta fólk réttindum sínum og beita þau nauðung. Vinsamlegast sendið mér svar ef þið hafið lesið þetta á tölvupóstfang mitt.

  • #2Karl Reynir Einarsson
    Stjórn Geðlæknafélags Íslands (G.í.) fagnar framkomnu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Löngu er tímabært að setja skýrari lagaramma um beitingu nauðungar á heilbrigðisstofnunum. Stjórn G. Í. vill þó koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1.Neyðartilvik eru skilgreind of þröngt í lögunum (27. gr. d.) þar sem segir: „Sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir yfirvofandi líkamstjón, stórfellt eignatjón eða röskun á almannahagsmunum er heimilt að beita nauðung án undangenginnar ákvörðunar skv. 27. gr. c. „. Bent er á að ekki er óalgen… Lesa alla

    Stjórn Geðlæknafélags Íslands (G.í.) fagnar framkomnu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Löngu er tímabært að setja skýrari lagaramma um beitingu nauðungar á heilbrigðisstofnunum. Stjórn G. Í. vill þó koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1.Neyðartilvik eru skilgreind of þröngt í lögunum (27. gr. d.) þar sem segir: „Sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir yfirvofandi líkamstjón, stórfellt eignatjón eða röskun á almannahagsmunum er heimilt að beita nauðung án undangenginnar ákvörðunar skv. 27. gr. c. „. Bent er á að ekki er óalgengt að einstaklingar veikist með þeim hætti að nauðsynlegt sé að grípa tafarlaust inn í með nauðung jafnvel þótt þessi skilyrði séu ekki fyrir hendi. Sem dæmi má nefna einstaklinga sem fara í oflætisástand (maníu) eða geðrof sem getur orðið til þess að dómgreind skerðist og hegðun og atferli breytist með þeim hætti að að það getur valdið viðkomandi einstaklingi verulegri andlegri vanlíðan seinna meir þegar sjúkdómsástandið er gengið yfir. Sem dæmi um slíkt mætti nefna símhringingar í fjölmiðla eða tjáning á samfélagsmiðlum. Mikilvægt er að skýr lagastoð sé fyrir tafarlausu inngripi við þessar aðstæður t.d. með því að takmarka aðgang að síma eða tölvu. Stjórn G.Í. telur ennfremur að heimild til að beita nauðung til að koma í veg fyrir „yfirvofandi líkamstjón“ sé of þröngt skilgreind. Ef ekki er skýr heimild til að leita á einstaklingum og eigum þeirra við komu á geðdeild, eða heimild til að takmarka umgengni við aðra eða takmarka aðgang að eigum, þá getur það mögulega skapað hættu fyrir þá sjálfa, aðra skjólstæðinga heilbrigðisstofnunarinnar og starfsfólk. Þótt hættan sé ekki yfirvofandi þá er hún til staðar og of áhættusamt að bíða eftir úrskurði sérfræðiteymis. Mikilvægt er því að heimild til nauðungar sé rýmkuð t.d. með því að orðalagi sé breytt úr „yfirvofandi líkamstjón“ í „mögulegt líkamstjón“. Óbreyttur lagatexti getur leitt til þess að erfiðara verði að frá fólk til starfa á geðdeildum og eðlilegri starfsemi geðdeilda landsins stefnt í hættu. 2.Í 27. gr. g. er fjallað um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þar kemur fram að úrskurðarnefndin skuli kveða upp úrskurð inn fjögurra daga frá því að kæra berst annars falli hin kærða ákvörðun úr gildi. Afar óheppilegt er að þær aðstæður geti skapast, að nauðung, sem bæði meðferðaraðili og sérfræðiteymi hafa talið nauðsynlega, falli úr gildi ef dráttur verður á málsmeðferð úrskurðarnefnda. Verulegar líkur eru á að góð rök séu fyrir þeirri ráðagerð. Betra væri að slík mál væru afgreidd á annan hátt en að hin kærða ákvörðun félli úr gildi. Þannig gæti komið fram í lögum að hinn kærði úrskurður héldi gildi sínu þar til þar til úrskurður félli, jafnvel þótt dráttur hefði orðið á málinu, eða að kæran færi þá í annan stjórnsýslulegan eða lagalegan farveg. 3.Í 27. gr. i. er fjallað um sérfræðiteymi um beitingu nauðungar. Í lögum nr.88/2011 um réttindagæslu fyrir fatlað fólk er fjallað um sérfræðiteymi sem hefur það að markmiðið að draga úr beitingu nauðungar. Í 14. gr. þeirra laga segir m.a.. „Sérfræðiteymið skal skipað einstaklingum með sérþekkingu á málefnum fatlaðs fólks og þekkingu og reynslu af aðferðum til að koma í veg fyrir beitingu nauðungar“. Stjórn G.Í. telur eðlilegt að sömu sjónarmið séu uppi þegar sérfræðiteymi er skipað af ráðherra skv. lögum um réttindi sjúklinga nr.74/1997. Mikilvægt er að einstaklingar í nefndinni séu með sérþekkingu á þeim málaflokki sem það fjallar um. Þótt reynsla og rödd notenda sé mikilvæg í stefnumótum og undirbúningi lagasetninga þá eiga sömu sjónarmið ekki endilega við þegar einstök mál eru til meðferðar hjá nefndum á stjórnsýslustigi þar sem reynir á þekkingu á flóknum lögfræðilegum og læknisfræðilegum úrlausnarefnum. Stjórn G.Í. telur því eðlilegt að allir nefndarmenn hafi til þess bæra sérþekkingu á málaflokknum. 4.Ljóst er að frumvarpið mun hafa töluvert aukna vinnu í för með sér og fjölga þarf starfsfólki. Mikilvægt er því að þessu sé mætt með auknum fjárveitingum til viðeigandi heilbrigðisstofnana og að fram fari ítarleg kostnaðargreining á áhrifum frumvarpsins. Fyrir hönd stjórnar G.Í. Karl Reynir Einarsson, formaður

  • #3Öryrkjabandalag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ - réttindasamtaka.

  • #4Geðhjálp

    Meðfylgjandi er umsögn landssamtakanna Geðhjálpar.

  • #5Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-18/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 · Alviti