Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-218/2023 · Dómsmálaráðuneytið

Breytingar á réttarfarslöggjöf (miðlun og form gagna, fjarþinghöld og birting ákæru í stafrænu pósthólfi)

Lagðar til breytingar á réttarfarslöggjöf sem miða að tæknilegu hlutleysi og heimila auk þess í auknum mæli notkun fjarfundarbúnaðar við skýrslugjafir og birtingu ákæra í stafrænu pósthólfi.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., sem flestar miða að því að gera samskipti þeirra sem vinna á grunni löggjafarinnar tæknilega hlutlaus og skapa forsendur til að nýta tæknilausnir í ríkari mæli í réttarvörslukerfinu. Breytingarnar miða að því að gera réttarfarslöggjöfina hlutlausa um afhendingarmáta gagna og tilkynninga og heimila meðal annars í auknum mæli notkun rafrænnar lausna í stað undirritanna með eigin hendi, festa í sessi í almennum ákvæðum heimildir til að nota fjarfundabúnað við rekstur einka- og sakamála fyrir dómi og við skýrslugjöf hjá lögreglu, auk þess að heimila stafræna birtingu ákæra og annarra skjala við rannsókn og meðferð sakamála sem nú krefjast tiltekins birtingarmáta.

S-218/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. nóv. 2023 – 20. nóv. 2023· 9 umsagnir

Breytingar á réttarfarslöggjöf (miðlun og form gagna, fjarþinghöld og birting ákæru í stafrænu pósthólfi)

Lagðar til breytingar á réttarfarslöggjöf sem miða að tæknilegu hlutleysi og heimila auk þess í auknum mæli notkun fjarfundarbúnaðar við skýrslugjafir og birtingu ákæra í stafrænu pósthólfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-218/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. nóvember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (24. september 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi og varð að lögum nr. 53/2024. https://www.althingi.is/altext/stjt/2024.053.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Gunnar Örn Jónsson
    Gerð er athugasemd við 31. gr. frumvarpsdraganna. Lög nr. 105/2021 mæla fyrir um ákveðna meginreglu um rafræna birtingu gagna af hálfu stjórnvalda, sbr. 7. gr. laganna. Vegna samræmis- og jafnræðissjónarmiða er varasamt að ætla að taka einstaka flokka skjala út og hafa sérreglur um birtingu þeirra. Hætt er við að slíkar undantekningar verði að meginreglu og flæki framkvæmd rafræna birtingar í framtíðinni. Þá er rétt að benda á að Ríkissaksóknari hefur nú nýlega gefið út verklagsreglur nr. 5/2023 m.a. um birtingar í starfrænu pósthólfi, þar sem án undantekninga er byggt á meginreglunni sem… Lesa alla

    Gerð er athugasemd við 31. gr. frumvarpsdraganna. Lög nr. 105/2021 mæla fyrir um ákveðna meginreglu um rafræna birtingu gagna af hálfu stjórnvalda, sbr. 7. gr. laganna. Vegna samræmis- og jafnræðissjónarmiða er varasamt að ætla að taka einstaka flokka skjala út og hafa sérreglur um birtingu þeirra. Hætt er við að slíkar undantekningar verði að meginreglu og flæki framkvæmd rafræna birtingar í framtíðinni. Þá er rétt að benda á að Ríkissaksóknari hefur nú nýlega gefið út verklagsreglur nr. 5/2023 m.a. um birtingar í starfrænu pósthólfi, þar sem án undantekninga er byggt á meginreglunni sem fram kemur í 7. gr. laga nr. 105/2021. Til þess að markmið stjórnvalda náist um rafrænar birtingar og stafræna framtíð er nauðsynlegt að samhljóma reglur gildi um allar birtingar.

  • #2Hagsmunasamtök heimilanna

    Sjá viðhengi.

  • #3Samtök fjármálafyrirtækja

    Meðfylgjandi er umsögn SA og SFF.

  • #4Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

    Meðfylgjandi er umsögn embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

  • #5Ríkissaksóknari

    Umsögn embættis ríkissaksóknara um mál nr. 218/2023 - „Breytingar á réttarfarslöggjöf (miðlun og form gagna, fjarþinghöld og birting ákæru í stafrænu pósthólfi)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-218/2023: Breytingar á réttarfarslöggjöf (miðlun og form gagna, fjarþinghöld og birting ákæru í stafrænu pósthólfi) · Alviti