Brottfall úreltra laga á fjármálamarkaði
Áformað er að fella brott fimmtíu lagabálka á fjármálamarkaði sem eru taldir úreltir eða hafa lokið hlutverki sínu.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-203/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. nóvember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 913)
Niðurstöður samráðs (7. mars 2024)
Engar umsagnir bárust. Ráðuneytinu bárust aftur á móti ábendingar frá Ríkisábyrgðasjóði um að varkárara gæti verið að halda í gildi lögum sem heimiluðu stjórnvöldum að veita ábyrgðir í þágu alþjóðlegra stofnana. Þá væri í lögum um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands, nr. 50/1997, mælt fyrir um ríkisábyrgð sem gæti enn haft þýðingu. Með tilliti til ábendinganna er í frumvarpinu ekki gert ráð fyrir brottfalli lagabálka í kafla 29. c í lagasafninu um alþjóðlegar lána- og fjármálastofnanir né laga um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands.
- Áform um brottfall úreltra laga á fjármálamarkaði
- Frummat á áhrifum brottfalls úreltra laga á fjármálamarkaði
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt
Engar umsagnir hafa borist.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.