Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-44/2023 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: desember); 154. þing (áætlað: september).

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að samræma löggjöf við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og styrkja umgjörð um þjónustu og snemmtækan stuðning í þágu barna. Jafnframt miðar frumvarpið að því að auka vægi réttinda barna og tryggja betra samræmi þeirra lagabálka sem um ræðir við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur var árið 2013, sbr. lög nr. 19/2013. Frá vori 2018 hefur staðið yfir umfangsmikil vinna við breytingar í þágu farsældar barna sem meðal annars hefur falist í víðtækri heildarendurskoðun lagaumhverfisins. Árið 2021 voru samþykkt lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, sem fela í sér breytta nálgun í þjónustu við börn. Samþykkt laganna og þær breytingar á verklagi sem þar er að finna kalla á endurskoðun annarrar löggjafar þar sem fjallað er um þjónustu í þágu barna og er gert ráð fyrir því að sú vinna fari fram á þriggja til fimm ára innleiðingartímabili laganna. Frumvarpið er mikilvægur liður í því að styrkja enn frekar umgjörð um þjónustu í þágu barna og stuðla að því að öll börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna taka til allrar þjónustu sem er veitt börnum á ýmsum málefnasviðum mennta- og barnamálaráðuneytis, þ.m.t. í leik-, grunn- og framhaldsskólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum. Þá taka lögin einnig til annars skipulags starfs og þjónustu sem veitt er af hálfu annarra aðila, m.a. í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Um þessa starfsemi gilda nokkrir mismunandi lagabálkar, þ.m.t. lög um leikskóla, nr. 90/2008, lög um grunnskóla, nr. 91/2008, lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008, íþróttalög, nr. 64/1998 og æskulýðslög, nr. 70/2007, og er markmiðið með frumvarpinu að endurskoða ákvæði þeirra. Rétt er að taka fram að áformað er að leggja til frekari breytingar á tilvitnuðum lagabálkum í tengslum við fyrirhugaðar lagabreytingar sem tengjast skólaþjónustu og mennta- og barnamálaráðherra áformar að leggja fram á 154. löggjafarþingi.

S-44/2023· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2023 – 10. mar. 2023· 7 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-44/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 922)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. júní 2023)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi þann 30. mars 2023. Fjallað er um niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðarinnar og í meðfylgjandi niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Kolfinna Njálsdóttir

    Athugasemd varðandi þennan hluta laga um grunnskóla; 22. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna: a. Orðin „sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks,“ í 2. mgr. falla brott. b. Í stað orðins „sérþarfir“ tvívegis í 2. mgr. kemur: þarfir. c. Fyrirsögn greinarinnar verður: Stuðningur í námi. Hugtakinu sérþarfir er skipt út fyrir þarfir á tveimur stöðum (b). Almennt virðist sem þessu hugtaki sé skipt út fyrir hugtakið stuðningsþarfir og velti ég fyrir mér hvers vegna það er ekki gert í þessari grein amk í seinna skiptið. Myndi vilja sjá þetta endurskoðað.

  • #2Öryrkjabandalag Íslands

    Umsögn ÖBÍ – réttindasamtaka um um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.).

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. sambandsins Valgerður Rún

  • #4Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)

  • #5Reykjavíkurborg

    Sjá meðfylgjandi umsögn Reykjavíkurborgar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-44/2023: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.) · Alviti