Áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (vinnustaðanám, innritun o.fl.)
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um frumvarp til breytinga á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-157/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 11. september 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)
Umsagnir bárust frá 10 aðilum. Umsagnirnar voru almennt jákvæðar gagnvart þeim breytingum sem lýst var í áformaskjali og umsagnaraðilar fögnuðu almennt þeim breytingum sem lagðar voru til, einkum þeim er tengjast innritun nemenda í framhaldskóla, réttindum nemenda og ábyrgð og samningum við framhaldsskóla. Ýmsar ábendingar komu fram sem litið verður til við frekari vinnslu málsins. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla verða kynnt almenningi í samráðsgátt stjórnvalda
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (vinnustaðanám, innritun o.fl.)
- #2Hannes Valur Bryndísarson
Umsögn Skólameistarafélags Íslands um áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (vinnustaðanám, innritun o.fl.).
- #3Ólafur Jónsson
Umsögn stjórnar Nemastofu atvinnulífsins
- #4Ársæll Guðmundsson
Það er tímabært að endurskoða lög um framhaldsskóla í ljósi þeirra breytinga sem átt hafa sér stað síðan þau voru samþykkt árið 2008. Þau atriði sem hér eru til umfjöllunar krefjast sérstakrar athygli og vil ég koma eftirfarandi ábendingum á framfæri hvað þau varðar. Vinnustaðanám Þar sem framhaldskólum er ekki heimilt að brautskrá nemendur úr starfsnámi fyrr en að loknu vinnustaðanámi þarf að huga að breytingum á lögum um sveinspróf og en ekki síður reglugerð nr. 698/2009 um framkvæmd sveinsprófa. T.d. gengur ekki að reglugerðin kveði á um að nemendur geti þreytt sveinspróf þó 10% af vi… Lesa alla
Það er tímabært að endurskoða lög um framhaldsskóla í ljósi þeirra breytinga sem átt hafa sér stað síðan þau voru samþykkt árið 2008. Þau atriði sem hér eru til umfjöllunar krefjast sérstakrar athygli og vil ég koma eftirfarandi ábendingum á framfæri hvað þau varðar. Vinnustaðanám Þar sem framhaldskólum er ekki heimilt að brautskrá nemendur úr starfsnámi fyrr en að loknu vinnustaðanámi þarf að huga að breytingum á lögum um sveinspróf og en ekki síður reglugerð nr. 698/2009 um framkvæmd sveinsprófa. T.d. gengur ekki að reglugerðin kveði á um að nemendur geti þreytt sveinspróf þó 10% af vinnustaðanámi sé enn ólokið. Í annan stað þyrfti að koma fram í lögum skýr heimild framhaldsskóla til að sveinspróf verði lokamat í skóla fyrir brautskráningu eða skerpa á því að nemendur geti brautskrást frá skóla með sveinspróf. Þar sem sveinspróf er fyrst og fremst námsmat verður að huga að breytingu á 6. gr. reglurgerðar nr. 698/2009 og tryggja að í sveinsprófsnefndum sé einhver fagþekking á námsmati. Breyta þarf lögum um framkvæmd sveinsprófa á þann veg að heimila skólum að framkvæma sveinspróf þar sem tryggja nemendum réttindi á vinnumarkaði við brautskráningu úr skóla. Hlutverk sveinsprófsnefnda þarf að breytast í að verða ráðgefandi við lokamat í skóla þegar um starfsnám er að ræða og í eftirlit með að lokapróf nemenda fyrir brautskráningu standist skoðun og að gæðakröfum sé fullnægt. Skýra þarf heimild skólameistara til að hafna því að nemandi sæki vinnustaðanám t.d. vegna mats kennara/skólameistara um vanhæfi nemandans á að sækja slíkt nám þar sem ekki sé talið líklegt að viðkomandi ljúki náminu. Það er ekki framkvæmanlegt að ætla skólum skilyrðislaust að útvega öllum nemendum, burtséð frá hæfni þeirra og getu, vinnustað til að starfa á og læra. Innritun nemenda í framhaldsskóla Með örri fjölgun íbúa með mismunandi bakgrunn og menningu á Íslandi er mjög mikilvægt að falla ekki í þá gryfju að til verði aðskilnaðarstefna í landinu m.t.t. aðgengi að skólum sem veita nám á framhaldsskólastigi. Eins og raunveruleikinn er núna er hætta á að til verði framhaldsskólar fyrir ákveðna þjóðfélagshópa – forréttindahópa í samfélaginu sem á seinni stigum mun kristallast í mikilli stéttaskiptingu og mismunun þegnanna. Það er mjög mikilvægt að framhaldsskólar endurspegli það samfélag sem mótar Ísland hverju sinni. Viðbrögð við ofbeldismálum Undanfarin misseri hafa skólastjórnendur orðið varir við aukið ofbeldi í skólum, bæði orði og verki. Fer það saman við aukið og grófara ofbeldi í samfélaginu. Ekki nægir að skrifa í lög aukna ábyrgð nemenda því þeir einstaklingar sem eru í greipum ofbeldismenningar láta sér slíkt litlu varða. Mjög mikilvægt er að auka völd skólameistara (valdheimildir) til að grípa inn í atburðarás sem gæti stefnt öryggi nemenda og starfsfólks í hættu. Má þar nefna að gefa skólameistara heimild til að leita í töskum og leita á nemendum ef grunur sé uppi um hættuleg efni eða vopn í fórum nemenda. Einnig setja í lög skýra heimild skólameistara til að víkja nemanda frá skóla tímabundið meðan skoðun á málum hans á sér stað í allt að viku. Einnig verður ávallt að hafa í huga að framhaldsskólar eru mennta- og uppeldisstofnanir sem starfa með það að augnamiði að þroska og mennta ungt fólk. Ber skólum að styðja við alla nemendur í þeirri vegferð.
- #5Elsa María Rögnvaldsdóttir
Umsögn Fagfélaganna um áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.