Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-180/2023 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 (reglugerðarheimildir)

Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Frumvarpið felur í sér afmarkaðar breytingar lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að bæta við heimildum mennta- og barnamálaráðherra til setningu reglugerða. Lagðar eru til breytingar sem heimila mennta- og barnamálaráðherra að setja reglugerðir á grundvelli VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga. Hinn 11. júní 2021 samþykkti Alþingi frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021, sem tók til starfa 1. janúar 2022 og heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sbr. forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022. Stofnunin fer með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli nánar tilgreindara laga, þ.m.t. barnaverndarlaga, nr. 80/2002 og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Á þeim tíma sem frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála var í vinnslu voru umræddir lagabálkar á málefnasviði þáverandi félagsmálaráðuneytis. Með breytingum á skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 voru málefni barna og ungmenna, þ.m.t. barnavernd og VIII. kafli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga flutt frá félagsmálaráðuneyti til mennta- og barnamálaráðuneytis. Fer Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála því með eftirlit með gæðum þjónustu á grundvelli lagabálka sem heyra bæði undir mennta- og barnamálaráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, en stofnunin sjálf heyrir undir síðarnefnda ráðuneytið. Í lögum nr. 88/2021 er að finna fjölmargar heimildir ráðherra til setningu reglugerða. Í þeim tilgangi að samræma og straumlínulaga fyrirkomulag leyfisveitinga og eftirlits var samhliða ákveðið að fella brott sambærilegar heimildir í öðrum lögum, þar á meðal í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlögum. Þegar sú leið var lögð upp var ekki gert ráð fyrir að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála færi með eftirlit með gæðum þjónustu sem heyrði undir annan ráðherra en þann sem fer með yfirstjórn stofnunarinnar, eins og reyndin er í dag. Eftir rýni er talið rétt að gera breytingar á 84., 86. og 91. gr. barnaverndarlaga og 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem ákvæðin eru færð til fyrra horfs með því að bæta við þau sambærilegum reglugerðarheimildum og voru í gildi fyrir gildistöku laga nr. 88/2021. Þannig er skýrt er að sá ráðherra, sem fer með yfirstjórn og eftirlit með starfsemi sem þar er fjallað um, hafi heimildir til að setja reglugerðir um starfsemina.

S-180/2023· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. okt. 2023 – 16. okt. 2023· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 (reglugerðarheimildir)

Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-180/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 497)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-180/2023: Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 (reglugerðarheimildir) · Alviti