Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-41/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir o.fl.)

Frumvarpinu er ætlað að innleiða efni tveggja Evrópugerða um sölu sjóða yfir landamæri og kveða á um heimildir til þess að reka sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta sem höfuðsjóði og fylgisjóði.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðar (ESB) 2019/1156 og lögfesting ákvæða tilskipunar (ESB) 2019/1160, sem breytir tilskipun 2009/65/EB um verðbréfasjóði og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða í tengslum við sölu sjóða yfir landamæri. Einnig eru lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða til að þar verði kveðið á um heimildir til rekstrar sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta sem höfuðsjóði og fylgisjóði að uppfylltum sambærilegum kröfum og á við um verðbréfasjóði sem reknir eru sem höfuðsjóðir eða fylgisjóðir skv. XI. kafla laga um verðbréfasjóði. Þá er lagt til að hámark á stjórnvaldssektir einstaklinga samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, og lögum um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, nr. 31/2022, verði hækkað úr 65 millj. kr. í 800 millj. kr. Er sú breyting til samræmis við það sem kveðið er á um í annarri löggjöf á fjármálamarkaði, svo sem lögum um verðbréfasjóði og lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.

S-41/2023· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. feb. 2023 – 10. mar. 2023· 1 umsögn

Breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir o.fl.)

Frumvarpinu er ætlað að innleiða efni tveggja Evrópugerða um sölu sjóða yfir landamæri og kveða á um heimildir til þess að reka sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta sem höfuðsjóði og fylgisjóði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-41/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 880)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. mars 2023)

Ein umsögn barst. Fjallað er um efni hennar og hvernig brugðist hafi verið við henni í 5. kafla í greinargerð með frumvarpi til laga um um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir o.fl.) sem fjármála- og efnahagsráðherra lagði fyrir Alþingi í mars 2023 (880. mál á 153. löggjafarþingi).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-41/2023: Breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir o.fl.) · Alviti