Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-158/2023 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um breytingu á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir)

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars); 154. þing (áætlað: mars).

Áformað frumvarp felur í sér afmarkaðar breytingar lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að bæta við heimildum mennta- og barnamálaráðherra til setningu reglugerða. Lagðar eru til breytingar sem heimila mennta- og barnamálaráðherra að setja reglugerðir á grundvelli VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga. Hinn 11. júní 2021 samþykkti Alþingi frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021, sem tók til starfa 1. janúar 2022 og heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sbr. forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022. Stofnunin fer með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli nánar tilgreindara laga, þ.m.t. barnaverndarlaga, nr. 80/2002 og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Á þeim tíma sem frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála var í vinnslu voru umræddir lagabálkar á málefnasviði þáverandi félagsmálaráðuneytis. Með breytingum á skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 voru málefni barna og ungmenna, þ.m.t. barnavernd og VIII. kafli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga flutt frá félagsmálaráðuneyti til mennta- og barnamálaráðuneytis. Fer Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála því með eftirlit með gæðum þjónustu á grundvelli lagabálka sem heyra bæði undir mennta- og barnamálaráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, en stofnunin sjálf heyrir undir síðarnefnda ráðuneytið. Í lögum nr. 88/2021 er að finna fjölmargar heimildir ráðherra til setningu reglugerða. Í þeim tilgangi að samræma og straumlínulaga fyrirkomulag leyfisveitinga og eftirlits var samhliða ákveðið að fella brott sambærilegar heimildir í öðrum lögum, þar á meðal í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlögum. Þegar sú leið var lögð upp var ekki gert ráð fyrir að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála færi með eftirlit með gæðum þjónustu sem heyrði undir annan ráðherra en þann sem fer með yfirstjórn stofnunarinnar, eins og reyndin er í dag. Þessar aðstæður kalla á að reglugerðarheimildir séu rýndar að nýju. Mikilvægt er að áfram sé lögð áhersla á að straumlínulaga málsmeðferð en að á sama tíma sé skýrt að mennta- og barnamálaráðherra setur reglugerðir sem varða efnislega framkvæmd mála á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis.

S-158/2023· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. ágú. 2023 – 11. sep. 2023· 0 umsagnir

Áform um breytingu á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir)

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-158/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. september 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 497)
Niðurstöður samráðs (2. október 2023)

Engin umsögn barst við áformin.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-158/2023: Áform um breytingu á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir) · Alviti