Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-235/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar)

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Um er að ræða tillögu sem fellst í breytingu á 13. gr. laga nr. 44/2014. Umrætt ákvæði fjallar um umfjöllun Persónuverndar á vísindarannsóknum á heilbrigðissviði. Með tillögunni er gert ráð fyrir að siðanefndum verði ekki lengur skylt að senda umsóknir sem þeim berast til Persónuverndar. Lagt er til í frumvarpinu að horfið verði frá þeirri framkvæmd sem vísindasiðanefnd og siðanefndir heilbrigðisrannsókna hafa viðhaft, þ.e. að senda umsóknir um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði til Persónuverndar og bíða eftir afstöðu stofnunarinnar áður en leyfi er gefið út. Með breytingunni er gert ráð fyrir að hvorki yfirlit yfir umsóknir né umsóknirnar sem slíkar verði sendar Persónuvernd til umfjöllunar nema í undantekningar tilvikum. Þannig er sérstaklega lagt til í frumvarpinu að vísindasiðanefnd eða siðnefnd heilbrigðisrannsókna verði gert heimilt að óska eftir umsögn Persónuverndar í undantekningartilvikum ef siðanefnd telur að vafi leiki á um hvort rannsókn uppfylli skilyrði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá er lagt til að tvær nýjar málsgreinar bætist við 30. gr. laganna sem er ætlað að skýra betur eftirlits- og rannsóknarheimildir Persónuverndar og á sama tíma hugsuð sem mótvægi við þær breytingar sem lagðar eru til á 13. gr. laganna.

S-235/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. nóv. 2023 – 1. des. 2023· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar)

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-235/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. desember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 905)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. júlí 2024)

Máli er lokið með samþykktu frumvarpi https://www.althingi.is/altext/154/s/2090.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-235/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar) · Alviti