Frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands
Frumvarpið felur í sér að Mannréttindastofnun Íslands verði komið á fót. Stofnunin mun sinna hlutverki sjálfstæðrar innlendrar mannréttindastofnunar hér á landi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-110/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 21. júlí 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 239)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. febrúar 2024)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í september 2023. Fjallað er um niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
- #1Rachael Lorna Johnstone
Sjá bréf í viðhengi, kv, Rachael
- #2Skagafjörður
Á 53. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 21. júní 2023 var tekið fyrir mál til samráðs nr 110/2023, Frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands, og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir áherslur um að efla og vernda mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins. Byggðarráð minnir á í tengslum við fyrirætlan um nýja stofnun á vegum ríkisins að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er áhersla á að til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Jafnframt að stutt verði við starfsaaðstö… Lesa alla
Á 53. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 21. júní 2023 var tekið fyrir mál til samráðs nr 110/2023, Frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands, og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir áherslur um að efla og vernda mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins. Byggðarráð minnir á í tengslum við fyrirætlan um nýja stofnun á vegum ríkisins að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er áhersla á að til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Jafnframt að stutt verði við starfsaaðstöðu hins opinbera á landsbyggðinni. Byggðarráð telur því einboðið að ef ný Mannréttindastofnun verður sett á laggirnar verði hún staðsett fjarri höfuðborgarsvæðinu. Í þessu tilfelli er ekki um að ræða flutning stofnunar heldur nýja stofnun. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #3Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands
- #4Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um málið.
- #5Stella Samúelsdóttir
Umsögn UN Women á Íslandi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.