Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu)
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða ásamt mati á áhrifum lagasetningarinnar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-67/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 20. mars 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 44 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 976)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. nóvember 2024)
Frumvarpið var lagt fram á 153. löggjafarþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (44)
- #1Vilhjálmur Ólafsson
Það hlýtur að vera ætlunin að breyta viðmiðunarárum frá 2014-19 í 2018 til 23. Með því að hafa þetta á fyrri árunum er verið að flækja framkvæmdina mikð og auka vinnu Fiskistofu. Mjög mörg leyfi hafa verið í geymslu lengi. Engin ástæða er til að úthluta aflahlutdeild á veiðileyfi sem ekki hafa verið í notkun í fjölda ára. Látið þá hafa aflahlutdeild sem eru að vinna í þessu í dag ekki þá sem eru sestir í helgan stein.
- #2Vilhjálmur Ólafsson
Það eru alls 447 grásleppuréttindi skráð hjá Fiskistofu. Þar af eru 60 réttindi sem hafa ekki verið notuð síðan árið 2015. Það er að segja ef ég tek út öll þau réttindi sem eru með geymsluártalið 2016. Gera má ráð fyrir að um 350 bátar stundi veiðar ár hvert. Ég legg til að einungis þau réttindi sem hafa verið virkjuð undanfarin 6 ár komi til greina við úthlutun og engin lágmarks úthlutun komi á þau réttindi. Ég legg til að bátar fái ekki úthlutun aflamarks fyrr en þeir landa afla og hafi þar af leiðandi hafið veiðar. Veiðiskylda stofnist strax og ef ekkert er veitt í tvö ár falli… Lesa alla
Það eru alls 447 grásleppuréttindi skráð hjá Fiskistofu. Þar af eru 60 réttindi sem hafa ekki verið notuð síðan árið 2015. Það er að segja ef ég tek út öll þau réttindi sem eru með geymsluártalið 2016. Gera má ráð fyrir að um 350 bátar stundi veiðar ár hvert. Ég legg til að einungis þau réttindi sem hafa verið virkjuð undanfarin 6 ár komi til greina við úthlutun og engin lágmarks úthlutun komi á þau réttindi. Ég legg til að bátar fái ekki úthlutun aflamarks fyrr en þeir landa afla og hafi þar af leiðandi hafið veiðar. Veiðiskylda stofnist strax og ef ekkert er veitt í tvö ár falli hlutdeildir niður.
- #3Guðmundur Gísli Geirdal
Það slær mig afar illa að sjá hvernig reikningskúnstum hér er beitt. Vil ég benda 8.grein laga um stjórn fiskveiða nr 116/2006 en þar segir 9. gr. □1 Verði veiðar takmarkaðar skv. 3. gr. á tegundum sjávardýra sem samfelld veiðireynsla er á, en ekki hafa áður verið bundnar ákvæðum um leyfðan heildarafla, skal aflahlutdeild úthlutað á grundvelli aflareynslu síðustu þriggja veiðitímabila. […] 1) Því er alveg fráleitt að nota 2014 til 2019 sem viðmiðun, enda fer það gegn lögunum og heilbrigðri skynsemi. Enda myndi það helst hygla þeim sem þegar eða eru að hætta á grásleppuveiðum, jafn… Lesa alla
Það slær mig afar illa að sjá hvernig reikningskúnstum hér er beitt. Vil ég benda 8.grein laga um stjórn fiskveiða nr 116/2006 en þar segir 9. gr. □1 Verði veiðar takmarkaðar skv. 3. gr. á tegundum sjávardýra sem samfelld veiðireynsla er á, en ekki hafa áður verið bundnar ákvæðum um leyfðan heildarafla, skal aflahlutdeild úthlutað á grundvelli aflareynslu síðustu þriggja veiðitímabila. […] 1) Því er alveg fráleitt að nota 2014 til 2019 sem viðmiðun, enda fer það gegn lögunum og heilbrigðri skynsemi. Enda myndi það helst hygla þeim sem þegar eða eru að hætta á grásleppuveiðum, jafnvel búnir að selja sín veiðarfæri til þeirra sem eru vinna við þetta núna, jafnvel nýliða. Hvað varðar nýliðun, þá fagnar undirritaður að tekið sé tillit til þeirra, en um leið er sorglegt að sjá þann tvískinnung sem felst í því að ætla þeim að kaupa heimildir af þeim sem þegar eru hættir, jafnvel fyrir átta árum. Það lýsir mikilli vankunnáttu að gefa það í skyn að það sé ekki kostnaðarsamt að koma sér af stað á þessar veiðar, undirritaður er tilbúinn til þess að leiðrétta það með reikningum. Það er alveg rétt að veiðar á grásleppu eru ekki með mikinn fyrirsjáanleika. Sá vandi er helst fólgin í því að ávalt eru teknar ákvarðanir fyrirvaralaust, ýmist með styttingu eða lengingu tímabils. Ég hvet ykkur til að útdeila heimildum til þeirra sem raunverulega hafa verið að veiða undanfarin 3 ár, ekki til þeirra sem hafa fyrir einhverju síðan lagt árar í bát og eiga nú að fá heimildir sem þeir munu mögulega selja með ófyrirséðum kostnaði fyrir nýliða og þá sem sannarlega stunda veiðar núna. Þetta er eins og fara í atvinnuviðtal, þar sem að starfsreynsla undanfarinna þriggja ára skiptir ekki máli heldur bara sú sem unnin var fyrir allt að átta árum. Þetta er vitaskuld algerlega órökrétt tillaga og ekki í anda laganna. Einnig finnst mér að það að halda veiðisvæðum í óbreyttri mynd eftir að tegundin hefur farið í kvóta ekki vera skynsamleg. Sérstaklega vegna þess að enn er þá hætta á að geðþótta ákvarðanir sem koma iðulega frá stjórnmálamönnum vegna þrýstings veiðimanna víða um landið sem láta þá undan og færa heimildir milli svæða. Betra væri að ef tegund er komin í kvóta að útgerðarmönnum sé treyst til að velja sér veiðisvæði eftir aflageftum og veðri. þessi umsögn verður send á þingmenn atvinnuveganefndar. Guðmundur Geirdal
- #4Bjarni Svanur Kristjánsson
Ég vil hér minna á hvernig grásleppuveiðileyfin eru til kominn þ.e. með reglugerð nr. 58, 18. Janúar 1996 Reglugerð þessi var síðan staðfest með lögum nr.79 1997. „2. gr. Rétt til grásleppuveiðileyfa eiga þeir bátar, sem leyfi til veiða í atvinnuskyni hafa, sbr. lög nr. 38/1990, og fengið hafa grásleppuveiðileyfi á a.m.k. einu áranna 1991, 1992, 1993 eða 1994, enda hafi grásleppuveiðileyfið ekki verið flutt til annars báts.“ Sem sagt aðeins bátar sem stunduðu grásleppuveiðar að minn… Lesa alla
Ég vil hér minna á hvernig grásleppuveiðileyfin eru til kominn þ.e. með reglugerð nr. 58, 18. Janúar 1996 Reglugerð þessi var síðan staðfest með lögum nr.79 1997. „2. gr. Rétt til grásleppuveiðileyfa eiga þeir bátar, sem leyfi til veiða í atvinnuskyni hafa, sbr. lög nr. 38/1990, og fengið hafa grásleppuveiðileyfi á a.m.k. einu áranna 1991, 1992, 1993 eða 1994, enda hafi grásleppuveiðileyfið ekki verið flutt til annars báts.“ Sem sagt aðeins bátar sem stunduðu grásleppuveiðar að minnstakosti eitt þessara ára fengu eftir þetta útgefinn leyfi, bátar sem stunduðu veiðar fyrir árið 1991 fengu ekki leyfi. Miðað við þetta þá eiga aðeins þeir bátar eða grásleppuleyfishafar sem stunduðu grásleppuveiðar einhver árana 2019 2020 2021 eða 2022 rétt á úthlutu á aflahlutdeild, en hugsanlega þarf vegna hringlandaháttar stjórnvalda undanfarin ár að hafa viðmiðunarárin fleiri. En að fara aftur til ársins 2014 er alveg út í hött og alveg útilokað nema ákvæði um að bátar þurfi að hafa stundað þessar veiðar eitthvert fjögurra árana þar á undan þegar lög eru sett. Við getum sett upp dæmi um útgerð sem stundaði þessar veiðar árin 2014 til 2016 og selur síðan leyfið, hefur sem sagt ekki stundað þessar veiðar síðastliðin 6 ár, kaupandi af þessu sama leyfi stundaði veiðar árið 2020 til 2022 en fær enga úthlutun, ef hann hefði hinsvegar hefði keypt leyfið eftir 1jan 2020 þá fengi hann viðmiðun áranna 2020 til 2022, en fyrri eigandi fengi engu að síður einnig úthlutun af sama leyfinu fyrir árin 2014 til 2016. Til þess að koma í veg fyrir svona rugl þá þarf að setja þarna inn ákvæði með skírskotun til upphaflegu reglugerðarinnar og lagasetningar þar um, ákvæði sem styrkir stjórnarskrárvarinn atvinnurétt manna þ.e. að aðeins bátar sem stunduðu grásleppuveiðar einhver árana 2019 2020 2021 eða 2022 eigi rétt á úthlutun á aflahlutdeild. Viðmiðunarárin hljóta að vera næstu undanfarin ár fyrir hlutdeildarsetningu, annað væri mjög óeðlilegt. Eftirfarandi texti í frumvarpsdrögum þarfnast og skýringar. „Fiskistofa skal einnig að teknu tilliti til veiðireynslu, stærð og gerð skips ákveða aflahlutdeild í grásleppu á skip með krókaaflamarki sem stundað hafa grásleppuveiðar skv. 7. gr. Við mat á veiðireynslu skal miða við þrjú bestu veiðitímabil leyfisins sem skráð er á skipið frá og með árinu 2014 til og með árinu 2019.“ Hvaða skip með krókaaflamarki er hér verið að tala um? Skip sem eru með grásleppuleyfi eru allt eins á aflamarki, eða er hér verið að tala um skip sem eru ekki með grásleppuleyfi?
- #5Pétur Arnfjörð Ólafsson
Hér með mótmæli ég því að gráslepan verði sett í kvóta. Hingað til hefur þetta gengið vel því skil ég ekki þessa þælu að vera setja gráslepu í kvóta bara til þess að eiðalegja fyrir nýliðum. það ein sem ég sé gerast við það að gráslepa fari í kvóta er að hann safnast á orfáar hendur aðalega þessa stóru hvóta eigendur sem geta nota það svo í tilfærslur. kvóta kerfið hefur ekki gagnast einum né neimum nema þeim stóru sem fengu allan hvótan gefins . maður hefur stunad þessa veiði í 30 ár + án nokkurs vandæða. Dagakerfið hefuyr sannað að það er gott kerfi og gefur nýliðum tækifæri á að stunda vinn… Lesa alla
Hér með mótmæli ég því að gráslepan verði sett í kvóta. Hingað til hefur þetta gengið vel því skil ég ekki þessa þælu að vera setja gráslepu í kvóta bara til þess að eiðalegja fyrir nýliðum. það ein sem ég sé gerast við það að gráslepa fari í kvóta er að hann safnast á orfáar hendur aðalega þessa stóru hvóta eigendur sem geta nota það svo í tilfærslur. kvóta kerfið hefur ekki gagnast einum né neimum nema þeim stóru sem fengu allan hvótan gefins . maður hefur stunad þessa veiði í 30 ár + án nokkurs vandæða. Dagakerfið hefuyr sannað að það er gott kerfi og gefur nýliðum tækifæri á að stunda vinnu og taka þát í sjávar útveginum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.