Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-5/2024 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastvörur)

Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta skilyrði um áfasta tappa og lok á einnota drykkjarílátum og –umbúðum úr plasti sem sett eru á markað hér á landi frá og með 3. júlí 2024.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: mars).

Markmiðið með frumvarpinu er að draga úr magni plasts sem losnar út í umhverfið og áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks. Tilefni lagasetningarinnar er innleiðing ákvæðis 1. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Ákvæðið mælir fyrir um gerð og samsetningu tiltekinna einnota plastvara að því leyti að einungis megi setja einnota drykkjarílát og –umbúðir úr plasti með tappa eða lok úr plasti á markað ef tappinn eða lokið er áfast vörunni á meðan fyrirhuguð notkun hennar stendur yfir. Tilgangurinn með ákvæðinu er að koma í veg fyrir að tappar og lok af einnota drykkjarílátum og –umbúðum endi á víðavangi og úti í umhverfinu. Í frumvarpinu er lagt til að við 37. gr. g laga um hollustuhætti og mengunarvarnir bætist ný málsgrein sem kveður á um að tilteknar einnota plastvörur sem eru með tappa eða lok úr plasti verði einungis heimilt að setja á markað hér á landi ef tapparnir og lokin eru áfram föst við viðkomandi vörur á meðan fyrirhuguð notkun á þeim stendur yfir. Breytingin mun leiða til þess að tappar og lok á algengum neysluvörum á íslenskum markaði þurfa að vera áföst vörunum á meðan á eðlilegri notkun þeirra stendur. Þetta á að koma í veg fyrir að lausir tappar og lok verði viðskila við vörurnar og geti endað úti í umhverfinu. Breytingin verður jafnframt til þess að kröfur um áfasta tappa og lok verða þær sömu hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu. Lagt er til að breytingin öðlist gildi 3. júlí 2024, eða á sama tíma og í öðrum ríkjum samkvæmt áðurnefndri tilskipun.

S-5/2024· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. jan. 2024 – 23. jan. 2024· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastvörur)

Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta skilyrði um áfasta tappa og lok á einnota drykkjarílátum og –umbúðum úr plasti sem sett eru á markað hér á landi frá og með 3. júlí 2024.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-5/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. janúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 100)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. mars 2025)

Umsagnir sem bárust snúa að mikilvægi þess að tryggja skýrleika varðandi hvaða plastvörur munu falla undir fyrirhugaða löggjöf og að fulls samræmis verði gætt á milli gildissviðs ákvæðisins á Íslandi og í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, s.s. með því að skýra betur mörk milli annars vegar íláta undir vökva og hins vegar íláta undir önnur matvæli. Í ljósi þessara ábendinga var frekari skýringum bætt við greinargerð með frumvarpinu og m.a. leitað samráðs við stjórnvöld í nágrannaríkjum varðandi gildissvið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í febrúar 2025.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-5/2024: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-reglur, áfastir tappar og lok á einnota plastvörur) · Alviti