Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-174/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)

Heilbrigðisráðherra kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Frumvarp þetta er samið í heilbrigðisráðuneytinu og felur í sér breytingu á lyfjalögum nr. 100/2020. Einnig eru gerðar breytingum á öðrum lögum sem leiðir af breytingum sem gerðar eru á lyfjalögum til að gæta samræmis. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru eftirfarandi: • Bætt er við heimildum til handa Lyfjastofnun til að bregðast við lyfjaskorti. • Sett er inn sviptingarákvæði brjóti lyfsöluleyfishafi eða rekstrarleyfishafi gegn ákvæðum laganna en slíkt ákvæði var að finna í eldri lyfjalögum. • Ákvæði um eftirlitsgjöld dýralækna sem nota lyf í starfi sínu er gert skýrara. • Ávísun lyfja: o Reglugerðarheimild ráðherra til að veita fleiri heilbrigðisstéttum ávísanaréttindi. o Ávísanaréttindi eru eingöngu virk þeim sem hafa til þess tryggingar eða starfa hjá heilbrigðisstofnun í eigu hins opinbera. o Ávísanaréttindi eru eingöngu virk þegar ávísun lyfja er framkvæmd við veitingu heilbrigðisþjónustu en ekki af aðilum sem starfa ekki við veitingu hennar. Mikilvægt er að útgefandi ávísunarinnar hafi aðgang að sjúkraskrá viðkomandi. o Óheimilt að ávísa lyfjum til sjálfsnotkunar. • Reglugerðarheimild ráðherra til að kveða á um lyfjafræðilega umsjá, inntak hennar og hvort greiðsla komi til. • Sett eru takmörk á veitingu leyfa til að bjóða fram undanþágulyf. Ef sambærilegt lyf er skráð, markaðssett og fáanlegt hér á landi þá falli heimild undanþágulyfsins sjálfkrafa úr gildi. Lyfjastofnun getur þó veitt áframhaldandi undanþágu í þrjá mánuði fyrir þær birgðir sem til eru af undanþágulyfinu í landi. Meðfylgjandi er skjal sýnir rekjanlegar breytingarnar á lögunum. Frestur til að skila inn umsögnum um frumvarpið er til og með 25. október 2023.

S-174/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. sep. 2023 – 25. okt. 2023· 24 umsagnir

Drög að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)

Heilbrigðisráðherra kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-174/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 24 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 257)
Niðurstöður samráðs (12. júlí 2024)

Endurgert frumvarp verður birt í Samráðsgátt stjórnvalda fyrir næsta löggjafarþing.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (24)
  • #1Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir
    Lyfjaskortur er án efa stórt vandamál bæði á Íslandi og í heiminum. Lyfjafræðingar eiga að geta og vilja hjálpa til í heilbrigðiskerfinu til þess að auðvelda og minnka líkur á að viðskiptavinir fari lyfjalausir heim í þeim tilfellum þegar lyfjaskortur á í hlut. Einnig vilja lyfjafærðingar vera þáttakendur í álagsdreifingu á heilbrigðiskerfið því ljóst er að lyfjafræðingar í lyfjabúðum geta dregið úr álagi á heilsugæslur landsins. Eins og staðan er í dag hafa lyfjafræðingar takmarkaða heimildir t.d. þegar kemur að undaþágulyfjum (óskráðum lyfjum) og eru háðir því að ná í útgefanda til þes… Lesa alla

    Lyfjaskortur er án efa stórt vandamál bæði á Íslandi og í heiminum. Lyfjafræðingar eiga að geta og vilja hjálpa til í heilbrigðiskerfinu til þess að auðvelda og minnka líkur á að viðskiptavinir fari lyfjalausir heim í þeim tilfellum þegar lyfjaskortur á í hlut. Einnig vilja lyfjafærðingar vera þáttakendur í álagsdreifingu á heilbrigðiskerfið því ljóst er að lyfjafræðingar í lyfjabúðum geta dregið úr álagi á heilsugæslur landsins. Eins og staðan er í dag hafa lyfjafræðingar takmarkaða heimildir t.d. þegar kemur að undaþágulyfjum (óskráðum lyfjum) og eru háðir því að ná í útgefanda til þess að gera breytingar. Lyfjafræðingar vilja minna á að á lyfjaávísunum er einungis gefið upp símanúmer hjá viðkomandi læknastöð eða sjúkrahúsi (stundum jafnvel ekkert) og því þurfa allar tillögur að breytingum að fara í gegnum ritara sem kemur skilaboðum áleiðis til lækna sem hringir síðan í sumum tilfellum tilbaka eða ekki. Hinum megin við borðið er viðskiptavinur sem getur þurft að bíða lengi eftir lyfjunum sínum þrátt fyrir að lyfjafræðingurinn sem þar starfar hafi þekkinguna til að aðstoða. Hann bara má það ekki. Til þess að lyfjafræðingar fari ekki útfyrir sínar heimildir geta þeir notfært sér neyðarheimild en það getur ekki talist eðlilegt að lyfjafræðingar þurfi að nýta neyðarréttinn sinn í hvert sinn sem þeir nái ekki í útgefendur. Apótekslyfjafræðingar vita að slíkar áskoranir eru daglegt brauð. Það er vilji lyfjafræðinga að öðlast rýmri heimild til þess að breyta lyfjaávísunum í lyfjaskorti sem og að bætt verði aðgengi að læknum. Aukin ávísunarheimild getur einnig haft önnur jákvæð áhrif í för með sér. Til að mynda þurfi ávísunarheimild til þess að hjálpa til við bólusetningar og til að endurnýja lyfseðla, eins og tíðkast víða í heiminum. Fjöllyfjameðferð er vandamál hjá þjóð sem er að eldast mjög hratt og þarfir heilbrigðiskerfisins eru gífurlega og því vilja lyfjafræðingar gera sitt besta til að mæta þeim þörfum. Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir

  • #2Valtýr Aron Þorrason
    Sjálfsávísunarréttur lækna ætti áfram að gilda um endurnýjanir til egin nota og lyf sem ekki eru ávanabindandi. Læknar eiga ekki að meðhöndla sig sjálfa og fæstir gera það í tilfellum alvarlegra veikinda. Að mínu mati er það er alger óþarfa skerðing á réttindum að setja t.d endurnýjanir á gyllinæðastílum á kollegann í næstu skrifstofu. Það er skekkja í því og klár forræðishyggja að geta skrifað út hvað sem er fyrir fyrir sjúklinga en mega ekki endurnýja egin lyf eða senda seðla fyrir saklausum lyfjum. Með því móti getur jafn vel veirð erfiðara fyrir lækna en aðra að nálgast lyf og endurný… Lesa alla

    Sjálfsávísunarréttur lækna ætti áfram að gilda um endurnýjanir til egin nota og lyf sem ekki eru ávanabindandi. Læknar eiga ekki að meðhöndla sig sjálfa og fæstir gera það í tilfellum alvarlegra veikinda. Að mínu mati er það er alger óþarfa skerðing á réttindum að setja t.d endurnýjanir á gyllinæðastílum á kollegann í næstu skrifstofu. Það er skekkja í því og klár forræðishyggja að geta skrifað út hvað sem er fyrir fyrir sjúklinga en mega ekki endurnýja egin lyf eða senda seðla fyrir saklausum lyfjum. Með því móti getur jafn vel veirð erfiðara fyrir lækna en aðra að nálgast lyf og endurnýjanir þar sem persónulegi múrinn þarf að vera brotinn í hvert skipti, þ.e hleypa nánum samstarfsmanni inn í egin sjúkraskrá (og jafn vel yfir/undirmanni). Ef læknir má ekki endurnýja lyf fyrir sig sjálfan sem hann vill ekki ræða við samstarfsaðila (lesist hægðalyf, stinningarlyf osfv) þá þarf að tryggja öllum læknum á heilsugæslu óháðan ótengdan lækni á annari stöð sem gæti séð um viðkomandi og verið óháður. Nándin innan stofnana er of mikil til að þetta sé til hagsbóta fyrir lækna. Hver á að sjá um dreifbýlislæknana? Í sannleika sagt finnst mér þessi tillaga skapa fleiri vandamál en það leysir og til marks um Reykjavíkurmiðað sjónarmið og vanþekkingu á dýnamíkinni meðal lækna. Í staðin legg ég til að lyf séu flokkuð í 3 flokka: 1. Ávanabindandi, dýr, og hættuleg lyf - Enginn má skrifa þau út á sjálfann sig 2. Öflug lyf - hjartalyf, geðlyf (ekki ávanabindandi) osfv. - Læknir má endurnýja fyrir sjálfann sig en ekki gera nýja ávísun 3. Venjuleg dags-dagleg lyf (paracetamol, hægðalyf, nefsprey, púst) - Læknir má endurnýja og ávísa Umsagnaraðili er sérnámslæknir í heimilislækningum HSN Akureyri

  • #3Jóhanna Ósk Jensdóttir
    Ég geri alvarlega athugasemd við "Reglugerðarheimild ráðherra til að veita fleiri heilbrigðisstéttum ávísanaréttindi." og legg til að Félag íslenskra heimilislækna, FÍH, og LÍ verði haft með í ráðum hér. Heimilislæknar eru í þeirri stöðu að endurnýja lyf þegar meðferð er hafin af öðrum læknum og það er algjörlega ótækt að þar verði nú aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem ekki bera sömu ábyrgð á meðferð sjúklinga og læknar sem hefji meðferð og heimilislæknar muni þurfa að halda henni áfram. Þetta væri mögulegt ef nóg væri af heimilislæknum, það er ekki staðan og heilbrigðisráðuneytið alfarið ábyrg… Lesa alla

    Ég geri alvarlega athugasemd við "Reglugerðarheimild ráðherra til að veita fleiri heilbrigðisstéttum ávísanaréttindi." og legg til að Félag íslenskra heimilislækna, FÍH, og LÍ verði haft með í ráðum hér. Heimilislæknar eru í þeirri stöðu að endurnýja lyf þegar meðferð er hafin af öðrum læknum og það er algjörlega ótækt að þar verði nú aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem ekki bera sömu ábyrgð á meðferð sjúklinga og læknar sem hefji meðferð og heimilislæknar muni þurfa að halda henni áfram. Þetta væri mögulegt ef nóg væri af heimilislæknum, það er ekki staðan og heilbrigðisráðuneytið alfarið ábyrgðaraðili þeirrar stöðu. Auk þess má benda á að læknar hafa ekki leyfi til að eiga lyfjasölu því þeir ávísa lyfjum, ef lyfjafræðingar sem eiga eða vinna við lyfjasölu fá leyfi til að ávísa er væntanlega kominn alvarlegur hagsmunaárekstur sem heilbrigðisráðherra ætti að vera kunnugt um. Almennum takmörkunum á lyfjaendurnýjunum hjá læknum eins og á sérfræðingsmerktum lyfjum eða undanþágulyfjum verður að fylgja fjármagn því þetta mun þýða aukið vinnuframlag bæði heimilislækna á heilsugæslustöðvum og sérfræðinga á spítölum og einkastofum sem þá væntanlega þurfa að vera meira til taks til að endurnýja nauðsynleg lyf. Aukið fjármagn vegna aukinni hamlana á lyfjaútskriftir ætti að vera auðsótt mál til heilbrigðisráðuneytis. Að lokum, takmarkanir á lyfjaávísanir til einkanota lækna, mér skilst að þetta sé komið til vegna fárra svartra sauða! Takmarkið þá bara eftirritunarskyld lyf. Eru nokkuð fordæmi fyrir öðru í löndum kringum okkur og er ekki betra að læknir geti skrifað út eigin NSAID lyf eða eigin getnaðarvarnarpillu í staðin fyrir að hringja í vin?

  • #4Björg Ólafsdóttir
    Ég geri alvarlega athugasemd við "Reglugerðarheimild ráðherra til að veita fleiri heilbrigðisstéttum ávísanaréttindi." Hér þarf að fá Félag íslenskra heimilislækna, FÍH, og LÍ með í ráðum. Heimilislæknar eru í þeirri stöðu að endurnýja lyf þegar meðferð er hafin af öðrum læknum og það er algjörlega ótækt að þar verði nú aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem ekki bera sömu ábyrgð á meðferð sjúklinga og læknar sem hefji meðferð og heimilislæknum gert að endurnýja þessi lyf. Heimilislæknar eru of fáir og mikilvægt að tíma þeirra sé vel varið. Almennum takmörkunum á lyfjaendurnýjunum hjá læknum eins… Lesa alla

    Ég geri alvarlega athugasemd við "Reglugerðarheimild ráðherra til að veita fleiri heilbrigðisstéttum ávísanaréttindi." Hér þarf að fá Félag íslenskra heimilislækna, FÍH, og LÍ með í ráðum. Heimilislæknar eru í þeirri stöðu að endurnýja lyf þegar meðferð er hafin af öðrum læknum og það er algjörlega ótækt að þar verði nú aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem ekki bera sömu ábyrgð á meðferð sjúklinga og læknar sem hefji meðferð og heimilislæknum gert að endurnýja þessi lyf. Heimilislæknar eru of fáir og mikilvægt að tíma þeirra sé vel varið. Almennum takmörkunum á lyfjaendurnýjunum hjá læknum eins og á sérfræðingsmerktum lyfjum eða undanþágulyfjum verður að fylgja fjármagn því þetta mun þýða aukið vinnuframlag bæði heimilislækna á heilsugæslustöðvum og sérfræðinga á spítölum og sérgreinalæknim í sjálfstæðum rekstei sem þá væntanlega þurfa að vera meira til taks til að endurnýja nauðsynleg lyf. Aukið fjármagn vegna aukinni hamlana á lyfjaútskriftir ætti að vera auðsótt mál til heilbrigðisráðuneytis. Takmarkanir að lækna til að skrifa út eftirlitunarskyld lyf á sjálfa sig má rökstyðja. Aðrar takmarkanir eru óþarfar, takmörkun á starfsréttindum og þurfa að vera rökstuddar. Hvaðan kemur þessi breyting að takmarka ávísanarétt lækna meðan opnað er fyrir ávísanarétt annara.

  • #5Guðrún Hreinsdóttir
    Vek athygli á því að lyfjafræðingar geta verið lyfjaávísendur og lyfsalar samtímis og er það í hæsta máta óeðlilegt að þeir sitji báðum megin borðsins varðandi lyfjaafgreiðlsuna. Einnig er þessi lausn með að gefa fleiri heilbrigðisstéttum leyfi til lyfjaávísana ekki rétta nálgunin í erfiðu starfsumhverfi læknastéttarinnar sem nú ríkir vegna alvarlegs læknaskorts. Þar hefur heilbrigðisráðuneytið ekki hugað nægilega að þörfinni fyrir aukinn fjölda lækna og menntunarskilyrðum stéttarinnar í landinu. Með leyfi annarra starfstétta til lyfjaávísana eykst einnig verulega aðgangur að sjúkr… Lesa alla

    Vek athygli á því að lyfjafræðingar geta verið lyfjaávísendur og lyfsalar samtímis og er það í hæsta máta óeðlilegt að þeir sitji báðum megin borðsins varðandi lyfjaafgreiðlsuna. Einnig er þessi lausn með að gefa fleiri heilbrigðisstéttum leyfi til lyfjaávísana ekki rétta nálgunin í erfiðu starfsumhverfi læknastéttarinnar sem nú ríkir vegna alvarlegs læknaskorts. Þar hefur heilbrigðisráðuneytið ekki hugað nægilega að þörfinni fyrir aukinn fjölda lækna og menntunarskilyrðum stéttarinnar í landinu. Með leyfi annarra starfstétta til lyfjaávísana eykst einnig verulega aðgangur að sjúkraskrám sjúklinga sem er einnig óæskilegt. Þar eru stéttir sem hingað til hafa ekki haft aðgang að sjúkraskrám. Betra væri að tryggja lyfjaframboð í landinu og fækka undanþágulyfseðlum og skriffinsku við öll helstu almennu lyf. Eins og staðan er í dag eru lyf sífellt að detta út af markaði ( því fyrirtækin vilja ekki greiða kostnaðinn við skráningu ) og fara inn og út af undanþáguseðlum. Allt þetta kostar mun meiri vinnu fyrir hinn almenna lækni. Auk þess sem læknar eru settir í sérstaka ábyrgð fyrir lyfjum sem er ávísað með þessum hætti. Og er þetta kerfislægur vandi sem er ekki á ábyrgð læknanna. Sama gildir um lyfjaskírteini sem þarf sífellt að breyta því lyfjaheiti detta út af listum og ný koma í staðinn og þarf oft nýtt skírteini fyrir hvert heiti. Það er einnig óeðlilegt að hægt sé að rýra löggilt starfsheiti læknis með því að afhenda öðru heilbrigðisstarfsfólki réttindi án til þess bærrar menntunar. Og enn óeðlilegra að banna læknum að endurnýja almenn lyf fyrri sjálfa sig og þar með rýra starfsréttindin enn frekar. En sjálfsagt er að læknar ávísi EKKI ávanabindandi lyfjum á sig sjálfa. Eins og vinnuumhverfið er í dag mun það kosta fjarveru lækna frá vinnu og mögulega lengri veikindi lækna ef þeir þurfa að bíða eftir tíma og lausn vandamála frá öðrum kollegum. Algengur biðtími hjá læknum er nú um 2 mánuðir á heilsugæslu og enn lengri allt upp í 8 mánuði hjá sérfræðilæknum. Og ekki er talið að heimilislæknafjöldinn verði nægilegur fyrr en að 10 árum liðnum. Þessar breytingar eru því ekki hjálplegar í núverandi ástandi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-174/2023: Drög að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.) · Alviti