Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-184/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Þjónustugjöld Orkustofnunar

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um lagasetningu um þjónustugjöld Orkustofnunar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Helstu lagabálkar auðlindanýtingar sem Orkustofnun starfar eftir, lög nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins (hafsbotnslög), lög nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (auðlindalög), raforkulög nr. 65/2003 og vatnalög nr. 15/1923, eru frá þeim tíma er ráðherra var leyfisveitandi. Við yfirfærslu leyfisveitinga til Orkustofnunar, sbr. lög nr. 131/2011, 132/2011 og 10/2012, var það víðast hvar framkvæmt með einfaldri textabreytingu: „í stað [...]ráðherra í [...] gr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Orkustofnun.“ Að öðru leyti er ákvæðum laganna ekki breytt og sjaldnast fjallað sértækt um málsmeðferð eða ferli leyfisveitinga né er þar að finna ákvæði um eftirlit með framkvæmd leyfa. Á þeim rúmum áratug sem liðinn er frá yfirfærslu leyfisveitingahlutverksins hafa engar uppfærslur verið gerðar á þessum ákvæðum í lögunum. Þá eru ákvæði um gjaldtöku vegna leyfisveitinga og eftirlits úrelt eða ekki til staðar. Að mati ráðuneytis er brýnt að framangreind lög feli í sér lagastoð fyrir heimild Orkustofnunar til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim. Markmið lagasetningarinnar verður að tryggja að Orkustofnun hafi lagaheimild til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim.

S-184/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2023 – 18. okt. 2023· 3 umsagnir

Þjónustugjöld Orkustofnunar

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um lagasetningu um þjónustugjöld Orkustofnunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-184/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 898)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2025)

Frumvarp birt til umsagnar, mál nr. 21/2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-184/2023: Þjónustugjöld Orkustofnunar · Alviti