Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-132/2023 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (skipan svæðisráða o.fl.)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, með síðari breytingum (skipan svæðisráða o.fl.)

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Frá því að lög um skipulag haf- og strandsvæða tóku gildi hefur verið unnið og staðfest strandsvæðaskipulag á tveimur svæðum, Vestfjörðum og Austfjörðum. Við þá vinnu hefur fengist reynsla af ákvæðum laganna um skipulagsferlið og hlutverk aðila í því ferli og jafnframt komin reynsla á framfylgd skipulagsáætlananna. Þá hafa einnig orðið tilteknar breytingar á verkaskiptingu innan stjórnarráðsins sem kalla á breytingar á lögunum. Fyrir liggur að uppfæra þarf ákvæði laganna um skipan svæðisráða í ljósi breyttrar verkaskiptingar innan stjórnarráðsins. Skipulagsmál, þ.m.t. haf- og strandsvæða, voru við setningu laganna á ábyrgðarsviði þáverandi umhverfis- og auðlindaráðuneytis en eru nú á hendi nýs innviðaráðuneytis. Jafnframt hafa orðið breytingar á málefnasviðum annarra ráðuneyta sem tilnefna fulltrúa í svæðisráð. Þá þarf einnig að skýra ákvæði um skipunartíma svæðisráða, en óljóst er af ákvæðum laganna hvort skipun þeirra falli niður eftir staðfestingu strandsvæðaskipulags. Loks þarf að skýra betur hlutverk Skipulagsstofnunar samkvæmt lögunum, s.s. ef fram kemur ósk um minniháttar breytinga á staðfestu strandsvæðaskipulagi og málsmeðferð við slíkar breytingar.

S-132/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (skipan svæðisráða o.fl.)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, með síðari breytingum (skipan svæðisráða o.fl.)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-132/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 147)
Niðurstöður samráðs (3. október 2023)

Frumvarp kynnt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-132/2023: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (skipan svæðisráða o.fl.) · Alviti