Áform um frumvörp til nýrra heildarlaga um skólaþjónustu og nýja þjónustustofnun
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um frumvörp til nýrra heildarlaga um skólaþjónustu og nýja þjónustustofnun.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-195/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 31. október 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 21 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (15. mars 2023)
Umsagnir bárust frá 21 aðila. Umsagnirnar fjölluðu um skólaþjónustu, nýja þjónustustofnun eða bæði skólaþjónustu og nýja þjónustustofnun. Litið hefur verið til umsagna við frekari vinnslu málsins. Drög að frumvarpi til laga um nýja þjónustustofnun á sviði menntamála og ný heildarlög um skólaþjónustu verða kynnt almenningi í samráðsgátt stjórnvalda.
- Áform um lagasetningu - lög um skólaþjónustu
- Frummat á fjárhagsáhrifum - lög um skólaþjónustu
- Áform um lagasetningu - ný stofnun
- Frummat á fjárhagsáhrifum - ný stofnun
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (21)
- #1Elín Halldórsdóttir
Kæru viðtakendur, Þetta eru miklar og athyglisverðar breytingar sem standa fyrir dyrum. Ég hef unnið innan skólakerfjsins á öllum stigum þess í 20 ár sem listgreinakennari, kórstjóri, tónmenntakennari og nú leikskólastjóri. Það er vissulega komin tími til að gera breytingar því tímarnir breytast og mennirnir með og það er nauðsynlegt að breyta kerfunum líka í takt við breytingarnar. Mikið hefur verið talað um fjölbreytileika mannlífsins og fjölmenningu en við stöndum frammi fyrir því að heimurinn fer í raun smækkandi þar sem fjarlægðirnar eru minni og öll getum við tengst á rafræn… Lesa alla
Kæru viðtakendur, Þetta eru miklar og athyglisverðar breytingar sem standa fyrir dyrum. Ég hef unnið innan skólakerfjsins á öllum stigum þess í 20 ár sem listgreinakennari, kórstjóri, tónmenntakennari og nú leikskólastjóri. Það er vissulega komin tími til að gera breytingar því tímarnir breytast og mennirnir með og það er nauðsynlegt að breyta kerfunum líka í takt við breytingarnar. Mikið hefur verið talað um fjölbreytileika mannlífsins og fjölmenningu en við stöndum frammi fyrir því að heimurinn fer í raun smækkandi þar sem fjarlægðirnar eru minni og öll getum við tengst á rafrænan hátt og nútíma farartæki gera okkur einnig kleift að komast hraðar á milli í efnislíkamanum einnig. Við lifum því í heimi sem er fullur af ólíku fólki margbreytilegri menningu, við lifum í landi sem er að taka á móti innflytjendum jafnt sem vinnuafli og námsfólki víða að úr heiminum og við erum að horfa á að viðskiptalífið, tæknigeirinn, heilbrigðisgeirinn svo eitthvað sé nefnt hafa þörf fyrir fjölbreytilega þekkingu og það er eðli málsins að ekki kunna allir allt en allir kunna eitthvað. Það er því þannig að fólk úr ólíkum menningarbakgrunni kemur með ólíka þekkingu og jafnvel getur fólk innan sömu fjölskyldu haft aldeilis ólíka hæfileika einn getur verið læknir, annar málari og sá þriðji stjórnmálamaður. Það er því við því búið að til að geta haldið velli sem lítil þjóð í harðbýlu landi þurfum við að temja okkur að vera eins og býflugurnar að fljúga á milli blómanna og taka það besta frá hverju blómi. Sama gildir um þekkingu hún er ekki og verður aldrei einsleit. Þekking skólastofnunar eða fyrirtækis er jafn góð og mikil og kunnátta ólíks starfsfólks og jafn marglituð og úrræðagóð eins og ólíkur bakgrunnur starfsmannanna. Menntamálastofnun býr yfir áralöngum hefðum og geymir þekkingu sem byggð er á mikilli reynslu ég tel mjög mikilvægt að halda því besta sem stofnunin hefur að geyma bæði hvað varð'ar námsefni, hefðir og starfsfólk en bæta við nýju. Það er mikilvægt í fjölþjóðlegum heimi að setja inn virðingu fyrir fleiri tungumálum auk þess að lyfta upp íslenskunni og á tækniöld þar sem eru ótal áskoranir er sköpunarkrafturinn að verða lykilatriði til að komast lífs af. Að mínu mati er grunnur samþættingar námsefnis og öll tungumálakennsla mjög tengd tónlist og listum og þurfum við að blása til stórsóknar í listgreinakennslu til að mæta þeim breytingum sem við stöndum frammi fyrir í heiminum. Annað atriði er að námið verði þannig að þó það byggi á hefðum muni verða skapað kerfi sem dregur betur fram og eflir hæfni hvers og eins einstaklings, þannig að lesblinda barnið sé ekki þvingað til að æfa lestur 20 tíma á dag þegar það er snillingur í lestri myndefnis og jafnvel myndbandagerðar og tæknibarnið sem sér allt í fjórum víddum sé ekki þvingað til að teikna einungis tvívíddar form og teikningar svo eitthvað sé nefnt. Við þurfum að skapa nýtt kerfi sem metur hæfileika einstaklingsins hvaða menningarrætur sem hann hefur og eflir þá og styrkir. Ég býð mig fram að taka þátt í þeirri uppbyggingu.
- #2Gunnar Kristjánsson
Sem gamall kennari og skólastjóri,fagna ég þessum löngu tímabæru breytingum og óska þess að þær gangi eftir fljótt og vel
- #3Helga Kristjánsdóttir
Ágæt viðtakandi og Ásmundur Einar Daðason, barnamálaráðherra. Það er ýmislegt sem ég myndi vilja að sérstök áhersla yrði lögð á í íslensku skólakerfi. Lestur/lesskilningur: Barnið þarf að skilja um hvað efnið er sem það er að lesa, frekar en lesa x mörg atkvæði á mínútu. Stærðfræði: það þarf að kenna stærðfræðina á auðveldan/einfaldan hátt. Ekki með of flóknum formúlum. Tungumál: Leggjum áherslu á íslensku sem fyrsta mál og að börnunum sé kennt að tala skýrt. Of oft finnst mér ég bara ekki skilja unga fólkið, það talar svo hratt og óskýrt. Önnur tungumál: Enska, danska, þýska og spænska, þu… Lesa alla
Ágæt viðtakandi og Ásmundur Einar Daðason, barnamálaráðherra. Það er ýmislegt sem ég myndi vilja að sérstök áhersla yrði lögð á í íslensku skólakerfi. Lestur/lesskilningur: Barnið þarf að skilja um hvað efnið er sem það er að lesa, frekar en lesa x mörg atkvæði á mínútu. Stærðfræði: það þarf að kenna stærðfræðina á auðveldan/einfaldan hátt. Ekki með of flóknum formúlum. Tungumál: Leggjum áherslu á íslensku sem fyrsta mál og að börnunum sé kennt að tala skýrt. Of oft finnst mér ég bara ekki skilja unga fólkið, það talar svo hratt og óskýrt. Önnur tungumál: Enska, danska, þýska og spænska, þurfa að vera tungumál sem kennd eru strax í grunnskóla. Fjármálalæsi: Það er nauðsynlegt að kenna krökkunum mjög snemma að fara með peninga. Já, peninga, íslenskar krónur. Ekki bara einhver kort. Borið hefur á því að þau geti ekki gefið til baka ef borgað er með peningum. Það er glatað. Þau þurfa ekki síður að vita hvaðan peningarnir koma. Þeir verða ekki til í bankanum frekar en mjólkin, hún verður ekki til í Bónus. Sjálfbærni og sóun: Það væri snilld ef þeim væri kennnt strax í leikskóla að rækta grænmeti. Ekki henda mat. Útskýra fyrir þeim að þá erum við að henda peningunum sem mamma og pabbi eru að vinna fyrir á meða þau eru í leikskólanum/skólanum. Það þarf líka að fara með þau og kynna þeim landbúnað og fiskveiðar. Það væri gott að gera þetta á öllum skólastigum, allavega út grunnskólann. Að bera virðingu fyrir náttúrunni: Fara í reglubundnar fjöru ferðir, týna rusl og kenna þeim nöfn fuglanna og gróðursins sem þar er að finna. Fara með eldri bekkina í gönguferðir þar sem gist er í skálum og síminn skilinn eftir heima. Tækni og vefmiðlar: Kenna þeim að nýta sér tæknina á réttan hátt og reyna að koma þeim í skilning um að Lífið snýst ekki eingöngu um, TikTok, Snap og Yotube og alla vitleysuna sem þar er í boði. Reynslan undanfarið sýnir skaðsemi rangrar notkunar þessara miðla. Forvarnir: Eru margskonar. Fræðslumyndir, heimsóknir fólks með reynslu af hverskonar neyslu. Ýmislegt er hægt að gera með því einu að vera góð fyrirmynd jafnt sem kennari, foreldri, amma eða afi eða hver sem er. Dans í skildunámi væri að mínu mati mjög góð forvörn sem ætti að kenna hvort sem er í leikskóla, grunnskóla eða framhaldsskóla. Þú átt ekki að þurfa að fá þér vímuefni til að bjóða upp í dans. Eflaust á ég eitthvað ótalið. En læt staðarnumið hér sem amma 9 barna á aldrinum 0-18 ára. Amma sem settist einn vetur á skólabekk þá með 10-11 ára strákhnokka/barnabarni með ADHD, sem átti erfitt með að einbeita sér en námið tók miklum breytingum eftir veru mína hjá honum þennan eina vetur. Ég lagði mig fram og gaf honum þann tíma sem hann þurfti. Verum ekki alltaf upptekin og að flýta okkur. Það skilar sér einn daginn. Höldum svo í okkar gömlu góðu íslensku siði og borðum hollan og góðan íslenskan mat heima og ekki síst í skólunum. Góðar stundir og gangi okkur öllum vel. Amma Helga
- #4Hulda Margrét Eggertsdóttir
Kæru stjórnvöld og aðrir hagsmunaaðilar. Takk kærlega fyrir þetta tækifæri Frá sjónarhóli foreldris 1. Við þurfum að breyta stórlega um viðhorf, þjálfun starfsfólks og stuðning við það. Við þurfum að kenna starfsfólki óháð menntun að sýna samkennd og virka hlustun. Þ.e èg sé að þú ert gera þitt besta... èg heyri að þú ert spennt.. Þannig ef èg skil þig rétt... umorða. Nú skulum við... Bara að hætta að stýra, stjórna og tala í boðhætti. Það þarf ekki. Með þessu myndi mótþrói og starfsmannavelta stórlega minnka. Èg myndi vilja sjá handbók sem allt starfsfólk myndi fari í gegn… Lesa alla
Kæru stjórnvöld og aðrir hagsmunaaðilar. Takk kærlega fyrir þetta tækifæri Frá sjónarhóli foreldris 1. Við þurfum að breyta stórlega um viðhorf, þjálfun starfsfólks og stuðning við það. Við þurfum að kenna starfsfólki óháð menntun að sýna samkennd og virka hlustun. Þ.e èg sé að þú ert gera þitt besta... èg heyri að þú ert spennt.. Þannig ef èg skil þig rétt... umorða. Nú skulum við... Bara að hætta að stýra, stjórna og tala í boðhætti. Það þarf ekki. Með þessu myndi mótþrói og starfsmannavelta stórlega minnka. Èg myndi vilja sjá handbók sem allt starfsfólk myndi fari í gegnum og skólastjórnendum væri gert að læra handleiðslu. 2. Mynda tengsl við börnin, horfa framan í þau, brosa... segja góðan daginn... Hafa trú á þeim og hlusta á þau. 3. Við skulum ekki hunsa börn, við skulum staðfesta tilfinningar þeirra og sýna þeim kærleik. Við vitum ekki hvað er í gangi heima hjá þeim. 4. Börn sem að okkar mati láta illa, líður illa og þurfa aðstoð. Fara í rót vandans, afhverju er óæskileg hegðun. 5.Við þurfum öll að standa okkur betur... stjòrnvöld, skólastjórnendur og sérfræðingar þurfa að framkvæma. Því miður er mikið talað og lítið gert. 6. Skólaumhverfið þyrfti að vera styðjandi við alla, hljóðvist, lýsing o.s.frv. 7.Teymiskennsla, margir hópar, alltaf verið að skipta um sæti hentar kvíðnum og börnum með sérþarfir illa. 8. Finnska menntakerfið er góð fyrirmynd. 9. Skólinn byrji á morgnana í takt við lýðheilsubarna. 10. Skólakerfið er of þröngt í dag. Það er bara pláss fyrir það sem er venjulegt og það á að troða öllum í það box. Skóli án aðgreiningar getur alveg virkað. Normið þarf bara að víkka út boxið sitt. Læra að setja sig í spor þeirra sem eru ekki venjulegir. Sköpunarhæfileikar eru auðlind framtíðarinnar og þeirra sem hugsa út fyrir boxið. Menntakerfið þarf að við styðja það. 11. Styrkja sjálfræði barna. Autonomy. Nýjustu rannsóknir styðja við það. Sérstaklega hjá börnum með sérþarfir og hegðunarvanda. (Autonomy is about a person's ability to act on his or her own values and interests.When you lack autonomy, you're more controlled by what others do, think, and feel, and adapt accordingly) 12. Börn læra það sem fyrir þeim er haft, lærum að vera góðar fyrirmyndir. Hulda Margrét Eggertsdóttir Móðir þriggja barna með sérþarfir
- #5O.M.A.H.A.I.
https://www.omahai.org The illiteracy of refugees in Iceland is considered one of the areas that the education system in Iceland has failed to address until now. This includes the illiteracy of children in elementary schools, upper secondary schools and their parents. This category of population, i.e. the foreign students, is mentioned in the Icelandic National Curriculum Guide, but the rights of the illiterate refugee students to literacy has not been addressed. Consider UNESCO’s report in which it estimated that “around 60% of Syrian refugees aged 16 years or older have not completed basic… Lesa alla
https://www.omahai.org The illiteracy of refugees in Iceland is considered one of the areas that the education system in Iceland has failed to address until now. This includes the illiteracy of children in elementary schools, upper secondary schools and their parents. This category of population, i.e. the foreign students, is mentioned in the Icelandic National Curriculum Guide, but the rights of the illiterate refugee students to literacy has not been addressed. Consider UNESCO’s report in which it estimated that “around 60% of Syrian refugees aged 16 years or older have not completed basic schooling and only 15% have finished secondary education” (UNESCO GRALE 4, 2019). According to Statistics Iceland, Iceland received in 2017 16 Syrian refugees between the ages 15 to 19 years old and 11 Syrian refugees between the ages 20 to 24 years old. In the following year, 2018, the number of Syrian refugees in Iceland between the ages 15 to 19 years old was 29 and 15 refugees between the ages 20 to 24. The number of Syrian refugees in Iceland has risen in the years 2020 and 2021. In 2020, the number of Syrian refugees between the ages 15 to 19 was 34 and 29 refugees between the ages 20 to 24. In 2021, Iceland received 34 Syrian refugees between the ages 15 to 19 and 26 Syrian refugees between the ages 20 to 24 (Hagstofan: Bakgrunnur, n.d.). The Icelandic National Curriculum Guide is a case in point. It states that it is the right of the foreign students to receive subject instructions in Icelandic as a Second language but the Guide does not take into consideration that using Icelandic language will deprive the illiterate students from learning. The Guide also states that the foreign students can choose their mother tongue as one of the elective subjects but it emphasizes that the students need to find their own solutions to learn their mother tongue as schools are not responsible to provide them with tools or teachers (“The Icelandic National Curriculum Guide for Upper Secondary Schools,” 2012). The broader implication of this policy is that the illiterate refugee students will fail to progress without offering them any support; specifically, the support of providing them with skilled teachers who can teach them to become literate in their mother tongue. “Children learn to read most effectively in the language they speak at home—their mother tongue… Beyond its direct learning impacts on them, students receiving instruction in their mother tongue are more likely to attend and persist in school…The increased skill from learning to read in mother tongue can translate into greater skill in a second language”[ “World Bank. 2018. World Development Report 2018 : Learning to Realize Education's Promise. Washington, DC: World Bank. © World Bank. https://openknowledge.worldbank.org/handle/10986/28340 License: CC BY 3.0 IGO.”]. Taking into consideration the low-levels of literacy that the parents, especially the mothers posses in their own language; it becomes obvious that teaching the mother-tongue to their children is an impossible task. These mothers, during their childhood period, were considered illiterate according to the World Bank report which states “ many children in MENA remain illiterate and innumerate after two or three years of schooling”[ “World Bank. 2018. World Development Report 2018 : Learning to Realize Education's Promise. Washington, DC: World Bank. © World Bank. https://openknowledge.worldbank.org/handle/10986/28340 License: CC BY 3.0 IGO.” Additionally, these displaced parents lack the needed intellectual understanding and the skills to educate their children because in most MENA schools, “no skills or critical thinking are taught, and students often ignore most classes and tests”. As a result, and because of their belief that the educational systems in their countries have failed them, they mirror these beliefs in neglecting the great impacts of mother tongue education on the future progress of their children. It is noteworthy that “lacking the protective environment of education, development of critical thinking skills, and the opportunities that result from education” can result in making “more youth vulnerable to recruitment to radical groups”. Because there is a need to alleviate the situation of refugees with innovative educational strategies to coordinate efforts, share knowledge, make evidence-based decisions, improve efficiency or effectiveness, and solicit resources we propose creating educational programs that address the refugees’ needs in a holistic approach. One of the proposals to empower the refugees in their parenthood skills is to offer them literacy education to master their mother tongue because mastering their mother tongue will empower them to transfer the knowledge to their children. On a wider scale, it is important for the refugee children to master their mother tongues because these children are to become Iceland’s ambassadors to their families, tribes, nations, countries and the entire region. In their future role as Iceland’s ambassadors, they channel the universal concepts of equality, unity, peace, and freedom which they have learned in Iceland in their mother tongue to millions of people who speak their language. It shall be a great victory for the world if Iceland succeeds in building the capacities of its ambassadors of peace, and it shall be a great loss for our world if Iceland loses its ambassadors of peace. Those ambassadors of peace need full mastery of their mother tongue to instill the universal concepts of equality and freedom into the hearts and minds of their people. As it is stated in the World Development Report, the“ prospects for peace and stability in MENA will be shaped by its citizens’ ability to coexist with people of different nationalities, ethnicities, and religions. Education is one of the principal means of building a culture of peace”[ “World Bank. 2018. World Development Report 2018 : Learning to Realize Education's Promise. Washington, DC: World Bank. © World Bank. https://openknowledge.worldbank.org/handle/10986/28340 License: CC BY 3.0 IGO.” These children if empowered can become a bridge between their origin culture and their Icelandic-culture. Being placed in both cultures, they are in a strong position to convey to their culture, their people, their nation, their tribe, their family about the concepts of human rights, freedom, equality, and many other aspects of humans nobility. These children are Iceland's bridges towards these cultures, in far faraway places. Cultures that are beyond the oceans and beyond the actual capacity of Iceland to reach without the capacities of these children refugees. These refugee children need their mother tongue to introduce what Iceland has taught them about Human Rights, Respect, Freedom and Gender Equality. If they lose their mother tongue, they lose their access to their people. If Iceland fails to empower them as leaders and agents of change, then, as a result, Iceland also loses access to have an impact on the peace process in that region. If Iceland fails in empowering these refugee children, then Iceland is burning its bridges towards their cultures instead of building one.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.