Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-133/2023 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (leiguskrá, forgangsréttur og fyrirsjáanleiki leiguverðs).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: september).

Þann 23. júní 2022 skipaði innviðaráðherra starfshóp um endurskoðun húsaleigulaga (hér eftir „starfshópurinn“). Starfshópurinn skilaði áfangaskýrslu í desember 2022. Hlutverk starfshópsins er að taka húsaleigulög til endurskoðunar með það að markmiði að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar samkvæmt sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá 28. nóvember 2021. Þar verði m.a. horft til tillagna átakshóps um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði frá janúar 2019 sem áréttaðar voru í skýrslu stafshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði frá maí 2022. Lagt er til grundvallar að á vegum starfshópsins fari fram nánari greining á húsaleigulöggjöf nágrannaríkjanna og fleiri þjóða með tilliti til þess hvernig stuðla megi að auknu húsnæðisöryggi og langtímaleigu, meðal annars með ólíkum hvötum. Þá verði sérstaklega tekið til skoðunar hvernig stuðla megi að auknum fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð, jafnt á samningstíma sem og við framlengingu eða endurnýjun leigusamnings, og hvernig koma megi í veg fyrir að samningar séu gerðir til skamms tíma í því skyni að hækka leigufjárhæð við endurnýjun samnings umfram það sem sanngjarnt og eðlilegt getur talist í skilningi húsaleigulaga. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum sínum til ráðherra í formi frumvarps til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum, í júlí með það fyrir augum að frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum verði lagt fram á Alþingi á komandi haustþingi. Tillögur starfshópsins verða kynntar í samráðsgátt í opnu samráði. Að samráði loknu verður afstaða tekin til athugasemda sem kunna að berast með tilliti til frumvarps sem ráðherra hyggst leggja fram í haust.

S-133/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 13. júl. 2023 – 21. ágú. 2023· 4 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (leiguskrá, forgangsréttur og fyrirsjáanleiki leiguverðs).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-133/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 754)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-133/2023: Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda) · Alviti