Drög að frumvarpi um breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 (afbrotavarnir, vopnaburður og eftirlit með lögreglu)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögreglulögum til að að skýra og efla heimildir lögreglu til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar skipulagða brotastarfsemi og öryggi ríkisins.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-210/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. nóvember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 707)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Sigurjón Kjartansson
Lögreglan er uppfull af fólki sem enginn heilvita maður gæfi svona valdheimildir. Ástandið þar er þannig að það jaðrar við það að hægt sé að kalla það skipulagða glæpastarfsemi. Að brjóta persónuverndarlög, mannréttindi, stjórnarskrá og hegningarlög telja þeir nú þegar vera heilagan rétt sinn til að klekkja á hverjum þeim sem þeim líkar ekki við.
- #2Ásgrímur Hartmannsson
Þær heimildir sem lögreglan nú þegar hefur til þess að raska mannréttindum borgaranna hafa verið nýttar til þess. Það er enn verið að hamast í að kæra tvo drengi fyrir einhver ímynduð brot, svo eitt eftirminnilegt dæmi sé tekið. Svo það er ljóst að meiri heimildir verði bara notaðar af lögreglu til þess að verða sér meira til skammar, jafnvel á heimsvísu, og brjóta meira á borgurum landsins. Þetta vantar ekki.
- #3Vigfús Ingvar Ingvarsson
Margt horfir væntanlega til bóta í þessum drögum. Ég sakna þess hins vega að sjá ekkert tekið beint á þeim vanda sem virðist hafa farið vaxandi á undanförnum árum. Þar á ég við vopnaburð, einkum yngra fólks og gjarnan í tenglum við skemmtanalíf í Reykjavík. Ekki er mér kunnungt um að gripið hafi verið til neinna sérstakra aðgerða til að sporna við þessari þróun. Mér finnst að skoða þurfi að veita lögreglu einhverjar heimildir til vopnaleitar þar sem ætla má að fólk beri vopn (ólöglega). Hægt er að framkvæma slíka leit án þess að snerta þurfi fólk eða valda því sérstökum ama (málmleitartæki sb… Lesa alla
Margt horfir væntanlega til bóta í þessum drögum. Ég sakna þess hins vega að sjá ekkert tekið beint á þeim vanda sem virðist hafa farið vaxandi á undanförnum árum. Þar á ég við vopnaburð, einkum yngra fólks og gjarnan í tenglum við skemmtanalíf í Reykjavík. Ekki er mér kunnungt um að gripið hafi verið til neinna sérstakra aðgerða til að sporna við þessari þróun. Mér finnst að skoða þurfi að veita lögreglu einhverjar heimildir til vopnaleitar þar sem ætla má að fólk beri vopn (ólöglega). Hægt er að framkvæma slíka leit án þess að snerta þurfi fólk eða valda því sérstökum ama (málmleitartæki sbr. flugstöðvar). Vitundin um möguleika á slíkri leit gæti einnig haft fælingarmátt.
- #4Gunnar Haukur Sigfússon
Þótt þetta frumvarp sé framför frá upphaflegum drögum frá 2011 þá tel ég að bæta þurfi margt við frumvarpið til að það fullnægi þeim tilgangi að bæði vernda borgara landsins betur og hjálpa lögreglu í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi og mögulega hryðjuverkaógn. 1) Gæðastjóri lögreglu. Ég fagna því að það sé settur gæðastjóri lögreglu. Hins vegar er ekki skiljanlegt hvar verksvið hans liggur í frumvarpinu. Gæðastjóri ætti að hjálpa til við að starfsmenn vinni skv. vel skilgreindum verkferlum, skjöl séu stöðluð o.s.frv. Auk þess gæti hann komið að því að setja upp kerfi fyrir… Lesa alla
Þótt þetta frumvarp sé framför frá upphaflegum drögum frá 2011 þá tel ég að bæta þurfi margt við frumvarpið til að það fullnægi þeim tilgangi að bæði vernda borgara landsins betur og hjálpa lögreglu í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi og mögulega hryðjuverkaógn. 1) Gæðastjóri lögreglu. Ég fagna því að það sé settur gæðastjóri lögreglu. Hins vegar er ekki skiljanlegt hvar verksvið hans liggur í frumvarpinu. Gæðastjóri ætti að hjálpa til við að starfsmenn vinni skv. vel skilgreindum verkferlum, skjöl séu stöðluð o.s.frv. Auk þess gæti hann komið að því að setja upp kerfi fyrir starfsþjálfun lögreglumanna, sett upp verkferla fyrir innri úttekt o.fl. Það sem gæðastjóri (innan lögreglu) á hins vegar ekki að gera eru ytri úttektir á lögreglu né að hafa eftirlit með starfsmönnum lögreglu. Það yrði frekar að vera á könnu NEL og annarra óháðra stofnanna. 2) Efling nefndar um eftirlit með lögreglu (NEL). Það er ekki nóg að bæta við (samskonar) starfsmönnum í núverandi nefnd og fyrir eru og halda núverandi starfi nefndarinnar nánast óbreyttu áfram eins og lagt er til í frumvarpinu. Það þarf að styrkja nefndina þannig að hún geti haft raunverulegt eftirlit með lögreglu og tekið við kvörtunum og kærum frá aðilum sem telja á sinn hlut gengið í aðgerðum lögreglu. Einnig að gefa henni skýrt vald til að fylgja athugasemdum og kærum eftir, m.a. frá Ríkissaksóknara ef svo ber undir. Einn möguleiki væri að virkja (sérstakan?) saksóknara sbr. því sem núverandi frumvarp leggur til að gert verði gagnvart mögulegum sakborningum, en í þessu tilfelli væri það gagnvart starfsmönnum lögreglu sem farið hefðu út fyrir þann ramma sem þeim hefur verið settur í lögum og reglum. Það er allavegana lágmark að nefndin sé líka upplýst af lögreglu þegar rannsókn er hafin en ekki bara þegar henni er lokið sbr. texta í frumvarpi. 3) Ábyrgðarsvið og eftirlit almennt hjá lögreglu. Það er ennþá óskýrt í frumvarpinu hvernig verkaskipting er milli Ríkisslögreglustjóra, Ríkissaksóknara og lögregluembætta. Bara nefnt að þeir hittist reglulega og beri saman bækur sínar og svo verði það nánar útfært í reglugerðum sem Ríkislögreglustjóri, Ríkissaksóknari (?) og Dómsmálaráðuneytið setur. Einnig hver tekur við skýrslum þeim sem skila á um starfsemina (NEL ? og hvaða nefnd Alþingis) og hvernig þeim verður fylgt eftir. Grundvallaratriði er þetta: Lögreglan má ekki hafa eftirlit með sjálfri sér. Það er ekki hægt að dreifa eftirlitinu á 2-3 staði með óskýra ábyrgð (Gæðastjóri , NEL o.s.frv.) 4) Geymsla (forvirkra) rannsóknargagna, verndun persónuupplýsinga og LÖKE kerfið. Núverandi aðalkerfi lögreglu (LÖKE) uppfyllir ekki þau skilyrði sem gerð eru til kerfa sem vista eiga rannsóknar- og persónuupplýsingar sbr. á Norðurlöndum og Þýskalandi. LÖKE kerfið var upphaflega hannað sem atvikaskráningarkerfi og hefur verið plástrað undanfarin ár eftir klúður sem lesa má um í fjölmiðlum við einfalda leit á vefnum. Slíkt kerfi þarf að uppfylla a.m.k eftirfarandi skilyrði: 1. Að reglulega (helst sjálfkrafa) sé eytt út úreltum upplýsingum. Sem sagt að kerfið geymi ekki upplýsingar sem verður að eyða skv. lögum. Þetta á bæði við almenn lög og þau lög (sem eftir á að setja) um framhaldslíf slíkra gagna eftir að þau hafa verið flutt til lögreglu. 2. Að aðgangsstýring sé bæði á notenda-aðgangi og gögnum. "Active Directory" aðgangsstýring LÖKE uppfyllir oftast bara notanda-hlutann. 3. Að möguleiki sé að miðla þessum gögnum milli stofnana lögreglu og samstarfsaðila á öruggan hátt. 4. Að gögnin séu rétt vensluð og helst dulkóðuð, helst geymd í gagnagrunni en að lágmarki dulkóðuð í samskiptum milli kerfa lögreglu og samstarfsaðila. Það vantar að venslaðar séu réttar upplýsingar, t.d. stöðu sekta ofl. aðila sem hefur áhrif á ákvarðanatöku. Einnig eru veikleikar í núverandi fjarskipta- og netbúnaði samstarfsaðila lögreglu og geymslu gagna utan kerfis lögreglu. Í stuttu máli. Þetta frumvarp er framför en þarfnast mun betri vinnslu, m.a. með tilliti til eftirlits með lögreglu áður en það er fullbúið. Auk þess vantar lögreglu kerfi (og fjármagn) til að ráða við gagnageymslu og vinnslu á þeim skala sem "upplýsingamiðaðar" forvirkar rannsóknir krefjast, ef borið er saman við nágrannaríki. Með umsögninni hér fylgja athugasemdir við frumvarpið ("comment"), sjá skjalið Drog_ad_frumvarpi_breytingar_a_logreglulogum_umsogn_ghs í viðhengi.
- #5Símon Falkner
Þetta frumvarp er byggt á útúrsnúningum og blekkingum. #1. Dómstólar í nágrannalöndum okkar leyfa ekki gögn sem lögregla hefur aflað með aðferðum sem standast ekki réttindi skv stjórnarskrá, t.d. með líkamsleit eða húsleit eða hlerunum sem samræmast ekki þessum réttindum, og vísa þannig málum frá. Þessi lönd hafa því leyft svokallaðar forvirkar heimildir eða hryðjuverkaheimildir til lögleiða gagnaöflum með aðferðum sem standast venjulega ekki stjórnarskrá, í sérstökum tilfellum til að koma í veg fyrir mjög alvarleg brot eins og hryðjuverk. Dómstólar á Íslandi hafa hinsvegar leyft notkun á gö… Lesa alla
Þetta frumvarp er byggt á útúrsnúningum og blekkingum. #1. Dómstólar í nágrannalöndum okkar leyfa ekki gögn sem lögregla hefur aflað með aðferðum sem standast ekki réttindi skv stjórnarskrá, t.d. með líkamsleit eða húsleit eða hlerunum sem samræmast ekki þessum réttindum, og vísa þannig málum frá. Þessi lönd hafa því leyft svokallaðar forvirkar heimildir eða hryðjuverkaheimildir til lögleiða gagnaöflum með aðferðum sem standast venjulega ekki stjórnarskrá, í sérstökum tilfellum til að koma í veg fyrir mjög alvarleg brot eins og hryðjuverk. Dómstólar á Íslandi hafa hinsvegar leyft notkun á gögnum sem lögreglan aflaði með ólögmætum hætti, óháð hversu lítil og ómerkileg málin eru. Fólk er sem sagt dæmt sekt þótt lögreglan hafi brotið lög og réttindi sem eiga að vera varin með stjórnarskránni. #2. Ekkert bendir til þess að lögreglan á Íslandi eigi erfiðara með að fá dómsúrskurði til að leyfa eftirlit en lögreglan í nágrannalöndunum, og jafnvel þótt lögreglan á Íslandi ætti erfiðara með að afla dómsúrskurða til að réttlæta eftirlit, þá myndi það engu máli skipta því dómstólar á Íslandi leyfa gögn sem lögreglan hefur aflað án réttra heimilda. Lögreglan hefur komist upp með að stunda "ólögmætt" eftirlit til að koma upp um smávægileg fíkniefnabrot eins og jónureykingar hjá "Jóni og Gunnu", og því hægilegt að halda því fram að lögreglan geti ekki beitt "ólögmætum" aðferðum til að koma upp um skipulagða brotastarfsemi og hryðjuverk. #3. Athyglisvert er að sama sagan heldur áfram með þessum nýju lagabreytingum, því ekkert virðist koma í veg fyrir að lögregla misnoti þessar heimildir og að dómstólar geti dæmt fólk sekt jafnvel þótt svo sé. Það breytir engu þótt fólk geti farið í mál gegn lögreglu og kannski fengið 100 þúsund kall í bætur. #4. Lögreglan í nágrannaríkjum okkar býr við allt annað og flóknara eftirlitsumhverfi en lögreglan á Íslandi sem þarf ekki einu sinni að undirgangast fíkniefnaprófanir. Athygli vekur að þótt minnst sé á þörf á virkara eftirliti í þessu lagafrumvarpi, þá er ekki gengist eftir því að tryggja að eftirlitið á Íslandi verði sambærilegt, og ekkert sem kemur í veg fyrir að lögreglan noti þessar nýju heimildir jafnvel þótt eftirlitið sé raunverulega ekki til staðar, t.d. vegna manneklu eða peningaleysis, sem hefur einmitt verið raunin síðustu ár með það litla meinta eftirlit sem nú þegar á að vera til staðar. Þegar athugað er að lögregla getur í raun starfað eftirlitslaust, og dómstólar geta dæmt fólk sekt jafnvel þótt lögregla hafi brotið eða misnotað gróflega lög og reglur til að afla gagna, þá blasir ástand sem minnir mun meira á austantjaldsríkin í gamladaga en nágrannalönd okkar í dag.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.