Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-154/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar)

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingu á lögum nr. 44/2014 um vísindarannsóknir.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Um er að ræða tillögu sem felur í sér breytingu á 13. gr. laganna. Umrætt ákvæði fjallar um umfjöllun Persónuverndar á vísindarannsóknum á heilbrigðissviði en samkvæmt ákvæðinu skulu vísindasiðanefnd og siðanefndir heilbrigðisrannsókna senda Persónuvernd yfirlit yfir umsóknir um leyfi til vísindarannsókna. Að fengnu yfirliti ákveður Persónuvernd hvort hún taki málið til frekari meðferðar. Til þess að unnt sé að senda eingöngu tilteknar tegundir rannsókna til umfjöllunar Persónuverndar og þar með einfalda umsóknarferlið er nauðsynlegt að breyta framangreindu ákvæði. Lagt er til að ráðherra sé skylt að setja reglugerð um umsóknir sem senda skal Persónuvernd til umfjöllunar. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í áformunum.

S-154/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. ágú. 2023 – 20. sep. 2023· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar)

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingu á lögum nr. 44/2014 um vísindarannsóknir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-154/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. september 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 905)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. september 2024)

Umsagnarfresti lauk 20. september 2023. Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið. Töluverð breyting var gerð á frumvarpinu í tilefni af þeim og því talið rétt að setja frumvarpið aftur í samráð. Uppfærð drög að frumvarpi voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 17. nóvember 2023 (mál nr. S-235/2023) og var hagsmunaaðilum gert viðvart þar um. Umsagnarfresti lauk 2. desember.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-154/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar) · Alviti