Breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (raforkuöryggi)
Umhverfis,- orku- og lotslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (raforkuöryggi)
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-34/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 27. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 943)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2025)
Frumvarp birt til samráðs, mál nr. s-48/2023
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Jón Örn Loðmfjörð Arnarson
Raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. Sem fræðingur og starfsmaður orkugeirans til margra ára, tel ég rétt að afstaða mín komi fram: Við innleiðingu reglna sem við tókum upp hjá EB, varð okkar raforkuumhverfi að einu Gullæði fyrir ?? – sem hefur rústað jafnvægi landsins, hvað orkuöryggi varðar. Dæmi: Vestfirðir, Orkubú Vestfjarða Mjólkárvirkjun 2 var reyst um um 1976 og var sögð uppfylla þarfir Vestfjarða um ókomna framtíð. Sú virkjun gat þó ekki annað rafmagnsfjarhitunar sem sem síðar varð í stað olíukyndingar (þarf sögu kynningu?) . En v… Lesa alla
Raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. Sem fræðingur og starfsmaður orkugeirans til margra ára, tel ég rétt að afstaða mín komi fram: Við innleiðingu reglna sem við tókum upp hjá EB, varð okkar raforkuumhverfi að einu Gullæði fyrir ?? – sem hefur rústað jafnvægi landsins, hvað orkuöryggi varðar. Dæmi: Vestfirðir, Orkubú Vestfjarða Mjólkárvirkjun 2 var reyst um um 1976 og var sögð uppfylla þarfir Vestfjarða um ókomna framtíð. Sú virkjun gat þó ekki annað rafmagnsfjarhitunar sem sem síðar varð í stað olíukyndingar (þarf sögu kynningu?) . En við tilkomu Vesturlínu (tenging við landskerfið frá Hrútatungu, tengistöð sem þjónar landinu) var hún mjög mikilvæg sem jafnvægis þáttur í löngu raforku kerfi Vestfjarða og oftar en ekki, gat séð til þess að straumleysi var skemmra en ella ef nokkuð. Eftir tilkomu EB reglugerða um samkeppni m.m. var ákveðið að stækka Mjólká 2 – þó að þeim mörkum sem gerðu ekki kröfu um að hún gæti þjónað Vestfjörðum í samneti Landsnets. Þá var reglan að ef aflið vari yfir X MW þá hefði Landsnet rétt á að stjórna viðkomandi virkjun, kerfinu til hagsbóta. Valið var því X – 0,1 og þar með sparaðist þá um 60M kr í stofnkostnaði (að sagt var). Virkjunin skyldi einungis framleiða orku – er hægt vari að selja inná landskerfið. Það er rétt að nafna það hér, að við fyrsta straumleysi, eftir þessa nýju Mjólkárvirkjun 2, varð að brenna olíu á dísel varaafls stöðvum, vegna straumleysis um allt á Vestfjörðum, fyrir tugi milljóna, að óþörfu. Landsnet varð vegna sömu reglna að reisa varaafl á Vestfjörðum fyrir Milljarða á skömmum tíma. Þessi afstaða er landlæg og þjónar einungis ????, ekki samfélaginu. Því ættu að vera sér reglur fyrir okkur Mörlandann hvað þessar EB reglur varðar, EF ÞÆR EIGA AÐ ÞJÓNA SAMFÉLAGINU. Þjónar ráðuneytið samfélaginu?
- #2Skagafjörður
Á 36. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 21. febrúar 2023 var tekið fyrir mál 34/2023 til samráðs "Breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (raforkuöryggi)". Byggðarráð Skagafjarðar leggur áherslu á að við endurskoðun á raforkulögum og lögum um Orkustofnun verði tryggt að allir landsmenn og landshlutar hafi sambærilegt aðgengi að nauðsynlegri raforku til atvinnuuppbyggingar og/eða til eflingar á byggð. Framboð og eftirspurn á raforku getur ekki eingöngu ráðist af markaðslögmálum eins og gert hefur verið ráð fyrir. Meginástæða þess er mikill mismunur á getu flutnin… Lesa alla
Á 36. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 21. febrúar 2023 var tekið fyrir mál 34/2023 til samráðs "Breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (raforkuöryggi)". Byggðarráð Skagafjarðar leggur áherslu á að við endurskoðun á raforkulögum og lögum um Orkustofnun verði tryggt að allir landsmenn og landshlutar hafi sambærilegt aðgengi að nauðsynlegri raforku til atvinnuuppbyggingar og/eða til eflingar á byggð. Framboð og eftirspurn á raforku getur ekki eingöngu ráðist af markaðslögmálum eins og gert hefur verið ráð fyrir. Meginástæða þess er mikill mismunur á getu flutningskerfa innan landshluta og á milli þeirra og mismunandi vegalengdir frá uppruna orkunnar til hugsanlegra notanda. Núverandi ferlar sem snúa að endurnýjun á meginflutningskerfinu og endurbótum á því eru einnig allt of þungir og hægfara sem gerir það að verkum að fjárfestar eða hugsanlegir notendur raforkunnar staðsetja sig í dag þar sem inniviðirnir eru í lagi og nægt framboð er af raforku. Hin svæðin þar sem flutningsgeta er ekki til staðar verða því útundan. Stjórnvöld verða því að tryggja jafnt aðgengi landsmanna að raforku á sama flutningsverði innan svæða og milli svæða. Álfhildur Leifsdóttir (Vg og óháð) óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu þessa dagskrárliðar. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #3Haraldur Þór Jónsson
Að staða raforkukerfisins á Íslandi sé sú að verið sé að grípa til lagasetningar til að bregðast við alvarlegum orkuskorti leysir ekki hið raunverulega vandamál sem þessi lög eru hugsuð til að bregðast við. Alþingi hefur ekki hlustað á varnaðarorð forstjóra Landsvirkjunar um yfirvofandi orkuskort í fjölda ára. Nú stendur þjóðin frammi fyrir þeirri alvarlegu stöðu að rafmagnið er búið og forsendur framtíðar hagvaxtar eru brostnar. Vel má vera að nauðsynlegt sé að bregðast við þessari stöðu með þessu áætlaða lagafrumvarpi. Umsögn þessi snýr að því að hvetja Umhverfis-, orku- og loftslags… Lesa alla
Að staða raforkukerfisins á Íslandi sé sú að verið sé að grípa til lagasetningar til að bregðast við alvarlegum orkuskorti leysir ekki hið raunverulega vandamál sem þessi lög eru hugsuð til að bregðast við. Alþingi hefur ekki hlustað á varnaðarorð forstjóra Landsvirkjunar um yfirvofandi orkuskort í fjölda ára. Nú stendur þjóðin frammi fyrir þeirri alvarlegu stöðu að rafmagnið er búið og forsendur framtíðar hagvaxtar eru brostnar. Vel má vera að nauðsynlegt sé að bregðast við þessari stöðu með þessu áætlaða lagafrumvarpi. Umsögn þessi snýr að því að hvetja Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið til að bregðast við hinu raunverulega vandamáli sem er að tryggja aukna uppbyggingu virkjana á Íslandi. Það verður ekki hægt að gera nema ná sátt við nærumhverfi uppsprettu orkunnar. Ég vil vekja athygli á bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps 15.febrúar 2023: Frá því að ný sveitarstjórn tók til starfa í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þann 1. júní 2022 hefur mikil vinna farið í virkjanamál og málefni Landsvirkjunar. Hvammsvirkjun hefur verið fyrirferðamikil í sveitarfélaginu síðustu 20 ár og er yfirferð framkvæmdaleyfis nú í gangi hjá sveitarstjórn. Á undanförnum mánuðum hefur mikil greiningarvinna átt sér stað í sveitarstjórn um áhrif orkuframleiðslunnar á nærumhverfi okkar, og nærsamfélags orkuframleiðslu almennt. Tölulegar staðreyndir sýna fram á það að nærsamfélagið nýtur mjög takmarkaðs ávinnings af orkuframleiðslunni á meðan efnahagslegur ávinningur kemur fram þar sem orkan er nýtt. Sú staðreynd gerir það að verkum að orkuvinnsla í sveitarfélaginu þjónar ekki hagsmunum þess til framtíðar í óbreyttri mynd. Vegna þessa leggur sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps fram eftirfarandi bókun: Ríkisstjórn Íslands setti í stjórnarsáttmála sinn aðgerðir um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis, þar sem grunnur er lagður að fullum orkuskiptum, að þeim verði náð eigi síðar en árið 2040 og að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrst þjóða. Hvammsvirkjun er einungis fyrsta skrefið af mörgum í gríðarlegum áformuðum virkjanaframkvæmdum Landsvirkjunar í nærumhverfi Skeiða- og Gnúpverjahrepps á næstu 17 árum. Ekkert samtal hefur átt sér stað á milli ríkis og sveitarfélaga sem þurfa að skipuleggja og heimila allar þessar framkvæmdir. Það er staðreynd að nærumhverfið þar sem orkan er framleidd nýtur mjög takmarkaðs ávinnings af henni. Tryggja þarf með lögum að nærumhverfið þar sem orkan á uppsprettu sína, njóti efnahagslegs ávinnings sem mun styrkja byggð þar sem orkan verður til um allt land. Einnig þarf að breyta raforkulögum til að tryggja að dreifikostnaður raforku sé sá sami í dreifbýli og þéttbýli. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hvetur öll sveitarfélög á landsbyggðinni sem hafa orkumannvirki í nærumhverfi sínu, eða eru með hugsanleg virkjanaáform í farvatninu til þess að staldra við í skipulagsmálum virkjana á meðan sanngjörn skipting auðlindarinnar verður fest í lög. Með öðrum kosti verða engin orkuskipti á Íslandi í náinni framtíð. Einnig vil ég vekja athygli á bókun stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga um orkumál: Á stjórnarfundi samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var föstudaginn 17. febrúar var eftirfarandi bókað: Ríkisstjórn Íslands setti í stjórnarsáttmála sinn aðgerðir um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis, þar sem grunnur er lagður að fullum orkuskiptum og að þeim verði náð eigi síðar en árið 2040. Því er mikilvægt að ríkið meti stöðu á framleiðslu á raforku á Íslandi, áætli þörf til frekari framleiðslu og ákveði með hvaða móti og hvar skuli afla þeirrar orku út frá ýmsum þáttum svo sem umhverfislegum, samfélagslegum og efnahagslegum með Rammaáætlun eða öðru sambærilegu ferli. Endurskoða þarf hverjar heimildir sveitarfélaga eigi að vera til gjaldtöku og eða álagningar gjalda og meta hvort leitast eigi við aðrar heimildir svo sem til skattaafslátta eða samfélagssjóða eða annað sem hefur efnahagsleg áhrif fyrir sveitarfélög, ágóða landeigenda, bætur til fasteignaeigenda í grennd vegna virðisminnkunar, tryggingar vegna umhverfisskaða á framkvæmdar- og rekstrartíma og vegna niðurrifs að rekstrartíma liðnum og fleira. Arður af nýtingu náttúruauðlinda til raforkuframleiðslu þarf að skiptast með sanngjörnum hætti milli þeirra sem eru hagaðilar við orkuvinnslu. Tryggja þarf með lögum að nærumhverfið þar sem orkan á uppsprettu sína, njóti efnahagslegs ávinnings sem mun styrkja byggð þar sem orkan verður til um allt land. Það er sanngirnismál að orkuvinnslan skili sambærilegum tekjum í nærsamfélagið eins og öll önnur atvinnustarfssemi gerir. Einnig þarf að breyta raforkulögum til að tryggja að dreifikostnaður raforku sé sá sami í dreifbýli og þéttbýli. Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hvetur öll sveitarfélög á landsbyggðinni sem hafa orkumannvirki í nærumhverfi sínu, eða eru með hugsanleg virkjanaáform í farvatninu til þess að staldra við í skipulagsmálum virkjana á meðan sanngjörn skipting auðlindarinnar verður fest í lög. Með þessari bókun vill stjórn taka undir með sveitarstjórnum Múlaþings og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Til að ítreka mikilvægi sjónarmiða sveitarfélaganna í orkuskiptunum og vinnslu raforku skipaði stjórn á fundi sínum starfsnefnd sem hefur það hlutverk að vinna tillögur að breytingum hvað varðar tekjur sveitarfélaga af orkuframleiðslu, leggja fram drög að nýju lagaumhverfi um orkuvinnslu á Íslandi og koma á virku samtali allra hagaðila í samráði við stjórn samtaka orkusveitarfélaga. Formaður starfsnefndar er Haraldur Þór Jónssson, oddviti og sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Með því að helstu orkusveitarfélög landsins hafa sameinast um að staldra við í skipulagsmálum virkjanaframkvæmda þar sem orkuvinnsla þjónar ekki lengur hagsmunum nærsamfélagsins þá vil ég hvetja Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið til að takast á við orsök vandamálsins, hefja af alvöru samtalið við orkusveitarfélögin um hvernig nærumhverfi uppsprettu orkunnar eigi að njóta sambærilegs ávinnings eins og öll önnur atvinnustarfssemi. Árangur á því sviði mun gera þessa lagasetningu óþarfa. Haraldur Þór Jónsson Oddviti og Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps
- #4Samtök iðnaðarins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun, mál nr. 34/2023.
- #5Jóhann Þór Magnússon
Meðfylgjandi er umsögn Jóhanns Þórs Magnússonar raforkuverkfræðings um breytingar á raforkulögum
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.