Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-129/2023 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum (tímabundnar uppbyggingarheimildir)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum varðandi heimildir sveitarfélaga til að tímabinda uppbyggingarheimildir á grundvelli skipulags.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september); 154. þing (áætlað: nóvember).

Í rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúðarhúsnæðis 2023-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum eru sett fram markmið um að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf og stuðla að auknum stöðugleika og jafnvægi á húsnæðismarkaði. Húsnæðisáætlanir verða lykilstjórntæki sveitarfélaga til að ná markmiðum samningsins um að mæta metinni þörf fyrir 35.000 íbúðir á gildistíma samningsins en þar af er uppsöfnuð óuppfyllt íbúðaþörf metin um 4.500 íbúðir. Markmið fyrirhugaðrar lagabreytingar er að minnka hættu á því að ónýttar lóðir hægi á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Til greina kemur að bæta inn ákvæði í skipulagslög og skipulagsreglugerð um heimildir sveitarfélaga til að setja tímaramma varðandi uppbyggingarheimildir á grundvelli aðalskipulags eða deiliskipulags. Slíkur tímarammi þyrfti að ná til ákveðins árabils og er mikilvægt að horft verði til þess að ýmsar ytri aðstæður geta haft áhrif á uppbyggingarhraða. Uppbyggingarhraði skiptir þó ávallt miklu máli varðandi grunninnviði sem sveitarfélögin eru skuldbundin til að vinna að, ekki aðeins fyrir sveitarfélögin sjálf heldur einnig fyrirtæki og stofnanir sem koma að uppbyggingu innviða.

S-129/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 5 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum (tímabundnar uppbyggingarheimildir)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum varðandi heimildir sveitarfélaga til að tímabinda uppbyggingarheimildir á grundvelli skipulags.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2023
  2. Birt í Samráðsgátt (S-129/2023)
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 628)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. júní 2024)

Frumvarpið var lagt fram á 154. löggjafarþingi

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-129/2023: Áform um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum (tímabundnar uppbyggingarheimildir) · Alviti