Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-182/2022 · Dómsmálaráðuneytið

Breytingar á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

Markmið frumvarpsins er að einfalda og bæta málsmeðferð hjá Persónuvernd auk þess sem lagðar eru til breytingar sem þykja nauðsynlegar að fenginni reynslu af framkvæmd persónuverndarlöggjafarinnar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október); 154. þing (áætlað: janúar).

Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga: i. Heimilt verði að víkja frá upplýsinga- og aðgangsrétti skráðra einstaklinga en einungis að því marki sem hagsmunir þeirra þar að lútandi þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almannahagsmunum og sem nauðsynlegt þykir með vísan til tilgreindra hagsmuna. ii. Persónuvernd geti beitt dagsektum samkvæmt lögunum án aðkomu stjórnar og við bætist heimild fyrir stofnunina til að beita dagsektum þegar ekki er orðið við beiðnum hennar um aðgang að upplýsingum, gögnum og húsnæði vegna eftirlitsstarfa sinna. iii. Persónuvernd verði ekki lengur skylt að rannsaka og úrskurða um allar kvartanir sem henni berast en skal upplýsa kvartanda um framvindu og niðurstöður máls og um heimild hans til að bera ákvarðanir og málsmeðferð stofnunarinnar undir dómstóla. Auk þess verði áréttaður réttur aðila máls til að bera ákvarðanir og málsmeðferð Persónuverndar undir dómstóla. iv. Heimilt verði að mæla fyrir um í gjaldskrá ráðherra að vinnsluaðilar greiði gjald sem hlýst af eftirliti Persónuverndar, eins og ábyrgðaraðilar samkvæmt lögunum eins og þau eru nú. Þá er lagt til að í lög nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi verði sett heimild fyrir ráðherra til að setja gjaldskrá sem mælir fyrir um gjald sem ábyrgðar- og vinnsluaðilar skulu greiða vegna eftirlits Persónuverndar, sem og við úttekt á starfsemi við undirbúning vinnsluleyfis eða annarrar afgreiðslu.

S-182/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. okt. 2022 – 24. okt. 2022· 3 umsagnir

Breytingar á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

Markmið frumvarpsins er að einfalda og bæta málsmeðferð hjá Persónuvernd auk þess sem lagðar eru til breytingar sem þykja nauðsynlegar að fenginni reynslu af framkvæmd persónuverndarlöggjafarinnar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 476)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. nóvember 2022)

Þrjár umsagnir bárust um frumvarpsdrögin við kynningu í samráðsgátt. Umsagnirnar leiddu til þess að ákveðin atriði voru áréttuð í athugasemdum við 2., 3. og 5. gr. frumvarpsdraganna. Gerð er grein fyrir helstu atriðum umsagnanna og viðbrögðum við þeim í niðurstöðuskjali og í frumvarpinu sem er lagt fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Hilmar Vilberg Gylfason
    Undirritaður gerir eftirfarandi athugasemdir við 3. gr. frumvarpsins varðandi breytingu á 39. gr. laganna: Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við þá breytingu sem lögð er til með frumvarpinu að Persónuvernd taki ákvörðun um hvort kvörtun sem berist gefi nægilegar ástæður til rannsóknar. Nú er það svo að Persónuvernd er stjórnvald sem lýtur reglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en ein af grunnreglum þeirra laga er rannsóknarreglan. Þar sem almennir borgarar geta sent kvartanir til Persónuverndar þá verður að hafa í huga að ekki verður gerð sú krafa til kvartenda almennt að þeir hafi þekkingu t… Lesa alla

    Undirritaður gerir eftirfarandi athugasemdir við 3. gr. frumvarpsins varðandi breytingu á 39. gr. laganna: Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við þá breytingu sem lögð er til með frumvarpinu að Persónuvernd taki ákvörðun um hvort kvörtun sem berist gefi nægilegar ástæður til rannsóknar. Nú er það svo að Persónuvernd er stjórnvald sem lýtur reglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en ein af grunnreglum þeirra laga er rannsóknarreglan. Þar sem almennir borgarar geta sent kvartanir til Persónuverndar þá verður að hafa í huga að ekki verður gerð sú krafa til kvartenda almennt að þeir hafi þekkingu til að meta hvaða upplýsingar þurfa að fylgja kvörtun eða að gengið verði út frá því að kvartandi geti komið öllum málsástæðum á framfæri strax í kvörtun án þekkingar á því hvað það er sem skipti máli við úrvinnslu málsins. Miðað við greinargerð með frumvarpinu þá er tillagan tilkomin vegna þrýstings frá Persónuvernd vegna mikils fjölda mála og ónógra fjárveitinga. Verður að telja það nokkuð alvarlegt mál að ráða eigi bót á fjársvelti stofnunarinnar með því að draga úr réttindum almennra borgara. Undirritaður telur því með öllu ótækt að Persónuvernd verði ekki gert að rannsaka allar kvartanir sem sendar eru stofnuninni og úrskurða að því loknu. Jafnframt má bæta því við að Persónuvernd hefur undanfarið stundað þá iðju að koma sér undan því að úrskurða í málum með afar óheiðarlegum hætti en það felur í sér að við framkvæmd andmæla þá setur Persónuvernd eftirfarandi texta inn í bréf til kvartanda sem fylgir afriti af andmælum þess sem kvartað er yfir ,,[…] berist engin svör innan frestsins verður litið svo á að þú hafir ákveðið að falla frá kvörtun þinni. Verður málinu þá lokað í málaskrá Persónuverndar.“ Þessi framsetning stofnunarinnar er afar villandi en hún ber með sér að Persónuvernd hafi tekið afstöðu til andmæla þess sem kvartað er vegna og mat stofnunarinnar sé að kvörtunin eigi ekki rétt á sér. Það er hinsvegar ekki sú staða sem er uppi þarna því á þessum tímapunkti hefur Persónuvernd ekkert skoðað andmælin og það því sett í hendur þess sem kvartar að meta andmæli sem oft á tíðum eru margra blaðsíðna flókinn lagatexti unninn af lögmönnum stórfyrirtækja. Óeðlilegt er að slík kvöð sé lögð á almenna borgara. Núverandi ákvæði persónuverndarlaga takmarka mjög möguleika almennra borgara til að fá endurskoðaðar þær ákvarðanir sem Persónuvernd tekur þar sem eingöngu er hægt að bera slíkar ákvarðanir undir dómstóla. Vekur það nokkra furðu að hvorki sé hægt að kæra ákvarðanir Persónuverndar til ráðuneytis dómsmála né heyri þær ákvarðanir undir endurskoðun úrskurðarnefndar. Aðgengi almennra borgara að dómstólum er orðið afar takmarkað vegna yfirgengilegs kostnaðar við að vísa málum þangað, auk þess sem stefnendur geta átt á hætt að vera gert að greiða stefnda málskostnað tapist mál fyrir dómstólum. Kæruleiðir hvort sem er til ráðuneytis eða úrskurðarnefndar eru því mikilvægur þáttur í að tryggja almennum borgurum réttláta málsmeðferð. Sú tillaga sem lögð er til í b-lið 3. gr. frumvarpsins, þ.e. að bæði ákvarðanir og ákvarðanir um að taka mál ekki til rannsóknar verði eingöngu á valdi dómstóla að endurskoða er í raun aðför að réttindum hinna skráðu einstaklinga sem telja á sér brotið . Afar mikilvægt er að hið minnsta málsmeðferð Persónuverndar verði kæranleg til dómsmálaráðuneytisins. Undirritaður mælir eindregið gegn samþykkt frumvarpsins í núverandi mynd nema að samhliða verði bundin í lög kæruleið til ráðuneytis eða sett á fót úrskurðarnefnd persónuverndarmála. Sé þess óskað er undirritaður tilbúinn til frekara samráðs um málið. Virðingarfyllst Hilmar Vilberg Gylfason, lögfræðingur Breiðavík 5, 112 Reykjavík, s. 8686988

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SVÞ- Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samorku, Samtaka fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs Íslands um málið.

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Sjá viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-182/2022: Breytingar á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi · Alviti