Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-50/2023 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra boðar til samráðs um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember); 154. þing (áætlað: september).

Stefna um þekkingarsamfélag á Íslandi byggir á þeirri sýn að lykillinn að bættum lífsgæðum og auknum tækifærum í atvinnulífi sé að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Í því felst að hægt sé að vaxa út úr sveiflukenndu efnahagsástandi með því að beina sjónum að alþjóðageiranum en honum tilheyra öll fyrirtæki sem fá útflutningstekjur sem byggja á öðru en okkar takmörkuðu auðlindum. Forsenda slíks vaxtar eru breyttar áherslur í menntakerfinu, í vísindum, nýsköpun, sjálfbærum þekkingariðnaði, upplýsingatækni, gervigreind, öflugum fjarskiptum og netöryggi. Með því að því að virkja hugvitið verði skapaðar aðstæður fyrir innlenda og alþjóðlega sérfræðinga í ný og áhugaverð störf í þekkingariðnaði hér á landi.

S-50/2023· Drög að stefnu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. mar. 2023 – 20. mar. 2023· 45 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra boðar til samráðs um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-50/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 45 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 234)
Niðurstöður samráðs (3. apríl 2023)

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025 voru birt til kynningar og athugasemda í Samráðsgátt stjórnvalda 1.–20. mars 2023. Tillagan vakti mikla athygli og bárust alls 45 umsagnir um tillöguna. Margir umsagnaraðilar fögnuðu tillögunni og tækifæri til að lýsa yfir stuðningi við hana. Við frágang á þingsályktunartillögunni og greinargerðar með henni til framlagningar á Alþingi hefur verið tekið tillit til fjölmargra athugasemda og ábendinga. Nánar vísast til 5. kafla í tilvísuðu þingskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (45)
  • #1Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025, mál 50/2023.

  • #2Háskólafélag Suðurlands ehf.

    Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka þekkingarsetra / SÞS vegna þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025. F.h. SÞS Ingunn Jónsdóttir formaður

  • #3Helga Bragadóttir
    Til: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins Varðandi: Mál nr. 50/2023 Birt: 01.03.2023 Umsögn: Helga Bragadóttir, prófessor, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands, formaður fagráðs hjúkrunarstjórnunar Landspítala Málsefni: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra boðar til samráðs um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025 Umsögn Fyrir hönd Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands fagna ég mjög metnaðarfullri stefnu og ítarlegri Tillögu til þingsályktunar um s… Lesa alla

    Til: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins Varðandi: Mál nr. 50/2023 Birt: 01.03.2023 Umsögn: Helga Bragadóttir, prófessor, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands, formaður fagráðs hjúkrunarstjórnunar Landspítala Málsefni: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra boðar til samráðs um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025 Umsögn Fyrir hönd Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands fagna ég mjög metnaðarfullri stefnu og ítarlegri Tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025. Tillagan tekur til margar þátta sem snerta flesta fleti þekkingarsköpunar og nýtingu bestu þekkingar og þar með kjarna og starfsemi háskóla. Hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði, sem báðar eru stundaðar og kenndar við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, eru fræðigreinar sem láta til sín taka innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Deildin hefur ítrekað undanfarin ár, verið metin með þeim bestu í heimi á alþjóðlegum matslistum, sjá Shanghai Ranking https://www.shanghairanking.com/institution/university-of-iceland og mikilvægt að gæðum deildar sé við haldið. Hjúkrun í Háskóla Íslands fagnar 50 ára afmæli í ár og má með sanni segja að rannsóknir og þekkingarþróun í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum hafi tekið stökkbreytingum á þeim tíma. Háskólinn er eini skóli landsins sem býður upp á nám í hjúkrunarfæði á öllum háskólastigum þ.e. BS, MS og PhD. Þekking og þekkingarþróun er forsenda þess að kenna og leiðbeina nýjum kynslóðum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og er einnig forsenda þróunar og gæða heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Til þess að vel takist til með vísindi og kennslu í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum til framtíðar og þátttöku hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í eflingu þekkingarsamfélags á Íslandi, vill undirrituð benda á þætti sem skortir í þeim stefnumótandi aðgerðum sem settar eru fram í umræddri tillögu til þingsályktunar. 1. Sérfræðingar í hjúkrun. Á bls. 9-10 í tillögunni er sérstaklega talað um mikilvægi þess að fjölga nemendum í heilbrigðisvísindum og þar með talið hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Þar er talað um að sérfræðinám á Íslandi verði eflt frekar, en þó eingöngu talað um sérfræðinám lækna. Sérfræðingar í hjúkrun og þ.m.t. ljósmóðurfræði, gegna lykil hlutverki í kennslu og þjálfun nemenda í þeim fræðigreinum. Því er ekki síður mikilvægt að sett sé í tillöguna umfjöllun um hvernig fjölga á sérfræðingum í hjúkrun, en sú fjölgun þarf að eiga sér stað í samstarfi Háskóla Íslands og klínískra heilbrigðisstofnana með aðkomu yfirvalda. Lagt er til að bætt verði í kaflann Aðgerðir sem styðja við markmið í háskóla- og vísindastarfi til ársins 2025 að fjölga nemendum í meistaranámi í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði, fjölga hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum í sérfræðiþjálfun sambærilegri þeirri sem Landspítali hefur boðið upp á, og að fjölga sérfræðingum í hjúkrun og ljósmóðurfræði í heilbrigðisþjónustu svo sem á sjúkrahúsum, heilsugæslum, samfélagsþjónustu og hjúkrunarheimilum. 2. Akademískir kennarar í hjúkrun. Forsendur þess að bjóða upp á rannsóknatengt háskólanám er að hafa akademíska kennara á fræðasviðinu. Á síðastliðnum 50 árum hefur í Háskóla Íslands verið byggð upp öflug háskóladeild í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum, sem stenst samanburð við það besta sem gerist í heiminum. Deildin var byggð upp af áræðnum framsýnum frumkvöðlum í hjúkrunarfræði, læknisfræði og ljósmóðurfræði, sem settu markið hátt og sættu sig aðeins við það besta fyrir íslenskt samfélag. Samhliða skorti á klínískum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum, er skortur á akademískum kennurum (hjúkrunarfræðingum með doktorspróf sem eru hæfir til háskólastarfa) í hjúkrunarfræði og er það ein stærsta áskorun Háskóla Íslands til viðhalds og eflingar kennslu og vísindum í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Nauðsynlegur fjöldi akademískra kennara í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði er grundvallar skilyrði fyrir því að efla þekkingarsamfélag á Íslandi og verður tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir í þeim efnum að taka tillit til þess og fjalla um þann þátt sem slíkan. Lagt er til að bætt verði í kaflann Aðgerðir sem styðja við markmið í háskóla- og vísindastarfi til ársins 2025 að fjölga hjúkrunarfræðingum með doktorspróf á Íslandi og að tryggja næga mönnun akademískra kennara í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands. Virðingarfyllst, Helga Bragadóttir, hjúkrunarfræðingur, PhD, FAAN, prófessor, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og formaður fagráðs hjúkrunarstjórnunar Landspítala.

  • #4Gylfi Magnússon
    Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðferðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025 Þessi tillaga til þingsályktunar fjallar um fjölmörg atriði. Margar af tillögunum eru góðra gjalda verðar. Hins vegar er óhjákvæmilegt að gera athugasemd við nokkra þætti. Hér verður einkum fjallað um þá sem snúa að félagsvísindum en höfundur er forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, sem er umsvifamest allra þeirra háskóladeilda sem kenna félagsvísindi á Íslandi. Hér verður fyrst vikið að nokkrum almennum þáttum í drögunum en síðan fjallað sérstaklega um þau fr… Lesa alla

    Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðferðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025 Þessi tillaga til þingsályktunar fjallar um fjölmörg atriði. Margar af tillögunum eru góðra gjalda verðar. Hins vegar er óhjákvæmilegt að gera athugasemd við nokkra þætti. Hér verður einkum fjallað um þá sem snúa að félagsvísindum en höfundur er forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, sem er umsvifamest allra þeirra háskóladeilda sem kenna félagsvísindi á Íslandi. Hér verður fyrst vikið að nokkrum almennum þáttum í drögunum en síðan fjallað sérstaklega um þau frá sjónarhóli félagsvísinda. Í heiti draganna og víða í þeim er rætt um þekkingarsamfélag án þess þó að hugtakið sé skilgreint eða jafnvel lýst með skýrum hætti. Það er því erfitt að átta sig á því til hvers er verið að vísa nákvæmlega og raunar næsta víst að ekki leggja allir sama skilning í hugtakið. Í lið 2.2 er rætt um fjármögnun rannsóknarinnviða. Einkum virðist horft til tækjakosts en eðlilegt væri að horfa einnig til annarra þátta sem styðja við rannsóknir, m.a. uppbyggingar og viðhalds ýmiss konar gagnagrunna. Þá er rétt að hafa í huga að slíkir innviðir nýtast illa, a.m.k. ekki innan háskóla, nema skólarnir hafi nægt fjármagn til að standa undir kostnaði vegna akademískra starfsmanna og doktorsnema sem sinna rannsóknum. Í fyrirsögn þessa liðar er rætt um þekkingargreinar en ekki er ljóst til hvers er verið að vísa. Hafa ber í huga í þessu samhengi að allar sérgreinar háskóla byggja á, miðla og búa til þekkingu. Í liðum 2.4 og 2.8 er rætt um sjálfbæran þekkingariðnað. Ekki er ljóst til hvers er ætlunin að vísa hér, hvorki hvað varðar sjálfbærni né þekkingariðnað. Hugtakið sjálfbærni er oftast notað með vísan til umhverfismála en af samhenginu má ætla að hugtakið sé notað í annarri merkingu hér, fjárhagslegri eða rekstrarlegri. Á sama hátt er rætt um þekkingariðnað í lið 2.5 án þess að það sé skýrt nánar til hvers er ætlunin að vísa. Rétt er að hafa í huga að orðið iðnaður á íslensku hefur þrengri merkingu en industry á ensku en líklega er hér verið að nota orðið í mjög víðri merkingu. Alþjóðageirinn er sagður öll fyrirtæki sem fá útflutningstekjur sem byggja á öðru en okkar takmörkuðu auðlindum. Þetta er ekki rétt skilgreining á alþjóðageiranum, eða a.m.k. ekki sú sem er almennt notuð sem þýðing á traded sector á ensku. Bæði orkufrekur iðnaður og sjávarútvegur á Íslandi teljast t.d. að mestu til alþjóðageirans. Með auðlindum er hér væntanlega verið að vísa til náttúruauðlinda. Aðrar auðlindir, þar á meðal mannauður, eru þó vitaskuld einnig takmarkaðar þótt takmörkunin sé nokkuð annars eðlis en sú sem á við náttúruauðlindir. Hins vegar er rétt að hagvöxtur 21. aldar getur ekki byggt á sífellt aukinni nýtingu náttúruauðlinda, ólíkt því sem við áttum að venjast á 20. öldinni og síðari helmingi þeirrar 19. Sjálfbær nýting þeirra getur þó haldið áfram um alla fyrirsjáanlega framtíð. Hvað sem því líður þá er ekki mjög gagnlegt að skipta atvinnulífinu upp með þessum hætti. Þótt sókn í náttúruauðlindir geti ekki aukist, sérstaklega ekki í sjávarútvegi, þá eru t.d. ýmis sóknarfæri í bættri nýtingu sjávarafurða sem hægt er að ná með hugviti og rannsóknum. Þá er óljóst hvað er átt við með að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Það er sagt lykilatriði í þeirri framtíðarsýn sem teiknuð er upp. Sem samfélagslegt markmið er þetta of loðið og teygjanlegt til að það virðist hægt að byggja á því. Allar atvinnugreinar byggja á hugviti að einhverju marki en hugvitið sem slíkt verður vart flutt út. Ýmsar afurðir, bæði vörur og þjónusta, sem eru hugvitsamlega þróaðar, framleiddar og markaðssettar geta hins vegar verið fluttar út. Enn fremur er ekki ljóst hvers vegna einblínt er á útflutning eingöngu. Þótt útflutningur sé vitaskuld mikilvægur fyrir hagkerfið og lífskjör þá hlýtur þekkingarsamfélag (hvernig svo sem það er skilgreint) að vera mun breiðara og loðnara hugtak en svo að það snúist eingöngu um útflutning. Mikil sóknarfæri fyrir íslenskt efnahagslíf liggja einmitt í því að auka samkeppni innanlands. Það hefur verið Akkilesarhæll hagkerfisins hve hún er lítil og að hagkvæmni stórrekstrar nýtist lítt fyrir hinn smáa innanlandsmarkað. Því er ekki síður ástæða til að huga að innanlandsmarkaði en útflutningi þegar mótuð er stefna sem þessi. Í tillögunni er lögð veruleg áhersla á svokallaðar STEAM greinar. Sú áhersla er ekki vel rökstudd og því ekki ljóst hvers vegna þessar greinar eru valdar. Þær eru þó auðvitað góðra gjalda verðar og mikilvægar fyrir atvinnulífið og samfélagið í heild. Í greinargerð er jafnframt rætt um fjölgun í menntavísindum. Samanlagt er þetta mjög stór hluti alls háskólastarfs sem ætlunin er að leggja áherslu á. Eingöngu félags- og hugvísindi eru skilin eftir útundan. Félagsráðgjöf fær þó að fljóta með en hún er eina félagsvísindagreinin sem lagt er til að leggja áherslu á og það eingöngu rökstutt með vísan til fyrirsjáanlegrar fjölgunar aldraðra. Rökstuðningur fyrir áherslu á STEAM greinar umfram aðrar kemur einkum fram í lið 1.1. Hann er knappur og yfirborðskenndur og stenst ekki vel skoðun. Félags- og hugvísindi skipta ekki minna máli en aðrar greinar í skilvirku hagkerfi og gegna lykilhlutverki í ýmiss konar nýsköpun. Má nefna sem dæmi að öflug vernd hugverka byggir á þekkingu úr félagsvísindagreininni lögfræði. Án skilvirks kerfis til verndar hugverkaréttinda er vart hægt að hugsa sér mikið af þeim rannsóknum og þeirri þróun sem er nauðsynleg fyrir nýsköpun. Þá gegnir markaðsfræði, önnur félagsvísindagrein, lykilhlutverki við að leggja mat á stærð markaða fyrir nýjungar og svo vitaskuld markaðssetningu þeirra. Enn aðrar félagsvísindagreinar, svo sem stjórnun, fjármál og reikningshald, gegna á sama hátt lykilhlutverki við að leggja mat á nýjungar og viðskiptahugmyndir og að leysa margs konar viðfangsefni sem eru nauðsynleg til að hugmynd verði að blómlegu fyrirtæki. Flestar nýjar viðskiptahugmyndir snúast ekki um að þróa nýjar tæknilausnir heldur byggja þær á hugmyndum frumkvöðla um hvernig hægt er að búa til nýja markaði eða ná árangri á mörkuðum sem fyrir eru með nýrri nálgun. Þótt hér sé einkum horft á tillöguna frá sjónarhóli félagsvísinda verður þó einnig að benda á að engin umræða er í skjalinu um mikilvægi tungumálanáms sem þó hlýtur að vera lykilatriði í uppbyggingu þeirra alþjóðatengsla, bæði í háskólastarfi og viðskiptum, sem boðuð eru. Tungumálakunnátta og þekking á menningu, siðum og venjum annarra þjóða skiptir miklu fyrir árangursríka alþjóðavæðingu og eflingu útflutnings. Tungumálanám Íslendinga varð fyrir þungu höggi við styttingu náms á framhaldsskólastigi og má vart við því að veikjast enn frekar. Áherslan á STEAM greinar endurspeglar heldur ekki þá reynslu, sem studd er fjölda rannsókna, að þverfaglegt samstarf sé æskilegt og raunar nær alltaf nauðsynlegt í nýsköpunarvinnu. Sérhæfð þekking á þröngu tæknisviði ein og sér er gagnleg við að leysa sérhæfð, fræðileg viðfangsefni en til að byggja upp og reka nútíma fyrirtæki þarf breiðari nálgun, sem reynir ekki síst á þekkingu úr ranni félagsvísinda. Það var einn af mörgum veikleikum sovétkerfisins á sínum tíma að háskólar austan járntjalds útskrifuðu allt of marga nemendur með menntun í STEM greinum, t.d. stærðfræði og eðlisfræði. Sú áhersla dugði skammt við að byggja upp samkeppnishæft atvinnulíf. Hún skilaði vissulega árangri fyrir geimferðaáætlun Sovétmanna en hagkerfið vantaði sárlega fólk með menntun í félagsvísindagreinum (fyrir utan gagnslaus marxísk hjávísindi) og sérstaklega viðskiptafræði. Vitaskuld er enginn að leggja til sovéskt skipulag á Íslandi, því fer fjarri, en þessi samanburður sýnir engu að síður glögglega – þótt með ýktum hætti sé – hættuna við að beina nemendum á tilteknar námsbrautir byggt á pólitísku mati á því hvaða greinar eru æskilegri eða verðugri en aðrar. Mikilvægi einstakra námsgreina byggir vitaskuld ekki á því eingöngu hve vel þær styðja við útflutning. Menntun og rannsóknir þjóna víðtæku samfélagslegu hlutverki sem endurspeglast ekki nema að litlum hluta í tölfræði um útflutning á vörum og þjónustu. Þetta á ekki síst við um félags- og hugvísindi. Þess má geta að einn helsti vaxtarsprotinn í uppbyggingu viðskiptafræðimenntunar á Íslandi undanfarna áratugi, u.þ.b. frá aldamótum, hefur verið að bjóða upp á ýmist almenna eða sérhæfða menntun á því sviði fyrir þá sem þegar hafa lokið háskólamenntun í óskyldum greinum. Þörfin fyrir þá menntun – sem kemur fram í mikilli eftirspurn bæði meðal nemenda og atvinnurekenda – endurspeglar að í rekstri fyrirtækja og stofnana er sífellt verið að glíma við rekstrarleg viðfangsefni, sem félagsvísindagreinin viðskiptafræði nýtist vel við en annað nám mun síður. Í þessu samhengi verður heldur ekki litið framhjá því að félags- og hugvísindi njóta nú þegar mun minni stuðnings hins opinbera við hvern nemanda en STEAM greinarnar. Fjárveitingar á hvern nemanda í félags- og hugvísindum eru þær lægstu sem þekkjast í háskólasamfélaginu. Í því felst að sjálfsögðu mismunun gagnvart nemendum í þessum fræðum. Hana er vart réttlætanlegt að auka með því að minnka enn skerf þessara greina af því fé sem varið er til rekstrar háskóla, líkt og hætt er við að verði raunin miðað við áherslur fyrirhugaðrar þingsályktunartillögu. Hér er einnig óhjákvæmilegt að benda á að ýmsar greinar sem almennt eru taldar með í upptalningu STEAM greina eru að stofni til viðskiptafræði. Má þar nefna fjármálaverkfræði og rekstrarverkfræði. Fjárveitingar hins opinbera til slíks náms eru hins vegar mun rýmri sé það kennt undir fána verkfræði en viðskiptafræði. Í lið 1.5 er stuttlega rætt um reiknilíkan það sem notað er til að ákvarða fjárveitingar vegna háskóla en ekki vikið að því að leiðrétta þá mismunun gagnvart félags- og hugvísindum sem felst í líkaninu nú. Slík leiðrétting er þó afar brýn. Það sama gildir um aukin fjárframlög til háskólastigsins í heild sem er illa vanfjármagnað miðað við það sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum eða í OECD löndunum í heild þrátt fyrir margendurtekin fyrirheit um að gera þar bragarbót á. Í lið 1.5 kemur fram að nýtt líkan muni hvíla í minna mæli á magni en núverandi líkan og einblína frekar á gæði. Hér er rétt að hafa í huga að námsbrautir í félagsvísindum eru margar mjög vinsælar og því fjölmennar. Sé ætlunin að rýra enn frekar hlut þeirra með því að taka ekki fullt tillit til fjölda við úthlutun fjár þá væri það afar slæmt skref, sem myndi annað hvort kalla á minni þjónustu við nemendur og almennt lakara nám, eða harðar fjöldatakmarkanir. Sú hugmynd að taka tillit til gæða getur verið góðra gjalda verð, þótt mælikvarðar á gæði náms séu ófullkomnir og ónákvæmir. Þó er rétt að hafa í huga að vanfjármögnun náms kemur óhjákvæmilega niður á gæðum og séu fjárveitingar skertar vegna þess þá getur það leitt til enn verra náms og á endanum til þess að leggja verður námið af. Sú hugmynd að taka pólitískar ákvarðanir um hvaða nám skal sérstaklega styrkja og beina nemendum í hefur hættu í för með sér eins og áður var vikið að. Almennt horfa nemendur til margra þátta þegar þeir velja sér nám. Áhugasvið skiptir vitaskuld máli en einnig væntingar um störf og tekjur að námi loknu. Það ræðst síðan í grundvallaratriðum af framboði og eftirspurn á vinnumarkaði hvernig þær væntingar rætast. Vinnumarkaðurinn ræður almennt ágætlega við það viðfangsefni og beinir þannig ungu fólki í eðlilegan farveg. Skortur á fólki með tiltekna menntun leysist þannig alla jafna á farsælan hátt fyrir tilstilli markaðarins án pólitískrar miðstýringar. Vegna þess hve langan tíma tekur að mennta sérfræðinga getur þó verið skortur á þeim af og til vegna skammtímasveiflna í framboði eða eftirspurn. Nú stefnir t.d. í að of fáir muni útskrifast næstu ár með menntun í reikningshaldi og endurskoðun, sem krafist er vegna löggildingar endurskoðenda. Í sumum sérfræðigreinum er hægt að leysa slíkan vanda með því að ráða erlenda sérfræðinga eða úthýsa verkefnum til útlanda. Það er erfitt í mörgum félagsvísindagreinum vegna þess hve tungumálið og þekking á íslensku samfélagi og regluverki skiptir þar oft miklu máli. Það gerir það enn mikilvægara en ella að halda uppi góðri kennslu í félagsvísindagreinum á Íslandi og að hið opinbera styðji vel við hana. Það er annað mál að í greinum þar sem hið opinbera er nánast eini atvinnurekandinn getur verið tregða við að bjóða þau laun sem þyrfti til að geta ráðið í öll þau störf sem þarf að fylla. Því verður hins vegar varla breytt með þingsályktunartillögu sem þessari. Sé ætlunin að miðstýra með einhverjum hætti námsframboði og jafnvel námsvali þá kallar það ef vel á að vera á miklu dýpri og yfirvegaðri greiningu og samfélagsumræðu en byggt virðist á í þessum drögum að þingsályktun. Skoða þarf og spá fyrir um fjölmargar breytur. Að einhverju marki hefur það verið gert í nokkrum löndum, t.d. í Danmörku, og er hægt að horfa þangað um fyrirmynd sé frekari miðstýring talin æskileg. Í mörgum nágrannalandanna hefur þó ekki verið talin nein þörf á slíkri miðstýringu og er hið dreifðstýrða bandaríska háskólakerfi gott dæmi um það. Þá þarf að innleiða breytingar með löngum fyrirvara vegna þess hve langan tíma tekur að búa nemanda undir háskólanám á tilteknu sviði og síðan mennta og útskrifa. Ef vilji stendur t.d. til þess að fjölga þeim sem ljúka háskólanámi sem krefst mikillar færni í stærðfræði þyrftu fyrstu skrefin væntanlega að vera tekin á grunnskólastigi. Þar þyrfti ekki bara að bjóða upp á tiltekið undirbúningsnám heldur fá nemendur til þess að taka það af áhuga og halda síðan áfram námi með slíka áherslu. Telja má öruggt að slíkt þyrfti mun lengri tíma en miðað er við í drögunum en þau eiga að móta stefnu til ársins 2025 þótt e.t.v. mætti taka tiltekin byrjunarskref innan þess tímaramma. Reykjavík, 13. mars 2023 Gylfi Magnússon, Forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands

  • #5Elín Soffía Ólafsdóttir

    Umsögn frá deildarforseta Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands er í pdf skjali í viðhengi. Heiti skjals: Umsögn ESÓ_Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025.pdf

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-50/2023: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025 · Alviti