Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-217/2023 · Dómsmálaráðuneytið

Breyting á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu (stafræn málsmeðferð)

Innleiðing stafrænna lausna við meðferð fullnustumála hjá sýslumönnum og dómstólum.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fullnustulöggjöf, það er lögum um aðför nr. 90/1989 og lögum um nauðungarsölu nr. 90/1991, svo unnt verði að beita í auknum mæli stafrænum lausnum við meðferð fjárnámsmála og nauðungarsölumála. Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að þar sem áskilið er í lögum að gögn skuli vera skrifleg, þau undirrituð eða birt með sannanlegum hætti, þá skuli gögn á stafrænu formi, fullgild rafræn undirritun og birting í stafrænu pósthólfi teljast fullnægjandi. Í öðru lagi er lagt til að áskilnaði um áritun héraðsdómara eða sýslumanns megi fullnægja með rafrænni áritun eða rafrænni færslu ef skjalið sem krefst áritunar er á stafrænu formi. Í þriðja lagi er mælt fyrir um í frumvarpinu að sýslumaður geti ákveðið að fyrirtökur fari fram á fjarfundi og telst það fullnægjandi mæting af hálfu málsaðila. Í fjórða lagi er lagt til að sýslumanni sé heimilt að ákveða að aðfarargerð fari fram án mætingar málsaðila og að fella niður fyrirtökur í nauðungarsölumáli að ákveðnum skilyrðum fullnægðum. Í fimmta lagi er lagt til að heimilt sé að starfrækja vefgátt, sem ætlað er að vera stafrænn vettvangur fyrir samskipti málsaðila, sýslumanns og dómara, þar sem hægt verður að nálgast á einum stað upplýsingar um stöðu stafræns fullnustumáls, leiðbeiningar og tilkynningar. Að lokum er í frumvarpi þessu lagt til að þar sem áskilið er í nauðungarsölulögum að auglýsing skuli birt í Lögbirtingablaði þá skuli auglýsing á vef sýslumanna teljast fullnægjandi.

S-217/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. nóv. 2023 – 20. nóv. 2023· 4 umsagnir

Breyting á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu (stafræn málsmeðferð)

Innleiðing stafrænna lausna við meðferð fullnustumála hjá sýslumönnum og dómstólum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-217/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. nóvember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (19. október 2026)

Fjórar umsagnir bárust um frumvarpsdrögin. Í framhaldinu var áfram unnið með málið í ráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-217/2023: Breyting á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu (stafræn málsmeðferð) · Alviti