Beint í efni
Alviti
153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 153. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

149

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 153. þings

Af málum sem komu fram voru 24 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 65 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 49. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing27. okt. 202633 af 1501
157. þing28. okt. 202545 af 1477
154. þing31. okt. 202326 af 2000
153. þing1. nóv. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

4 af 5 komin fram

Dómsmálaráðherra

12 af 20 komin fram

Félags- og vinnumarkaðsráðherra

6 af 12 komin fram

Fjármála- og efnahagsráðherra

9 af 11 komin fram

  • Áætlað: september
    1. mál· Samþykkt· lagt fram 13. sep. 2022
  • Áætlað: september
    2. mál· Samþykkt· lagt fram 13. sep. 2022
  • Áætlað: september
    327. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2022· seinna en áætlað
  • Áætlað: september· Endurflutt
    326. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2022· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í erlendri mynt verði rýmkaðar og að lífeyrissjóðum verði heimilt að senda upplýsingar til sjóðfélaga með rafrænum hætti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða o.fl.).

  • Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    166. mál· Samþykkt· lagt fram 21. sep. 2022
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/92/ESB frá 23. júlí 2014 um samanburð gjalda er varða greiðslureikninga, skipti á greiðslureikningum og aðgengi að greiðslureikningum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um greið slureikninga (PAD).

  • Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    137. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2022
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 frá 29. apríl 2015 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF).

  • Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    328. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2022· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1131 frá 14. júní 2017 um peningamarkaðssjóði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um peningamarkaðssjóði.

  • Áætlað: október
    409. mál· Samþykkt· lagt fram 8. nóv. 2022· seinna en áætlað
  • Áætlað: mars· EES-innleiðing
    415. mál· Samþykkt· lagt fram 8. nóv. 2022
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 um upplýsingar tengdar sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (e. Sustainable Finance Disclosure Regulation) og 2020/852 um að koma á ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu og um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/2088 (e. Sustainable Finance Taxonomy Regulation). Með frumvarpinu er einnig lagt til að framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1253 frá 21. apríl 2021, um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/565 að því er varðar þætti, áhættu og valkosti sem tengjast sjálfbærni og skulu gerðir hluti af tilteknum skipulagskröfum og rekstrarskilyrðum verðbréfafyrirtækja, verði veitt lagagildi með breytingu á lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021. Október. 12.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda). Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur gert athugasemdir við búsetuskilyrði í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi. ESA telur ákvæði laganna um búsetuskilyrði brjóta í bága við 28. og 31. gr. EES-samningsins um staðfesturétt. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Breytingarnar fela það í sér að ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja og Færeyingar verða undanskildir búsetuskilyrðum í lögunum. Október 13. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (kaupréttir, mútubrot o.fl.). Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Um er að ræða ákvæði sem snúa m.a. að kaupum á hlutabréfum samkvæmt kauprétti í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, lengingu heimildar til endurákvörðunar úr sex árum í tíu ár vegna mútubrota o.fl. Nóvember. 14. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sértryggð skuldabréf og lögum um fjármálafyrirtæki (sértryggð skuldabréf og markaðsáhætta). Frumvarpinu er ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2162 frá 27. nóvember 2019 um útgáfu sértryggðra skuldabréfa og opinbert eftirlit með sértryggðum skuldabréfum og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2160 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar skuldbindingar í formi sértryggðra skuldabréfa. Ákvæðum gerðanna svipar til þess lagaramma sem þegar gildir um sértryggð skuldabréf hér á landi. Frumvarpið felur í sér nokkur nýmæli, þar á meðal um lausafjárkröfur og heimild til að markaðssetja skuldabréf sem evrópsk sértryggð skuldabréf. Þá er gert ráð fyrir því að innleiða með frumvarpinu framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/424 frá 17. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar óhefðbundna staðalaðferð fyrir markaðsáhættu. Nóvember. 15. Frumvarp til laga um breytta gjaldtöku vegna notkunar bifreiða o.fl. (gjaldtaka ökutækja eldsneytis o.fl.). Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp breytt fyrirkomulag gjaldtöku af bifreiðum með gildistöku hinn 1. janúar 2024. Um er að ræða fyrirkomulag þar sem greitt er fyrir notkun vegakerfisins byggt á aflestri á kílómetrastöðu bifreiða. Samhliða er ráðgert að endurskoðun fari fram á þeim lagabálkum sem gilda um skattlagningu eldsneytis, með tilliti til þess að vægi þeirra verði minna. Nóvember. 16. Frumvarp til laga um meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum. Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum með breyttu fyrirkomulagi þar sem aukin áhersla verður lögð á gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings. Nóvember. 17. Frumvarp til laga um flýti- og umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu. Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyrirkomulag gjaldtöku í formi flýti- og umferðargjalda á höfuðborgarsvæðinu með gildistöku hinn 1. janúar 2024. Markmið frumvarpsins er að standa straum af stofnframkvæmdum samgöngumannvirkja, fjármögnun og afleiddum kostnaði slíkrar uppbyggingar. Gjöldunum er ætlað að tryggja nauðsynlega fjármögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að markmiðum Samgöngusáttmála ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verði náð. Nóvember. 18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (barnabætur). Með frumvarpinu verður barnabótakerfið styrkt og útvíkkað með það að markmiði að jafna kjör barnafjölskyldna í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Nóvember. 19. Frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. desember 2016 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri. Með frumvarpinu er lagt til að felld verði úr gildi lög um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, sem sett voru til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2003/41 frá 3. júní 2003 um sama efni og ný lög sett í þeirra stað. Janúar. 20. Frumvarp til laga um sölu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1156 frá 20. júní 2019 um að greiða fyrir flutningi sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 345/2013, (ESB) nr. 346/2013 og (ESB) nr. 1286/2014 og innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB með tilliti til flutnings sjóða um sameigin lega fjárfestingu yfir landamæri. Einnig verða lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2011/61/ESB frá 8. júní 2011 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og um breytingu á tilskipunum 2003/31/EB og 2009/65/EB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 1095/2011, sem kveða á um heimildir rekstraraðila með staðfestu í þriðja ríki til markaðssetningar á sérhæfðum sjóðum innan EES og einnig sérreglur varða ndi markaðssetningu sjóða með staðfestu utan EES. Janúar. 21. Frumvarp til laga um högun upplýsingatækni í rekstri ríkisins. Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja stefnumótun og framkvæmd upplýsingatæknimála í rekstri ríkisins o.fl. Janúar. 22. Frumvarp til laga um verðbréfun (STS). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/E B, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012. Febrúar. 23. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir og lögum um lánasýslu ríkisins (endurskoðun). Með frumvarpinu er stefnt að því endurskoða lagaákvæði um lánaumsýslu ríkissjóðs og ríkisábyrgðir. Undir lánaumsýslu falla m.a. tekin lán ríkissjóðs, endurlán, ábyrgðir, afleiður, áhættustýring og sjóðsstýring. Meginmarkmið frumvarpsins er að samræma löggjöfina gildandi lögum um opinber fjármál og stefnu í lánamálum. Febrúar. 24. Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins. Með frumvarpinu er umgjörð opinberra fjárfestinga gerð skýrari ásamt því að ráðast í heildarendurskoðun á gildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda, nr. 84/2001. Megintilgangur frumvarpsins er að ná fram aukinni gæðatryggingu í fjárfestingum ríkisins ásamt því að tryggja samræmda málsmeðferð við ólíkar tegundir fjárfestinga. Mars. 25. Frumvarp til laga um samevrópska séreignarafurð (PEPP). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 1238/2019 frá 20. júní 2019 um samevrópska einstaklingsbundna lífeyrisvöru (e. Pan- European Personal Pension Product, PEPP) í íslenskan rétt. Um er að ræða nýja valfrjálsa tegund séreignarafurðar sem neytendum innan EES mun standa til boða og er ætlað að auka val neytenda við sparnað til starfsloka. Höfuðstólinn verður mögulegt að flytja á milli EES-ríkjanna. Afurðinni er ekki ætlað að koma í stað þeirra lífeyriskerfa sem fyrir eru. Með frumvarpinu eru jafnframt lagðar til afleiddar breytingar á öðrum lögum svo sem lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, hvað valfrjálsan lífeyrissparnað varðar og fjárfestingarleiðir vegna hans. Mars. 26. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018 (afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar o.fl.). Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2099 frá 23. október 2019 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár (EMIR 2.2) verði veitt lagagildi hér á landi með breytingu á lögum nr. 15/2018 um sama efni. Frumvarpið felur í sér breytingar á eftirliti með miðlægum mótaðilum en engir slíkir eru starfandi hérlendis. Mars. 27. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (BRRD II). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/879 frá 20. maí 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2014/59/ESB að því er varðar tapþol og endurfjármögnunargetu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og tilskipun (EB) 98/26/EB. Frumvarpið kveður á um heildarendurskoðun á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja en veigamestu breytingarnar varða IV. kafla laganna sem fjallar um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar. Mars. 28. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (stafræn viðskipti yfir landamæri). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í tengslum við skattlagningu tekna vegna stafrænna viðskipta yfir landamæri. Mars. 29. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (eftirlitsheimildir, uppgjörstímabil o.fl.). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt með það að markmiði að styrkja eftirlitsheimildir Skattsins og sporna þannig gegn skattundanskotum og misnotkun á virðisaukaskattskerfinu. Þá eru einnig lagðar til breytingar á uppgjörstímabilum virðisaukaskatts. Mars. 30. Tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2024- 2028. Samkvæmt 5. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal ráðherra leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta. Fjármálaáætlunin skal byggð á fjármálastefnu skv. 4. gr. og skilyrðum hennar skv. 7. gr.laganna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

2 af 5 komin fram

Heilbrigðisráðherra

6 af 9 komin fram

Innviðaráðherra

13 af 19 komin fram

Matvælaráðherra

10 af 12 komin fram

Menningar- og viðskiptaráðherra

10 af 21 komin fram

Mennta- og barnamálaráðherra

3 af 7 komin fram

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

8 af 17 komin fram

Utanríkisráðherra

6 af 11 komin fram

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.