Breyting á kosningalögum
Hér eru til kynningar áform um breytingar á kosningalögum. Kallað er eftir athugasemdum og tillögum um það sem betur má fara í lögunum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-94/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 1. júlí 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (16. desember 2022)
Jafnframt því að kynna áform um breytingar á kosningalögum var kallað eftir athugasemdum og tillögum um það sem betur má fara í lögunum.19 umsagnir bárust og þar er að finna ýmsar tillögur til breytingar og ábendingar. Umsagnirnar eru nú til skoðunar við vinnu við gerð frumvarps til breytinga á kosningalögum. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og gefinn kostur á athugasemdum.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
- #1Svavar Kjarrval Lúthersson
Í 2. mgr. 104. gr. laga nr. 24/2000 (eldri kosningalög) er sérstaklega kveðið á um að yfirkjörstjórn eigi að innsigla alla notaða kjörseðla að lokinni talningu. Sambærilegt lagaákvæði er ekki að finna í lögum nr. 112/2021 (nýrri kosningalög) og því eru stórar efasemdir um að lagaskyldan sé áfram til staðar. Þó landskjörstjórn hafi sett reglur er kveða á um slíka skyldu skal samt athuga að, ef á reyndi, væri hægt að færa sterkar varnir fyrir því að þær reglur myndu ekki njóta sterkrar lagastoðar sbr. heimildarreglu lögmætisreglunnar ásamt gagnályktun frá öðrum ákvæðum nýrri kosningalaga er kveð… Lesa alla
Í 2. mgr. 104. gr. laga nr. 24/2000 (eldri kosningalög) er sérstaklega kveðið á um að yfirkjörstjórn eigi að innsigla alla notaða kjörseðla að lokinni talningu. Sambærilegt lagaákvæði er ekki að finna í lögum nr. 112/2021 (nýrri kosningalög) og því eru stórar efasemdir um að lagaskyldan sé áfram til staðar. Þó landskjörstjórn hafi sett reglur er kveða á um slíka skyldu skal samt athuga að, ef á reyndi, væri hægt að færa sterkar varnir fyrir því að þær reglur myndu ekki njóta sterkrar lagastoðar sbr. heimildarreglu lögmætisreglunnar ásamt gagnályktun frá öðrum ákvæðum nýrri kosningalaga er kveða sérstaklega á um skyldu til að innsigla í öðrum tilvikum. Mæli ég því með að lagastoð til þeirrar innsiglunar verði skoðuð í tengslum við þessa yfirferð. Í XVII. kafla nýrra kosningalaga er ekki kveðið á um að úrslit sveitarstjórnarkosninga skuli vera formlega auglýst (til almennings). Þessi annmarki er einnig á lögum 5/1998 og er löngu tímabært að bæta úr honum.
- #2Helgi Hjálmtýsson
Hæfi kjörstjórnarmanna Endurskoða þarf 18. gr. um hæfi kjörstjórnarmanna. Gengið er of langt í greininni meðan kjörstjórnarmaður og frambjóðandi geta deilt verulegum hagsmunum, t.d. átt eignir eða fyrirtæki saman. Skilríki umboðsmanna Í 53. gr. segir að kjörstjórnir eigi að gefa út skilríki fyrir umboðsmenn eftir fyrirmælum landskjörstjórnar. Enginn kjörstjórn eða sveitarfélg er með skilríkjaútgáfu. Annað hvort þarf að breyta orðalagi og tala um annað en skilríki, nafnspjald, auðkenningu eða álíka, eða að kjörstjórnir hafi lista yfir umboðsmenn og geti farið fram á að umboðsmenn geri gr… Lesa alla
Hæfi kjörstjórnarmanna Endurskoða þarf 18. gr. um hæfi kjörstjórnarmanna. Gengið er of langt í greininni meðan kjörstjórnarmaður og frambjóðandi geta deilt verulegum hagsmunum, t.d. átt eignir eða fyrirtæki saman. Skilríki umboðsmanna Í 53. gr. segir að kjörstjórnir eigi að gefa út skilríki fyrir umboðsmenn eftir fyrirmælum landskjörstjórnar. Enginn kjörstjórn eða sveitarfélg er með skilríkjaútgáfu. Annað hvort þarf að breyta orðalagi og tala um annað en skilríki, nafnspjald, auðkenningu eða álíka, eða að kjörstjórnir hafi lista yfir umboðsmenn og geti farið fram á að umboðsmenn geri grein fyrir sér alveg eins og kjósendur þurfa að gera grein fyrir sér. Ökuskírteini? Af hverju eru ökuskírteini viðurkennd sem skilríki? Þetta er villa og einungis vegabréf og nafnskírteini ættu að gilda sem skilríki enda eru ökuskírteini ekki skilríki og það er ekki hlutverk lögreglu að auðkenna einstaklinga. Ökuskírteini eru einungis staðfesting þess að handhafinn hafi ökuréttindi í tilteknum flokki eða flokkum. Allir geta fengið vegabréf eða nafnskírteini en bara þeir sem hafa ökuréttindi geta fengið ökuskírteini. Fræðsluskylda Í 14. gr. segir að það sé verkefni landskjörstjórnar að fræða m.a. kjörstjórnir um framkvæmd kosninga. Þetta hefur yfirleitt verið gert með mis mörgum fundum og á mis góðum vefsíðum. Eini fræðslubæklingurinn sem gefin hefur verið út hvað varðar starf kjörstjórna er Mat á vafaatkvæðum, fínn bæklingur, mætti einnig vera á netinu, en þetta útgáfustarf mætti auka, t.d. með flokkunar- og talningaæfingum, handbók fyrir kjörstjórnarmenn, o.s.frv. Mín reynsla er sú að kjörstjórnarmenn vilja almennt lesa sér til um hlutverk sitt. Landskjörstjórn Það ætti að vera í lögum hvenær landskjörstjórn ætti í síðasta lagi að koma saman fyrir kosningar og hefja undirbúning. Landskjörstjórn hefði mátt fara fyrr af stað í nýafstöðnum kosningum og þá sérlega í ljósi breytts lagaumhverfis. Þá var ekki síður furðulegt hve seint reglugerðir út frá lögunum komu fram. Utankjörfundaratkvæði Meðan ekki er verið að nota tölvulestur á strikamerki er bagalegt að það séu einungis kennitölur kjósenda á utankjörfundarumslögum. Um lagaumhverfið Á heildina litið er stigið stórt framfararskref með þessu nýja lagaumhverfi kosninga.
- #3Jósef Valgarð Þorvaldsson
Í kosningarlögunum er mikið gert úr að skyldleiki geti haft áhrif á hvernig kjósandi kýs ef marka má áheyrslurnar á því að forðast skyldleika við listakosningar ég kem ekki auga á hver þessi hætta er því að kjósandinn þarf að vera fram úr hófi ættfróður til þess að vita um fjærskyldann ættingja fyrrum maka einhvers í kjörstjórninni svo að hann geti tengt viðkomandi við listana sem í boði eru. Eru ekki meiri hætta á hagsmunatengslum ef t.d. viðkomandi séu saman í stjórn golfklúbbsins e.þ.h. Ég legg til að þessi ættartengsl verði þurkuð út úr lögunum og notast í staðin við almenn ákvæði um van… Lesa alla
Í kosningarlögunum er mikið gert úr að skyldleiki geti haft áhrif á hvernig kjósandi kýs ef marka má áheyrslurnar á því að forðast skyldleika við listakosningar ég kem ekki auga á hver þessi hætta er því að kjósandinn þarf að vera fram úr hófi ættfróður til þess að vita um fjærskyldann ættingja fyrrum maka einhvers í kjörstjórninni svo að hann geti tengt viðkomandi við listana sem í boði eru. Eru ekki meiri hætta á hagsmunatengslum ef t.d. viðkomandi séu saman í stjórn golfklúbbsins e.þ.h. Ég legg til að þessi ættartengsl verði þurkuð út úr lögunum og notast í staðin við almenn ákvæði um vanhæfni ef þurfa þikir Að öðrum kosti þarf að skilgreina betur hvernig á að bregðast við ef skyldleiki uppgötvast s.s þegar kjörstjórn væri búinn að afgreiða t.d fjóra af sex listum og meðmælendur með þeim samþ. eða sinja eftir atvikum og upp kæmi skyldleiki við fimta listan kjörstjórnarmaður víkur sæti verður þá að afgreiða hina upp á nýtt s.s.fr.
- #4Jósef Valgarð Þorvaldsson
Í niðurlagi 86 greinar kosningalagana frá 2021 segir " Á þann hluta seðilsinssem ætlaður er fyrir kjör varamanna skal hann rita nöfn varamanna " tilv líkur Orðið skal í þessari grein gerið það að verkum að kjósandi er skildugur til þess að rita í það minsta einn varamann á listan annars ógildist hann. Lögspekingar landskjörstjórnar og sambands ísl.sveitarfélaga telja að þarna sé um ágalla á lögunum að ræða og er ég sammála því verulegann ágalla sem breytir ekki því að seðillinn er samt sem áður ógildur eftir lagana hljóðan. Legg ég því til að orðið skal verði fjarlægt úr greininni og he… Lesa alla
Í niðurlagi 86 greinar kosningalagana frá 2021 segir " Á þann hluta seðilsinssem ætlaður er fyrir kjör varamanna skal hann rita nöfn varamanna " tilv líkur Orðið skal í þessari grein gerið það að verkum að kjósandi er skildugur til þess að rita í það minsta einn varamann á listan annars ógildist hann. Lögspekingar landskjörstjórnar og sambands ísl.sveitarfélaga telja að þarna sé um ágalla á lögunum að ræða og er ég sammála því verulegann ágalla sem breytir ekki því að seðillinn er samt sem áður ógildur eftir lagana hljóðan. Legg ég því til að orðið skal verði fjarlægt úr greininni og henni breytt á þann veg að á eftir kjör varamanna komi ritar hann nöfn varamanna. Á þann hluta seðilsinssem ætlaður er fyrir kjör varamanna ritar hann nöfn varamanna o.s.f.v.
- #5Jósef Valgarð Þorvaldsson
Þingsæti Í 109,110,111 og 112 grein laga 112/2021 er alltaf gert ráð fyrir að kjósandi kjósi lista eða flokk aldrei einstakling og ef kjósandi vill breita röðun á lista fer geta hans eftir atkvæðamagni listans hverju er hægt að breyta. Í 113 greininni er gert ráð fyrir að tilkynnt sé eftir vægi listana og ekki lengur gefin út kjörbréf til einstaklingana á listunum. Get ég því ekki séð hvernig einstaklingur geti eignast sæti listans og farið með sem sitt eigið og notað í eigin þágu því kjósandinn getur aldrei kosið einstaklingin hann er bundin af listonum Legg ég því til að við endur skoð… Lesa alla
Þingsæti Í 109,110,111 og 112 grein laga 112/2021 er alltaf gert ráð fyrir að kjósandi kjósi lista eða flokk aldrei einstakling og ef kjósandi vill breita röðun á lista fer geta hans eftir atkvæðamagni listans hverju er hægt að breyta. Í 113 greininni er gert ráð fyrir að tilkynnt sé eftir vægi listana og ekki lengur gefin út kjörbréf til einstaklingana á listunum. Get ég því ekki séð hvernig einstaklingur geti eignast sæti listans og farið með sem sitt eigið og notað í eigin þágu því kjósandinn getur aldrei kosið einstaklingin hann er bundin af listonum Legg ég því til að við endur skoðun lagana komi inn ákvæði sen geri það skýrt að segi einstaklingur sig úr flokknum eða segi sig frá lista víkji viðkomandi sæti og inn komi næsti maður á listanum í hans stað því listin eða félagið á sætið það er skýrt í lögunum Það er alveg ótægt með öllu að einhver einstaklingur sem fer í fílu við þá sem honum treistu geti ónýtt kostningarétt fjölda fólsks með einhliða yfirlýsingu.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.