Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-24/2022 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs

Markmiðið með frumvarpi til breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála fái viðhlítandi heimildir í lögum og að löggjöfin verði

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Frá því að samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa í byrjun árs 2020 hefur þörfin fyrir úrræðið sýnt sig. En eins og oft vill verða með lagasetningu hefur komið í ljós að þörf er á breytingum á lögunum með hliðsjón af því hvernig starf samskiptaráðgjafa hefur þróast. Má í því samhengi nefna að einstaklingar sem nýta úrræðið senda samskiptaráðgjafa oft á tíðum mjög viðkvæm gögn og er því talin þörf á að styrkja betur heimildir samskiptaráðgjafa til að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar. Markmiðið með frumvarpi til breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála fái viðhlítandi heimildir í lögum og að löggjöfin verði þannig úr garði gerð að störf hans nýtist sem best almenningi til heilla.

S-24/2022· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. jan. 2022 – 14. feb. 2022· 1 umsögn

Áform um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs

Markmiðið með frumvarpi til breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála fái viðhlítandi heimildir í lögum og að löggjöfin verði

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-24/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 597)
Niðurstöður samráðs (31. ágúst 2022)

Áform um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 31. janúar til 14. febrúar 2022. Ein umsögn barst sem var höfð til hliðsjónar við smíði lagafrumvarpsins. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi 1. apríl 2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-24/2022: Áform um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs · Alviti